Iðnneminn


Iðnneminn - 01.09.1949, Side 13

Iðnneminn - 01.09.1949, Side 13
i5, slíkt væri varla hægt að telja eðlilegt. Ég átti þess kost að fylgjast með stofnun sambandsins og starfi þess fyrstu 4 árin. Starf- semi sambandsins hefur verið ótrúlega mikil og væri freist- andi að geta hér alls þess helzta, sem gert hefur verið á vegum þess, en þess er enginn kostur. Ég vil þó minnast á þrjú atriði, sem ég tel skipta mestu máli. Það fyrsta, sem samband- ið tók fyrir var að vinna að breyttri iðnnámslöggjöf. Á sama ári og sambandið var stofnað var skipuð nefnd til að endur- skoða lög um iðnnám. í árs- byrjun 1945 kallaði stjórn I.N. S.í. saman aukaþing til að ræða og gera tillögur um breytingar á löggjöfinni. Iðnnemasamtök- in voru einu samtökin, sem létu sig verulega skipta breytingar á lögunum- Ný iðnfræðslulög hafa verið afgreidd frá Alþingi. — Löggjöf, sem boðar á marg- an hátt nýtt iðnnám. Með þessu er eitt helzta baráttu mál iðn- nema að sinni farsællega til lyktar leitt. „En betur má, ef duga skal.“ Kröfur um dag- skóla, um verknámsskóla og ríkisrekstur iðnskóla, eru kröf- ur, sem enn eru ófengnar og áfram skal barizt fyrir. Eins og oft hefur verið getið um áður, eru félagssamtök á vissan hátt skóli. Iðnnemasam- tökin eru skóli, sem hefur þroskandi áhrif á meðlimi sína — þeir verða færari til félags- legra starfa í framtíðinni, enda hefur það sýnt sig nú þegar, því margir af forustumönnum ýmissa félaga og félagssamtaka hafa fengið sinn félagslega skóla innan iðnnemasamtak- anna. Fræðslustarfsemi hefur verið stór þáttur í starfi sam- bandsins og hefur vakið mikla athygli. Þriðja atriðið, er ég vil nefna er upplýsinga- og aðstoðar- starfsemi sambandsins. Sú starf semi hefur vakið mikla ánægju meðal iðnnema og hefur sam- bandið rétt hag fjölda þeirra með starfsemi þessari. Á s. 1. ári mun láta nærri, að sam- bandið hafi afgreitt nálægt 100 deilumál milli meistara og nem- anda. Þetta sýnir glöggt það traust, sem iðnnemar bera til samtaka sinna. Ég er sannfærður um, að sá grundvöllur, sem lagður var að sambandinu, þ. e. skipulag sam- takanna, hafi verið það rétta, og það sannar starf I.N.S Í. s. 1. fimm ár. Samtökin hafa farið sigurför þessi fáu ár. Samtökum iðnnema hefur verið brigzlað um stjórnmála- togstreitu (um pólitík). Þeir ein- ir, sem það hafa gert, hafa á vissum tímum gert tilraunir til að hafa stjórnmálaleg áhrif á starfsemi samtakanna, en sam- tök íslenzkra iðnnema hafa á viðeigandi hátt úthýst slíka skemmdarvarga, og það vona ég að iðnnemasamtökin geri svo um alla framtíð. Iðnnemar gera sér Ijóst, að margar hætt- ur steðja að hinum ungu sam- tökum sínum, og þess vegna verða þeir að standa vörð um þetta unga óskabarn íslenzkrar iðnaðaræsku. Formannafnndurinn á Akranesi Annar formannafundur I.NS. í. var haldinn á Akranesi dag- ana 2. og 3. júlí síðastl. Mættu þar 17 fulltrúar frá 13 félögum. Formaður sambandsins setti fundinn með ýtarlegri ræðu, rakti störf stjórnarinnar á ár- inu og benti á, hvað framundan væri. Á fundinum ríkti mjög sterk samheldni og eining um fræðslu- og hagsmunamál stétt- arinnar. Samþykktar voru margar til- lögur og ályktanir, sem teknar verða fyrir á næsta sambands- þingi. Það var einróma álit fundar- manna, að nauðsynlegt væri að öll iðnnemafélög landsins ættu fulltrúa á fundi, sem þessum, og að þá myndu slíkir fundir hafa ómetanlega þýðingu til þess að efla skilning, samheldni og baráttukjark félaganna í Það er afmælisósk mín Iðn- nemasambandinu til handa, að það megi halda áfram á þroska- braut sinni, verða enn voldugra og sterkara, og að það megi ávallt eiga á að skipa mönn- um, sem vinna af áhuga og fórnfýsi. Verði skipað iðnnem- um, sem skilja, að máttur sam- takanna byggist á starfi og vilja meðlima þeirra. 25. ágúst 1949. Sigurður Guðgeirsson. IÐNNEMINN 7

x

Iðnneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.