Fréttablaðið - 08.10.2009, Síða 34
8. október 2009
FIMMTUDAGUR
2
„Fagurfræði er undirgrein í heim-
speki og varð til sem slík seint á
18. öld,” segir Margrét Elísabet.
„Viðfangsefni þeirrar fagurfræði
sem ég legg stund á tengist listum,
í mínu tilfelli myndlist og miðla-
list, en fagurfræðingar geta einnig
fjallað um umhverfi og náttúru,“
segir hún og heldur áfram. „Fagur-
fræðingar starfa oftar en ekki við
kennslu og rannsóknir, oft í nánum
tengslum við menntastofnanir á
sviði lista, en þá er einnig að finna
innan heimspekideilda í háskólum
og úti í samfélaginu eins og gengur
og gerist um menntað fólk á sviði
hugvísinda.“
Margrét Elísabet segir spurn-
inguna um hvar hönnun og list
skarist frekar erfiða „Við
getum sagt að á tuttug-
ustu öldinni hafi reglulega
komið fram bæði hönnuð-
ir og listamenn sem hafa
viljað tengja þetta tvennt
saman. Nærtækasta
dæmið er auðvitað Bau-
haus-skólinn sem starfaði
í Þýskalandi á fjórða ára-
tug aldarinnar og skól-
ar í Bandaríkjunum sem
byggðu á svipaðri hug-
myndafræði. Þekktastur
þeirra er líklega Black
Mountain College sem
dró til sín kennara frá Bauhaus en
færri vita kannski að áhrifa þaðan
gætir einnig í MIT-tækniháskólan-
um sem hefur lagt sig fram við að
brúa bilið milli hönnunar, tækni,
lista og vísinda.“
En er einhver munur á hönnun
og list og svo nytjalist? „Þótt
ýmsir hafi reynt að má út mörkin
milli hönnunar og listar má segja
að aðgreiningin lifi enn ágætu lífi.
Til að einfalda málið er nytjalist
það sama og hönnun, sem fæst við
að búa til fallega nytjahluti fyrir
manngert umhverfi, hluti sem eru
fjöldaframleiddir áður en þeir eru
settir á markað. Listin er yfirleitt
ekki búin til fyrir einhvern sér-
stakan og kemur ekki að neinum
notum. Þegar um er að
ræða myndlist getum
við sagt að hún hafi þá
sérstöðu að ganga kaup-
um og sölum á markaði
sem byggir verðmætamat
sitt á fágæti.“
Hefur almenningur
vit eða auga fyrir hönn-
un eða list? „Ég held að
almenningur sé oft mjög
illa að sér um hönnun og
listir. Ástæðan fyrir því
er einföld, bæði lista- og
hönnunarsögu er lítið
sinnt í skólakerfinu.“
Nú finnst manni stundum að
nánast hvað sem gert er, fái merki-
miðann hönnun, er ekki stundum
svolítið verið að gera lítið úr
alvöruhönnun? „Jú, það finnst
mér.“
Getur fagurfræðingur hjálpað
fólki við hönnun heimila sinna eða
ráðlagt því á einhvern hátt? „Nei,
það getur hann ekki!“
Málþingið er haldið af Hönnunar-
miðstöð Íslands í samstarfi við
Listasafn Reykjavíkur og hefst
klukkan 20 í Hafnarhúsinu í kvöld.
- uhj
Aðgreiningin lifir
Hvar mætast list og hönnun? er umfjöllunarefni sem tekið verður fyrir á málþingi í Hafnarhúsinu í dag
klukkan 20. Margrét Elísabet Ólafsdóttir fagurfræðingur er ein þeirra sem flytja erindi.
Gott dæmi um nytjalist. Sítrónupressur
frá Alessi.
SORPA býður upp á fræðsluferðir fyrir grunnskóla og leikskóla
á höfuðborgarsvæðinu. Markmið fræðslunnar er að nemendurnir
kynnist því hvað verður um ruslið þeirra. www.sorpa.is
Ný íslensk bretti undir fartölvur,
dagblaða- og bókastandar fram-
leiddir af Múlalundi.
Markaðssetning er hafin á nýrri
íslenskri hönnunar- og fram-
leiðslulínu, sem er sniðin að þörf-
um þeirra sem nota fartölvur dag-
lega, og samanstendur
af brettum undir
fartölvur og
dag-
blaða-
og bókastöndum.
Vörurnar eru framleiddar í
Múlalundi og eru hannaðar af Ástu
Kristrúnu Ragnarsdóttur í nánu
samráði við lækna og iðjuþjálfa.
NEMA-tölvubrettunum er ætlað
að stemma stigu við hættunni sem
líkamanum stafar af þeim algenga
notkunarmáta að setja tölvuna í
kjöltu sér án nokkurrar varnar.
Auk þess að búa yfir geislavörn
færa brettin notandanum á sama
tíma aukin þægindi og leiða til
ákjósanlegri líkamsbeitingar. Ásta
Kristrún, náms- og starfsráð-
gjafi, hefur
unnið
með
náms-
mönnum
um þrjá-
tíu ára skeið.
Reynsla hennar á þeim
vettvangi varð til þess að hún hófst
handa við hönnun á forvarnarbún-
aði fyrir námsfólk.
Forvarnarbúnaður
fyrir námsfólk
Brettin búa yfir geislavörn og er ætlað að leiða til ákjósanlegri líkamsbeitingar.
Margrét Elísabet Ólafsdóttir telur að almenningur sé oft mjög illa að sér um hönnun og listir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sjöan eftir Arne
Jacobsen.
!
"#$%
&'( )* +
,-%,.,/,-%,.,0&