Fréttablaðið - 08.10.2009, Síða 58
8. október 2009 FIMMTUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 8. október
➜ Tónleikar
12.30 Kristín R.
Sigurðardóttir
sópran og Juli-
an M. Hewlett
píanóleikari flytja
íslensk og erlend
lög og aríur á tón-
leikum í Norræna
húsinu við Sturlu-
götu.
21.00 Friðrik Ómar og Jógvan
Hansen flytja íslensk og færeysk dægur-
lög á tónleikum á Græna hattinum við
Hafnarstræti 96 á Akureyri.
21.00 Bebop-kvöld með Ómari Guð-
jónssyni verður haldið í jazzkjallaranum
í Café Cultura að Hverfisgötu 18. Með-
leikarar hans eru Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson og Helgi Sv. Helgason.
22.00 Hljómsveitin Gordon Riots
heldur útgáfutónleika á Dillon Rockbar
við Laugaveg.
22.00 Anna Mjöll Ólafsdóttir verður
með jazztónleika ásamt hljómsveit á
Kringlukránni í Kringlunni.
➜ Opnanir
18.00 Hjá Listasafni Árnesinga við
Austurmörk í Hveragerði verða opnar
tvær sýningar.
Þræddir þræðir: samsýning Ásgerðar
Búadóttur, Hildar Hákonardóttur, Guð-
rúnar Gunnarsdóttur og Hildar Bjarnda-
dóttur.
Einu sinni er: sýning Handverks og
hönnunar þar sem þemað er „gamalt
og gott“.
➜ Heimildarmyndir
20.00 Heimildarmyndin „Dreymt og
upplifað, Knut Hamsun 1852-1952“
eftir norska leikstjórann Knut Erik Jen-
sen verður sýnd í Norræna húsinu við
Sturlugötu. Enginn aðgangseyrir.
16.00 Í Bókasafni Seltjarnarness
í Eiðstorgi verða sýndar kvikmyndir
Snæbjörns Ásgeirsson sem hann tók á
nesinu. Myndirnar sýna 100 ára afmæli
Mýrarhúsaskóla, 17. júní skemmtanir og
Björgunasveitina Albert.
➜ Síðustu forvöð
Hópur listamanna hefur opnað
sýninguna „Lýðveldið við lækinn“ í
húsnæði gömlu ullarverksmiðjunn-
ar í Þrúðvangi við Varmá í Álafoss-
kvos. Sýningunni lýkur á sunnudag-
inn. Opið alla daga kl. 14-18.
➜ Námskeið
20.00 Fjallahjólaklúbburinn býður upp
á ókeypis námskeið þar sem Magnús
Bergsson verður með leiðsögn og ræðir
um vetrarundirbúning og hjólreiðar í
vetrarfærð. Fólk er hvatt til að mæta
með hjólin sín og boðið verður upp á
ráðleggingar á yfirferð á gíra og bremsa.
Námskeiðið er ókeypis og fer fram á
baðstofuloftinu að Brekkustíg 2 (gömlu
slökkviliðsstöðinni).
➜ Kvikmyndir
Japönsk kvikmyndavika í boði Kvik-
myndasafns Íslands og Sendiráðs Jap-
ans á Íslandi stendur til 10. okt. Sýning-
ar fara fram í Bæjarbíói við Strandgötu í
Hafnarfirði. Nánari upplýsingar á www.
kvikmyndasafn.is. Aðgangur er ókeypis.
20.00 Sýnd verður kvikmynd leik-
stjórans Yuji Nakae, „Ástir Nabbie“
(Nabbie no koi) frá árinu 1999.
➜ Pub quiz
20.00 Fótbolta Pub quiz Sammarans
verður haldið á Enska barnum við
Austurstræti 12. Enginn aðgangseyrir og
vegleg verðlaun.
➜ Fundir
20.00 Aðalfundur Félags um foreldra-
jafnrétti verður haldinn að Árskógum
4 (jarðhæð) þar sem farið verður yfir
stöðu foreldrajafnréttismála á Íslandi.
➜ Málþing
20.00 Í Listasafni Reykjavíkur munu
Andrea Maack, Þorvaldur Þorsteinsson,
Guðmundur Oddur Magnússon og Mar-
grét Elísabet Ólafsdóttir fjalla um það
hvar list og hönnun mætast. Umræður
verða í lokin.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Karl Ingólfsson heldur fyrirlestur
um vistakstur í Norræna félaginu við
Óðinsgötu 7. Enginn aðgangseyrir og
allir velkomnir.
