Fréttablaðið - 08.10.2009, Page 62
46 8. október 2009 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Íslensk kvikmyndagerð
er í mikilli hættu að mati
forsvarsmanna atvinnu-
greinarinnar ef boðaður
niðurskurður í fjárlaga-
frumvarpi ríkisstjórnar-
innar verður að veruleika.
Hátt í hundrað störf munu
glatast og veltan getur
dregist saman um rúma tvo
milljarða.
Ari Kristinsson, formaður Sam-
taka íslenskra kvikmyndafram-
leiðanda, og Baltasar Kormákur
gengu á fund menntamálaráðherr-
ans Katrínar Jakobsdóttur á þriðju-
dagsmorgun og kynntu henni tölur
úr kvikmyndaiðnaðinum. Ari viður-
kennir að þeir hefðu auðvitað átt
fyrir löngu að vera búnir að safna
saman þessum upplýsingum; þær
hafi ekki legið fyrir áður og því hafi
ekki verið hægt að kynna sér þær.
Hann hefur fulla trú á því að þegar
menn sjái þetta svona svart á hvítu
snúist þeim hugur. „Við höfum alltaf
talið okkur hafa svo góðan málstað
að verja og héldum að allir töluðu
okkar máli þannig að það þyrfti ekk-
ert að fara út í svona reikninga.“
Tölurnar sem Ari vísar til eru
nokkuð forvitnilegar. Síðustu tvö
ár hefur ársvelta sjónvarps- og
kvikmyndaiðnarins numið rúmum
þrettán milljörðum íslenskra króna
og hann hefur skapað vel yfir sex
hundruð störf. Árið 2008 velti
íslenski kvikmyndaiðnaðurinn 6,6
milljörðum samkvæmt bráðabirgða-
tölum og skapaði þrjú hundruð störf.
Í ár er gert ráð fyrir að veltan í
íslenskri sjónvarps- og kvikmynda-
gerð verði 6,8 milljarðar og þegar
árið er á enda muni 320 manns hafa
haft atvinnu af því að starfa við sjón-
varps-og kvikmyndaframleiðslu.
Ari segir að veltan í kvikmynda-
bransanum muni dragast saman um
2,3 milljarða og að hátt í hundrað
störf muni glatast ef niðurskurður-
inn verður að veruleika. Ef allt það
fólk sem muni missa vinnuna fari
síðan á atvinnuleysisbætur muni
ríkið hvort eð er greiða þeim jafn-
háa upphæð og skorin verður niður.
„Í menningarmálum er skorið niður
um rúmlega þrjú hundruð milljónir
samkvæmt þessu fjárlagafrum-
varpi og þeir hafa farið þá leið að
skera niður sjóði í stað stofnana.
Mér þykir það gott og gilt að ekki sé
skorið verulega niður í menningar-
málum en mér finnst frumvarpið
sýna atvinnugreininni óvirðingu,“
segir Ari. Hann tekur fram að nið-
urskurðurinn sé enn ekki orðinn að
veruleika og hann reiknar fastlega
með að einhverjar breytingar verði
gerðar. Hann segir að óvænt sam-
staða hafi skapast innan atvinnu-
greinarinnar, aðilar innan brans-
ans sem hafi kannski ekki ræðst
við í áratugi tali nú saman og mikill
hugur sé í mönnum. „Við höfum
þjappað okkur saman og ætlum að
kynna okkar málstað,“ segir Ari.
Hann segir að með þátttöku
erlendra sjóða geti fjórar til fimm
íslenskar kvikmyndir í fullri lengd
orðið að veruleika á ári og fjórar
leiknar sjónvarpsþáttaraðir. Ef
framlag Kvikmyndasjóðsins minnki
hafi það veruleg áhrif á möguleika
íslenskra leikstjóra á að ná í styrki
erlendis. Framlag íslenska ríkisins
sé kannski ekki mikið en ákaflega
mikilvægt og raunar frumforsendan
fyrir því að verkið fari af stað. „Og
það sem meira er, ef þetta verður
raunin er nánast ómögulegt fyrir
unga leikstjóra að koma verkum
sínum á framfæri,“ útskýrir Ari
og tekur fram að íslenska ríkið tapi
ekkert á því að styrkja íslenska
kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinn.
„Nei, ríkið fær engan bakreikning
ef verkið gengur illa heldur lendir
það allt á framleiðandanum. Við telj-
um okkur því vera hagstæða stærð
og viljum að það sé komið fram við
okkur eins og hina.“
freyrgigja@frettabladid.is
Sá orðrómur hefur lengi verið á
kreiki að til stæði að gera bíó-
mynd eftir sjónvarpsþáttunum
Arrested Development. Kvik-
myndavefsíða Empire greinir
frá því í gær að nú sé þetta
endan lega komið á hreint; kvik-
myndin verði að veruleika.
Handritshöfundurinn og leik-
stjórinn Mitch Hurwitz er sest-
ur niður og byrjaður að skrifa
handritið en hann er hugmynda-
smiðurinn á bak við þessa þætti
sem hafa notið mikilla vinsælda
um heim allan, þar á meðal á
Íslandi.
Samkvæmt vefsíðu Empire
hafði Hurwitz lýst því yfir
að kvikmyndin kæmi ekki til
greina nema allur leikhópurinn
samþykkti að taka þátt. Hann
samanstendur af Jason Bateman,
Will Arnett, Portiu De Rossi,
Michael Cera, Jessicu Walter,
Jeffrey Tambor, Tony Hale,
Aliu Shawkat og David Cross.
Upphaflega var talið, þótt það
hefði ekki fengist staðfest, að
fyrirætlanirnar myndu stranda
á Michael Cera enda hefur hann
náð töluverðum árangri á hvíta
tjaldinu eftir að þættirnir voru
sýndir. Hann virðist þó hafa
tíma til að leika í myndinni og
aðdáendur þáttanna geta því
varpað öndinni léttar.
