Iðnneminn


Iðnneminn - 01.09.1949, Síða 14

Iðnneminn - 01.09.1949, Síða 14
hagsmuna og menningarmálum samtakanna. Nokkrar helztu tillögur og álit frá sambanclsstj órn, nefndum og einstaklingum, er samþykkt- ar voru: „Formannafundur iðnnema- félaga I.N.S.Í., haldinn á Akra- nesi dagana 2. og 3. júlí 1949, vísar því til stjórnar I.N.SÍ., að skora á iðnráð að taka alveg fyrir það seinlæti, sem átt hefir sér stað við afgreiðslu iðnnáms- samninga.“ „Fundur formanna iðnnema- félaganna, haldinn á Akranesi dagana 2. og 3. júlí, leggur til, að fast verði haldið við fyrri kröfur I.N.S.Í. varðandi kaup iðnnema, og að samræmt verði kaup og kjör iðnnema um land allt þannig, að það verði eigi lægra en: á 1. ári 30% — 2. ári 40% — 3. ári 55% — 4. ári 70% miðað við kaup sveina í hverri iðngrein.“ „Fundurinn beinir þeirri á- skorun til sjóðsstjórnar ferða- kostnaðarsjóðs, að hún leggi til að úthlutað sé ferðastyrk til allra þeirra þingfulltrúa utan af landi, sem rétt eiga til þing- setu. Hlutur þeirra, sem ekki sækja þingið, renni aftur til sjóðsins og leggist við óskerð- anlegan höfuðstól hans.“ „Almennur fundur formanna iðnnemafélaganna, haldinn á Akranesi dagana 2- og 3. júli 1949, lítur svo á, að útgáfa Iðn- nemans sé svo sterkur þáttur í starfsemi og samheldni iðn- nemasamtakanna, að útgáfa hans megi á engan hátt dragast saman vegna fjárskorts, en tel- ur þó ekki rétt að áskriftargjöld blaðsins séu hækkuð að svo stöddu. Hins vegar beinir fundurinn þeirri áskorun til allra starf- andi meðlima samtakanna, að þeir hefji og haldi uppi öflugri sókn til útbreiðslu blaðsins, og setji sér það mark, að hver ein- asti iðnnemi verði kaupandi þess, og um leið virkur meðlim- ur í samtakaheild íslenzkra iðn- nema.“ Frá iðnnámsnefnd: „Iðnnámsnefnd lítur svo á, að leggja beri áherzlu á, að halda fast við fyrri kröfur sam- bandsins um að bóklega námið fari fram í dagskólum, sem rek- inn sé af ríkinu. Einnig verði hafizt handa um útgáfu fræði- legra bóka, þar sem vöntun slíkra bóka háir tæknilegri menntun iðnaðarmanna." Álit frá allsherjarnefnd: „Nefndin hefur haldið einn fund um sta'i’fsemi samtakanna og hagnýtingu starfskraftanna, og vísum við til fyrri samþykkta sem gerðar hafa verið, en vilj- um benda á kennslukvikmynda safn ríkisins og að sambands- stjórn taki að sér útvegun á myndum fyrir sambandsfélög úti á landi.“ Tillaga frá skipulagsnefnd um breytingu á lögum I.N.S.Í.: „Inn í 33. gr. laga sambands- ins komi svohljóðandi skýring- argrein (á eftir orðunum „Aðrir þingfulltrúar hafa jafnan rétt til uppástungu um menn í stjórnina“’: „þá því aðeins að uppástungur séu studdar af minnst fimm þingfulltrúum. Uppástungur skulu vera skrif- legar.“ „Fundurinn leggur til við I.N. S.í- að athuga möguleika á því að halda formannafund 1950 á sama grundvelli og fyrri fundir hafa verið haldnir." Fundarstjóri var Jón Sveins- son frá félagi iðnnema á Sel- fossi en ritarar voru Finnbogi Eyjólfsson og Ólafur Karlsson, báðir úr Reykjavík. Fundinum lauk með kaffi- drykkju í boði iðnnemafélags Akraness. 1. maí var Iðnneminn seldur á götum Reykjavíkur. Seldust 423 eintök. Duglegustu sölumennirnir voru þeir Tryggvi Sveinbjörnsson bókbandsnemi, er seldi 82 eint., og Kristinn Sigurvinsson járniðnað- arnemi, er seldi 67 eint. Færir ritnefndin þeim, sem og öðrum er blaðið seldu, sínar beztu þakkir fyrir góða frammistöðu. Vegna tilmæla stjórnar I.N.S.Í., til iðnnemafélaganna, sem birt voru í 1.—2. tbl. þessa árgangs, um að þau gerðu grein fyrir afstöðu sinni varðandi þátttöku íslands í Atlantshafsbandalaginu, hefur fé- lag iðnnema Selfoss óskað, að þess yrði getið, að það hafi ekki séð sér fært að taka neina afstöðu í þessu máli, þar sem það sé ekki sam- rýmanlegt stefnu og lögum I. N. S. 1. 8 IÐNNEMINN

x

Iðnneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.