Iðnneminn


Iðnneminn - 01.09.1949, Síða 19

Iðnneminn - 01.09.1949, Síða 19
segja fyrir, með nokkurri vissu, að hve miklu leyti- Mun og engin aðferð til að finna þetta nákvæmlega, önn- ur en bein talning eða skráning. Þá skal á það bent, að hér að framan hefur meðalfjöl- skylda verið talin 4 menn, en í öllum hliðstæðum áætlunum, sem áður hafa verið gerðar og snerta atvinnuskiptingu þjóð- arinnar, hefur verið reiknað með 5 manna fjölskyldu. Sam- kvæmt manntalinu frá 1930 var meðalfjölskylda í landinu 4,6— 5 manns, en af því hve giftingar hafa aukizt hlutfallslega mikið síðustu árin (stríðsárin), hefur verið dregin sú ályktun, að meðalfjölskylda hafi minnkað að sama skapi, þó ekki niður fyrir 4 menn. Sem heild mun því mega fullyrða, að áætlunin sé fremur varleg. Hér við bætist svo, að bygg- ingariðnaðurinn er ekki talinn með í skýrslunni, svo og alls konar handiðnaður og ýmis störf, sem telja má til iðnaðar. Árið 1940 var tala framfær- anda og framfærðra í bygging- ariðnaðinum, samkvæmt upp- lýsingum frá hagstofunni, 7872. Síðan mu þeim hafa fjölgað allverulega þannig, að varla mun ofreiknað að telja þá nú um 9000 (framfærendur og framfærðir), og sé fjöldi þeirra, er framfæri hafa af ýmis konar handiðnaði, samkvæmt fram- ansögðu áætlaður um 500, verð- ur niðurstaðan sú, að á árinu 1948 munu um 45000 manns hafa framfæri sitt að öllu eða mjög verulegu leyti af iðnaði. En það er þriðjungur þjóðar- innar. Sé hins vegar reiknað með 5 manna fjölskyldu, en öðrum tölum hér að framan óbreytt- um, verður niðurstaðan sú, að um það bil 52 þús. manns hafi framfæri af iðnaði að öllu eða einhverju leyti, en það eru um 38,5% þjóðarinnar, eða um 5.2% meira en reiknað var með að framan. Skal sú skoðun þó lát- in í ljós hér, að fyrri talan eða 33,3% sé nær raunveruleikan- um en 38,5%, og á það bent til stuðnings, til viðbótar því, sem áður var nefnt, að framfærslu- skyldu er eingöngu skipt í hlut- föllum við framfærsluskyldu þeirra, sem eru 21 árs og eldri, en vitanlega vinna margir 20 ára og yngri við iðnað (aðal- lega nemar) og hlutfallstala þeirra hvað snertir framfærslu- skyldu er mikið lægri en þeirra, sem eru 21 árs eða meira. Mun það því að nokkru vega upp á móti því, sem kann að vera vanreiknað með því að reikna með 4ra manna meðalfjöl- skyldu.“ Hér vil ég svo aðeins bæta því við, að samkvæmt upplýs- ingum, er ég hef fengið frá Landssambandi iðnaðarmanna, er tala fulllærðra iðnaðar- manna nú 3750 í 59 iðngreinum. Iðnnemafjöldinn hefur aftur á móti verið eins og hér segir: Á árunum 1938—1942 var ár- leg tala nýnema 130—180. Síð- an hefur hún verið þessi: 1943 270 1944 330 1945 495 1946 570 1947 440 1948 500 Hve mikil verðmæti fara nú í gegnum hendur íslenzkra iðn- aðarmanna veit ég ekki ná- kvæmlega, en í skýrslu Fjár- hagsráðs segir um framleiðsl- una í íslenzkum verksmiðjum þetta: „Samandregnar niðurstöður leiða í ljós, að á árinu 1946 hef- ur iðnaðurinn notað innlend hráefni fyrir kr. 168,1 millj. og erl. hráefni fyrir 104,8 millj., eða að heildarhráefnanotkun hefur þetta ár numið um 273 millj. kr- að kostnaðarverði á inn- lendum framleiðslustað. Þær afurðir, sem iðnaðurinn skap- aði úr þessum hráefnum, námu að peningaverðmæti kr. 510 millj. s. á.“. Af þessum upplýsingum í skýrslu Fjárhagsráðs má marka hversu geysivíðtæka þýðingu íslenzkur iðnaður hefur nú fyr- ir þjóðarbúskapinn, bæði hvað framleiðsluafköst og atvlnnu- möguleika snertir. Nýtt iðnnemafélag. Þann 7. maí var stofnað nýtt iðnnemafélag, í Neskaupstað. Ber það nafnið Iðnnemafélag Neskaup- staðar. Stofnendur voru 16 nemar í ýmsum iðngreinum. Formaður er Jakob P. H. Her- mannsson. ★ Risastjarnan Austares er svo létt í sér, að nokkur grömm af efni hennar myndi fylla heila stofu. En um 200 tonn úr dverg- stjörnunni Proeyon kæmust fyr- ir í venjulegum eldspýtnastokki. IÐNNEMINN 13

x

Iðnneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.