Þótt Arrested Development
hafi náð töluverðri hylli meðal
gagnrýnenda var ákveðið að slá
þáttaröðina af eftir aðeins þrjár
seríur þrátt fyrir að hún væri
margverðlaunuð. Áhorfið reynd-
ist ekki vera sem skyldi.
Blaðamaður Empire skrifar að
vonandi muni framleiðslufyrir-
tækið Fox Searchlight koma
betur fram við þessa skrítnu fjöl-
skyldu en sjónvarpsfyrirtækið.
Talið er að Ron Howard muni
tala inn á myndina sem þulur.
Þrátt fyrir að gagnrýnendur beggja
vegna Atlantshafsins hafi slátr-
að mynd númer tvö hefur Holly-
wood þann háttinn á að horfa ekki
á gagnrýni heldur hvort mynd skili
gróða eður ei. Og Transformers
tvö skilaði svo sannarlega gróða því
hún er önnur tekjuhæsta kvikmynd-
in á þessu ári, en nær auðvit-
að ekki Harry Potter sem er
ókrýndur konungur kvik-
myndahúsanna um þessar
mundir.
Af þeim sökum hefur
leikstjórinn Michael Bay til-
kynnt að mynd númer þrjú
verði sett í framleiðslu. Ekki
hefur verið staðfest að stjarna
myndarinnar, Megan Fox, snúi
aftur en henni og Bay sinnaðist
eitthvað í kringum frumsýningu
síðustu myndar. Shia LaBeouf
hefur heldur ekki gefið grænt ljós
á sína nærveru en telja má ólíklegt
annað en að þau tvö láti tilleiðast.
Ekki nema Megan Fox vilji að
Paris Hilton hrifsi af henni hlut-
verkið en hótelerfinginn hefur
látið í ljós áhuga sinn á því að
leika í myndinni. Vonandi, fyrir
aðdáendur Transformers, verður
slíkur gjörningur aldrei að veru-
leika.
Transformers 3 verður til
KLÁR Í SLAGINN
Michael Bay ætlar
að leikstýra mynd
númer þrjú um
Transformers.
Hvort Megan
Fox snúi aftur er
hins vegar óvíst.
Eins og kom fram í fjölmiðlum er gert
ráð fyrir að Mark Wahlberg leiki aðal-
hlutverkið í endurgerðri og staðfærðri
útgáfu af Reykjavík-Rotterdam.
Baltasar Kormákur mun leikstýra
en Working Title framleiðir
myndina. Áður en að því kemur
hefur Wahlberg í nógu að snú-
ast en ferill þessa geðþekka
leikara hefur ekki alltaf verið
dans á rósum.
Mark Wahlberg er fæddur í Dor-
chester í Massachusetts á því herr-
ans ári 1971. Hann komst snemma í
kast við lögin og hlaut nokkra dóma
fyrir smávægileg afbrot. Hann reyndi
fyrst fyrir sér sem tónlistarmaður
undir nafninu Marky Mark enda var
eldri bróðir hans, Donny Wahlberg, í
hinni ofurvinsælu drengjasveit New
Kids on the Block. Mark reyndist vera
ágætis leikari og lét fyrst að
sér kveða í Di Caprio-mynd-
inni Basketball Diaries. Í
kjölfarið komu kvikmyndir á
borð við Boogie Nights, The
Big Hit og Three Kings.
Ferill Wahlbergs hefur
verið skrykkjóttur; sumar
bíómyndir hans hafa verið
hálfgert drasl en hann náði
ákveðnu hámarki með
frammistöðunni
í The Departed
eftir Martin
Scorsese.
Wahlberg
hefur þó yfirleitt
haft í nógu að
snúast, hann er
einn framleiðenda hinnar vinsælu sjón-
varpsþáttaraðar Entourage og leikur
eitt aðalhlutverkanna í næstu kvik-
mynd Peters Jackson, The Lovely
Bones. Þá er í bígerð framhald af
The Italian Job sem nefnist The
Brazilian Job og svo leikur hann
á móti Christian Bale í kvikmynd-
inni The Fighter. - fgg
Nóg að gera hjá Mark Wahlberg
MIKLAR ANNIR Hún er
þéttskipuð dagskráin hjá
Mark Wahlberg en hann
leikur meðal annars eitt
aðalhlutverkanna í The
Lovely Bones eftir Peter
Jackson.
Bíómyndin staðfest
Á HVÍTA TJALDIÐ
Fjölskyldan í Arrested
Development mun
rata á hvíta tjaldið því
allir leikararnir hafa
samþykkt að vera
með. Jason Bateman
verður því á sínum
stað.
> ENDURGERIR BRONSON
Sylvester Stallone hyggst
endur gera Charles Bronson-
kvikmyndina Death Wish.
Ekki er vitað hvernig Bron-
son-aðdáendur taka í
þessa frétt en Sly fór
ákaflega illa með endur-
gerð Get Carter sem Mi-
chael Caine gerði ódauð-
lega.
Milljarðar tapast og
hundrað störf glatast
HRUN
Kvikmyndir á borð við Algjöran Sveppa,
Guð Blessi Ísland, The Good Heart og Brúð-
gumann hafa allar notið góðs af kvikmynda-
sjóðnum. Ef boðaður niðurskurður verður
að veruleika mun íslensk kvikmyndagerð
dragast verulega saman, um hundrað störf
glatast og milljarðar tapast.
Ósykrað
Hollur barnamatur fyrir 6 mánaða og eldri
www.barnamatur.is
Fjölbreytt og gott
veganesti fyrir lífið