Fréttablaðið - 08.10.2009, Page 72
56 8. október 2009 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Framtíð framherjans
Marels Baldvinssonar hefur verið
í umræðunni síðustu daga. Samn-
ingur hans við Val rennur út um
áramótin og hann hefur þegar
verið orðaður nokkuð sterklega
við Stjörnuna.
„Ég veit ekki hvað verður. Ég á
eftir að hitta Valsmenn að máli og
ræða við þá um framtíðina. Ég hef
ekki rætt við önnur félög. Ég mun
fyrst heyra hljóðið í Valsmönnum
áður en ég skoða annað. Ég mun
hitta þá í vikunni. Það er best að
fá þessa hluti á hreint sem fyrst,“
sagði Marel sem hefur þegar rætt
við nýjan þjálfara Valsmanna,
Gunnlaug Jónsson.
„Við áttum ágætt spjall þar sem
hann sagðist meðal annars vilja
halda mér hjá félaginu,“ sagði
Marel en það er þá stjórnarinnar
að ganga frá nýjum samningi við
framherjann.
Marel var einn fjölmargra leik-
manna Vals sem ollu miklum von-
brigðum í sumar. Sjálfur byrjaði
hann ágætlega en síðan fjaraði
undan leik hans eins og flestra
leikmanna liðsins.
„Þetta var svo sannarlega mikið
vonbrigðasumar. Það var alls ekki
lagt upp með þetta fyrir tímabil-
ið. Ég geri því ráð fyrir miklum
breytingum á Hlíðarenda eins og
hefur mátt sjá í fjölmiðlum. Ég hef
engar sérstakar skýringar á þessu
gengi okkar en þarna var fullt af
hæfileikaríkum fótboltamönnum
sem náðu bara ekki saman.“ - hbg
Samningur Marels Baldvinssonar við Val rennur út um áramótin:
Gunnlaugur vill halda mér hjá Val
MAREL BALDVINSSON Mun ræða við Valsmenn í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Miðjumaðurinn Stein-
þór Freyr Þorsteinsson hjá
Stjörnunni sló eftirminnilega í
gegn í sumar.
Eftir að hafa verið efnilegur
leikmaður hjá Breiðabliki
blómstraði Steinþór í bláa bún-
ingnum. Hann var líklega besti
maður Íslandsmótsins á meðan
hann var heill heilsu og leik-
ur Stjörnuliðsins hrundi þegar
hann meiddist.
Steinþór hefur eðlilega vakið
athygli eftir sumarið og skoðar
nú sína möguleika.
„Hugurinn stefnir út. Því
er ekki að neita. Ég er að láta
skoða möguleika í þeim efnum
og vonandi kemst ég eitthvert
á reynslu næstu vikur,“ sagði
Steinþór í samtali við Frétta-
blaðið í gær.
Hann hefur verið orðaður við
lið hér heima og þar á meðal sitt
gamla félag Breiðablik.
„Ég veit ekki hvaðan það
kemur. Það er ekkert til í því.
Ef ég verð hér heima leik ég
líklegast áfram með Stjörnunni
þar sem ég er samningsbund-
inn. Maður veit samt aldrei með
framtíðina enda er ég Bliki,“
segir Steinþór.
- hbg
Steinþór Freyr Þorsteinsson Stjörnumaður:
Hugurinn stefnir út
FYRIRLIÐI FÓTBOLTALEIKJANNA ER LENDIR 01.10.09
10. HVERVINNUR!
FULLT AF AUKAVINNINGUM
TÖLVULEIKIR · DVD MYNDIR · FULLT AF PEPSI MAX OG MARGT FLEIRA!
Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 199 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
FÓTBOLTI Gunnleifur Gunnleifsson
gerði í gær þriggja ára samning
við FH en hann hafði verið á mála
hjá HK síðan 2002. Félögin hafa átt
í viðræðum undanfarnar vikur en
Fréttablaðið greindi frá því í síð-
ustu viku að þetta stæði til.
FH tilkynnti um leið að Daði
Lárusson hefði verið leystur undan
samningi en hann hefur verið aðal-
markvörður félagsins undanfarin
fjórtán ár.
