Fréttablaðið - 08.10.2009, Page 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
Í dag er fimmtudagurinn 8.
október 2009, 280. dagur ársins.
7.57 13.15 18.32
7.45 13.02 18.13
Það getur reynst erfitt að breyta út af vananum. Við erum gjörn
á að hjakka í sama hjólfarinu og
sitja sem fastast í þeim aðstæð-
um sem við þekkjum best, jafn-
vel þó að þær aðstæður séu ekki
endilega þær bestu og breytinga
væri þörf. Í þessu venjulega felst
ákveðið öryggi . Þó að okkur tak-
ist stundum að hrista upp í hlutun-
um og breyta tímabundið til er til-
hneigingin til að falla aftur í sama
farið rík.
ÞETTA á við um svo margt, bæði
um hversdagslega hluti og þá sem
skipta sköpum. Heimili mitt var
til dæmis um tíma sjónvarpslaust.
Það tók mig dálítinn tíma að venj-
ast því, en þegar ég hafði lært að
meta þá ró sem fylgdi í kjölfarið
saknaði ég þess ekki neitt. Ég sá
meira að segja fyrir mér, þegar
sjónvarpssendingar næðust aftur,
að kveikja hreinlega ekkert á sjón-
varpinu, nema kannski rétt til að
horfa á fréttir. Það gekk þó ekki
eftir. Tækið hefur malað daginn
út og daginn inn, síðan það komst
aftur í gagnið.
HVER hefur ekki ætlað sér að taka
upp heilbrigðari lífsstíl? Hætta
að láta ofan í sig óhollustu og að
hreyfa sig meira. Leggja bílnum og
ganga, drekka vatn og borða fisk,
fara fyrr að sofa og þar fram eftir
götunum. Mörgum hefur meira að
segja reynst þrautin þyngri að láta
af slæmum vana þrátt fyrir að sá
ávani gæti farið með þá í gröfina
verði ekkert að gert. Það er hæg-
ara sagt en gert að laga sig að
nýjum aðstæðum og fylgja þeim
eftir.
VINSÆLDIR ríkisstjórnarinnar
hafa hrunið síðan hún tók við völd-
um, eins og hún byrjaði vel. Fólk
sá fram á breyttar áherslur með
stjórnarsamstarfi sem ekki hafði
verið áður reynt. Öðrum kimum
samfélagsins yrði nú loksins gef-
inn gaumur í fyrsta sinn í langan
tíma.
EN stjórnin tók við á erfiðum
tímum og nú er fólk orðið óþreyju-
fullt, hún riðar til falls og það
hlakkar í hægrimönnunum sem
sögðu vinstri öflin aldrei geta
valdið þeim verkefnum sem fram
undan væru.
GÆTI það verið að eftir ein-
ungis stutt hlé frá völdum taki
Sjálfstæðis flokkurinn aftur við
taumunum og sama stjórnar-
mynstrið sem fólk barði sig frá síð-
asta vetur, sendi þá þjóðina beint
aftur í sama farið?
Aftur í sama
farið?