Fréttablaðið - 08.10.2009, Page 10
10 8. október 2009 FIMMTUDAGUR
bílaperur
Quarts
allt að 80% meira ljós
NÝJAR bílaperur frá
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
39
35
7
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
ALÞINGI Lækkun á greiðslubyrði
heimilanna er fagnaðarefni.
Skattahækkanir ríkisstjórnar-
innar kosta um það bil ein mánaðar-
lán á ári. Skattahækkanirnar taka
þann ábata sem lægri greiðslu-
byrði skilar.
Þetta sagði Tryggvi Þór Her-
bertsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, í umræðum um stöðu
heimilanna á Alþingi í gær.
Fagnaði hann aðgerðum félags-
málaráðherra og sagði skattahækk-
unaráformin
ekki honum að
kenna, nema að
hluta til.
Guðmundur
Steingrímsson
Framsóknar-
f lokki sagði
marga kal la
eftir leiðrétt-
ingu skulda.
Aðgerðum ráð-
herra bæri að fagna, sér í lagi
vegna þess að þær væru almennar.
Óvissa ríkti þó um raunverulegt
virði lána og henni þyrfti að eyða.
Lagði hann til að ráðist yrði í lækk-
un höfuðstóls lána.
Árni Páll Árnason félagsmála-
ráðherra sagði að við hefði blasað
að um tuttugu þúsund hefðu farið
í gjaldþrot. Um væri að ræða fólk
sem hefði áfram sömu eða svipað-
ar tekjur og fyrir hrun en skulda-
byrðin hefði vaxið því yfir höfuð.
Hann sagði almennar aðgerðir
mæta vanda þessa fólks en það
væri á hendi bankanna að veita
sértæk úrræði þeim sem þau
þyrftu með.
Unnur Brá Konráðsdóttir Sjálf-
stæðisflokki harmaði að ríkis-
stjórnin hefði ekki farið að tillög-
um flokks síns frá í sumar. Sagði
hún mikilvægt að allir kæmu
saman að lausn mála og til hlið-
sjónar yrði meðal annars sú ríka
hefð að Íslendingar byggju í eigin
húsnæði.
Lilja Mósesdóttir VG sagð-
ist berjast fyrir leiðréttingu höf-
uðstóls lána og um leið afnámi
verðtryggingar. Um leið yrði
að efla leigu- og kaupleigukerfi
húsnæðis.
Margrét Tryggvadóttir Hreyf-
ingunni sagði boðaðar aðgerðir
skref í rétta átt en stíga þyrfti
stærri skref.
Undir lok umræðunnar þóttist
Guðmundur Steingrímsson greina
samhljóm meðal þingmanna og
ítrekaði þá skoðun sína að lækka
bæri höfuðstól húsnæðislána. Auk
þess að gagnast heimilunum myndi
það koma sér vel fyrir efnahags-
lífið. bjorn@frettabladid.is
Ríkið hirðir ábatann
af lægri greiðslubyrði
Þingmenn allra flokka eru sammála um nauðsyn aðgerða til að mæta snarauk-
inni greiðslubyrði vegna húsnæðislána. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru taldar
ganga of skammt. Áform stjórnarinnar um skattahækkanir éta upp ábatann.
HÚSNÆÐISMÁLIN Í BRENNIDEPLI Guðmundur Steingrímsson vill að höfuðstóll hús-
næðislána verði lækkaður. Auk þess að það gagnist heimilunum kæmi það sér vel
fyrir efnahagslífið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TRYGGVI ÞÓR
HERBERTSSON