„Eftir að það var ljóst að ég
yrði ekki áfram í HK ræddi ég við
nokkur félög,“ segir Gunnleifur.
„Ég gerði mér snemma grein fyrir
því að ég vildi fara til FH. Ég var
þó samningsbundinn HK og þurftu
félögin að ræða þetta sín á milli.
Þeim tókst að finna lendingu og er
ég afar þakklátur fyrir það. Það
tók svo ekki langan tíma fyrir mig
að ganga frá samningi við FH.“
Hann segist afar spenntur fyrir
því að hefja æfingar með sínu nýja
félagi. „Ég er fullur eldmóðs að
byrja enda er FH frábært félag í
alla staði. Ég hef bara heyrt góða
hluti um félagið og ég er gríðar-
lega spenntur fyrir þessu.“
Gunnleifur er 34 ára gamall en
er óhræddur við að skuldbinda sig
í þrjú ár til viðbótar. „Mér finnst
að ég eigi enn eftir mín bestu ár
í boltanum – ég er rétt að byrja,“
segir hann í léttum dúr.
Hann hefur verið aðalmark-
vörður íslenska landsliðsins und-
anfarið ár og stefnir á að halda
sínu sæti í landsliðinu. Ólaf-
ur Jóhannes son landsliðsþjálf-
ari sagði í síðasta mánuði að það
væri viðbúið að hann gæti ekki
valið Gunnleif áfram ef hann spil-
aði í næstefstu deild hér á landi.
Því kom það fáum á óvart að hann
skyldi ákveða að yfirgefa HK.
„Fyrir mér er íslenska landsliðið
toppurinn. Það er því mjög skiljan-
legt að ég þurfti á alvöru áskorun
að halda og vera í því besta
umhverfi sem hægt er hverju
sinni. Sú ákvörðun að fara til FH
er þáttur í því,“ segir Gunnleifur.
„En ég skil við HK í góðu enda
ekki annað hægt. HK er minn
klúbbur og þar ólst ég upp. Ég hef
gefið af mér til félagsins af lífi og
sál og á því einnig margt að þakka.
Þarna á ég marga vini og ég verð
tíður gestur á leikjum HK í fram-
tíðinni. Ég vona svo innilega að ég
fái tækifæri til að spila við HK í
efstu deild sem allra fyrst.“
eirikur@frettabladid.is
Á enn eftir mín bestu ár
Gunnleifur Gunnleifsson gerði í gær þriggja ára samning við Íslandsmeistara
FH. Um leið hætti Daði Lárusson hjá félaginu eftir fjórtán ára veru hjá FH.
GUNNLEIFUR GUNNLEIFSSON Hér í leik með íslenska landsliðinu en hann hefur verið aðalmarkvörður Íslands undanfarið ár.
Hann er nú genginn í raðir FH. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Daði Lárusson og for-
ráðamenn FH komust að sam-
komulagi í gær um að Daði yrði
leystur undan samningi sínum
við félagið. Hann hefur verið
aðalmarkvörður félagsins í fjór-
tán ár en koma Gunnleifs Gunn-
leifssonar breytti hans stöðu.
„Ég átti ár eftir af mínum
samningi og hefði kosið að klára
hann. En þeir tóku þessa ákvörð-
un og ég varð að sætta mig við
hana,“ sagði Daði. „En þetta er
allt gert í mesta bróðerni þó að
þetta sé vissulega pínu súrt.
Þetta eru skrítnir tímar.“
Hann segir að þetta hafi ekki
komið sér í opna skjöldu. „Þetta
hefur verið í umræðunni undan-
farnar vikur og fréttirnar komu
því ekki eins og þruma úr heið-
skíru lofti. Ég er einfaldlega ekki
hannaður til bekkjarsetu og það
sagði ég stjórninni. Það var því
niðurstaðan að ég færi.“
Daði er ekki byrjaður að ræða
við önnur félög en ætlar sér að
vera áfram í efstu deild. „Ég á
nóg inni og ætla mér að vera í
fremstu röð markvarða á næstu
árum. Ég mun ekki gefa tommu
eftir.“ - esá
Daði Lárusson á leið frá FH eftir fjórtán ára veru:
Vissulega pínu súrt