Iðnneminn


Iðnneminn - 01.09.1949, Síða 28

Iðnneminn - 01.09.1949, Síða 28
andi kjörum. 1933 voru sam- þykkt lög um virkjun Sogsins, er veittu Reykjavík sérleyfi til virkjunar. Voru þá fengnir til erlendir ráðunautar og nýtt út- boð haft 1934 eftir tillögum þeirra. Þá var gert ráð fyrir að virkja Ljósafoss, en fresta Efra- Sogi þar til síðar. Útboðið 1934 tókst. Fengust bæði hagstæð tilboð í verkið, vélar og annað efni, svo og hagstæð virkjun- arlán í Svíþjóð. Voru upp settar tvær vélasamstæður upp á 12500 hestöfl samanlagt. Rétt á eftir tókst Akureyri að fá lán í Danmörku til virkjun- ar í Laxá frá Mývatni. Var bygg- ingarvinnan framkvæmd af sama verktaka og tekið hafði að sér Sogsvirkjunina. Tók Laxár- virkjunin til starfa 1930. Þar á eftir kom Skeiðfoss í Fljótum handa Siglufjarðar- kaupstað. Hafði undirbúningur að þeirri virkjun staðið yfir lengi og hreyfilstöð verið sett upp til hjálpar gömlu vatnsafl- stöðinni á meðan. Lenti Skeið- fossvirkjunin í dýrtíðinni, svo að stofnkostnaður varð miklu hærri, en áður hafði þekkst hér. Á ófriðarárunum var Sogs- virkjunin aukin með 3. véla- samstæðunni, er jók afl Ljósa- fossstöðvarinnar um 70%, upp í rúm 20.000 hestöfl. Laxárvirkjunin var og aukin á ófriðarárunum og sett upp 4000 hestafla vélasamstæða við hlið hinnar fyrri, er var 2000 hestafla. Þar næst hófst Akraneskaup- staður handa ásamt Mýrar- og Borgarfjarðarsýslu um virkjun í Andakílsá og lenti hún í sí- vaxandi dýrtíð. Hefur hún 5000 hestöfl. Þetta eru helztu stórvirkjanir vatnsafls hér á landi, en auk þessa hafa minni virkjanir ver- ið framkvæmdar, s. s. Laxá hjá Blönduósi, Sauðá hjá Sauðár- króki o. fl., auk margra einka- stöðva við sveitabæi. Samtals eru allar vatnsafls- virkjanir taldar 48000 hestöfl eða 32000 kw, á s. 1. ári. Auk þeirra eru hreyfilstöðvar, flest- ar dieselstöðvar og ein eimhverf ilstöð við Elliðaárnar, sem er 7500 kw., en samtals eru þessar heitaflstöðvar 13 upp á 27000 hestöfl eða 18000 kw- Er þá alls uppsett vélaafl í landinu 75000 hestöfl eða 50000 kw til raf- orkuvinnslu og iðnaðarreksturs. Af þessum 50000 kw eru 40500 kw fyrir rafmagnsnotkun í al- menningsveitum, 6500 kw til iðnaðar, einkum síldarverk- smiðjur, og 3000 kw eru einka- stöðvar, aðallega til heimilis- notkunar í sveitum. Þá eru hér vindrafstöðvar, sem ekki eru taldar með í framangreindum tölum, enda eru þær óðum að hverfa aftur í þeirri mynd, sem þær hafa verið reknar undan- farin ár. Þessar stöðvar hafa á árinu 1947 unnið raforku sem hér er skýrt: Vatnsaflstöðvar 128 millj.kwst. Heitaflstöðvar 12 millj.kwst. Samtals: 140 millj.kwst. Af þessu er notað: í almenningsv. 90 millj. kwst. í iðnaði 22 millj. kwst- eigin notkun rafst. og orkuflutn.töp 29 milj. kwst. Samtals: 140 millj. kwst. Sé þetta miðað við mann- fjölda í landinu, verður árs- vinnslan 1947 1050 kwst. á mann. Borið saman við nokkur önnur lönd, verður útkoman svo sem hér segir: Raforkuvinnsla nokkurra landa 1947: Land íbúar millj. Orkuvinnsla millj. kwst. Kwst. á mann Noregur 3,2 11,260 3600 Svíþjóð 6,8 13,536 2060 Bandaríkin 147,0 235.000 1600 Island 0,133 0,140 1050 Finnland 3,9 2,942 760 Danmörk 4,0 1,182 300 Þessar tölur verða naumast taldar sambærilegar, því að hér á landi er mestur hluti rafork- unnar notaðar til heimilisþarfa, lýsingar og hitunar í heimahús- um, en tiltölulega lítið í verzl- un og iðnaði. í hinum löndun- um er hins vegar mikið notað til iðnaðar og annars atvinnu- reksturs, en tiltölulega lítið til heimila ennþá. Þó má segja, að í Noregi sé allmikið notað til heimila auk iðnaðarins og skýr- ir það nokkuð hina háu tölu þar. Annað land, sem er jafnvel hærra en Noregur er Canada. Þessi lönd sýna okkur hversu langt við gætum komizt, er stundir líða og iðnaður eflist hér. Eru möguleikarnir, að minnsta kosti að því er vatns- 22 IÐNNEMINN

x

Iðnneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.