12.00 Mark Weiner flytur erindi um
uppruna og byggingu stjórnarskrár
Bandaríkja Norður-Ameríku hjá Háskól-
anum á Akureyri, Sólborg, (L201) við
Norðurslóð.
20.00 Yvon le Maho flytur fyrirlestur-
inn „Hvernig takast mörgæsir á við
umhverfisógnir og loftslagsbreyt-
ingar?“ hjá Alliance Française
við Tryggvagötu 8. Aðgangur er
ókeypis og allir eru velkomnir.
Nánari upplýsingar á www.af.is.
Upplýsingar um viðburði
sendist á hvar@frettabladid.is
Annað kvöld er frumsýning í Nemenda-
leikhúsi Listaháskóla Íslands. Verkið er nú
sett upp í þriðja sinn hér á landi en hefur
löngum verið talið eitt öndvegisverk rúss-
neskra leikbókmennta: Eftirlitsmaðurinn
eftir Gogol.
Þetta er fyrsta verkefni útskriftarhópsins á loka-
ári: Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Hilmar Guð-
jónsson, Hilmir Jensson, Lára Jóhanna Jónsdóttir,
Svandís Dóra Einarsdóttir, Þórunn Arna Kristjáns-
dóttir og Ævar Þór Benediktsson fara á næsta vori
út í lífið.
Það er engu logið um að verkið er mögnuð háðs-
ádeila. Nú er það leikið í nýrri þýðingu Bjarna Jóns-
sonar, leikritahöfundar og þýðanda.
Leikritið Eftirlitsmaðurinn gerist í lítilli borg þar
sem spillingin er allsráðandi. Ráðamenn mergsjúga
þegnana og samfélagið líður fyrir græðgi og lágar
hvatir þeirra sem deila og drottna. Mútur og svik
eru daglegt brauð. Því verður uppi fótur og fit þegar
fréttist að mættur sé á svæðið eftirlitsmaður frá
Pétursborg til að taka út stjórnsýsluna. Í öllu upp-
náminu fer hin makráða stétt villur vegar: hún telur
eftirlitsmanninn vera aðkomumann sem sestur er
upp í bænum en sá er á flótta undan réttvísinni,
spilafífl og raupari, hrappur í fínum fötum. Úr verð-
ur krassandi flétta þar sem allt er lagt í sölurnar
til að bjarga eigin skinni og koma sér í mjúkinn hjá
hinum grunaða eftirlitsmanni.
Gogol hefði orðið 200 ára í ár en er svo sannar-
lega sígildur í bestu merkingu þess orðs. Hann er
talinn til höfuðskálda Rússa og leikritið Eftirlits-
maðurinn er álitið þjóðargersemi þar í landi. Þekkt-
asta skáldsaga hans er vafalaust Dauðar sálir sem
kunn er í íslenskri þýðingu.
Leikstjóri er Stefán Jónsson, leikmynd er í hönd-
um Móeiðar Helgadóttur, Myrra Leifsdóttir sér
um búninga og gervi, tónlist er samin af Margréti
Kristínu Blöndal sem kunnari er sem Magga Stína,
en hún stundar nú nám í tónsmíðum í LHÍ, og lýsing
er í höndum Mika Haarinen, skiptinema í LHÍ.
Frumsýning á Eftirlitsmanninum er á morgun og
verða sýningar í Smiðjunni á Sölvhólsgötu en í vetur
verða þrjár sýningar í Smiðjunni. pbb@frettabladid.is
Eftirlitsmaðurinn
er mættur hingað
LEIKLIST Hver er í alvörunni og hver er að þykjast? Mjúkir
en sjúkir litir í búningum, förðum og ljósi. Myndin er tekin á
æfingu í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blandaður kór auglýsir eftir karlröddum
Æfi ngar á mánudagskvöldum.
Hafi ð samband 898-5068 majasigrun@gmail.com
eða 661-7289 gulliberg@vortex.is
Tilboðsmatseðill fyrir leikhúsgesti.
Tilvalið fyrir stóra sem smáa hópa!
Kringlukráin • Kringlunni 4-12 • 103 Reykjavík
Sími:568 0878 • www.kringlukrain.is
Við erum stolt af að geta
boðið gestum okkar að sjá
og heyra þessar goðsagnir
íslensks skemmtanalífs
og hvetjum því allt
lífsglatt og sprækt fólk
til að láta þetta ekki
fram hjá sér fara!
Ómar
Ragnarsson
Þuríður
Sigurðardóttir
Stórdans-
leikur um
helgina!
Lúdó &
Stefán
Ath.
aðeins
þessa
einu
helgi!!