Iðnneminn - 01.09.1949, Síða 33
högg. Nú lögðu þeir frá sér sagir
og axir og tóku sér þess í stað í
hönd glergerðartæki. Umskiptin
hljóta að hafa reynzt þeim örð-
ug í fyrstu, en nú vinnur obbinn
af öllum verkalýð borgarinnar í
glerverksmiðjunum og við fyrir-
tæki, sem eru tengd þeim.
Corning-verksmiðjurnar voru
í fyrstu litlar, en eru nú orðnar
eitt helzta fyrirtæki á sínu sviði.
Til Corning sendi Thomas A.
Edison mann árið 1879 til að
sækja þangað 50 kúlur, sem
blásnar voru þar handa honum,
en þær notaði hann við fyrstu
rafljósatilraunir sínar. Edison
hafði reynt að fá gerðar glerkúl-
ur til að hafa utan um þræðina
í raflömpum sínum. Öðrum fyr-
irtækjum hafði mistekist það,
— en Corning-verksmiðjunum
tókst það. Enda þótt Corning-
verksmiðjurnar hafi í mörg ár
lagt aðaláherzluna á hin vís-
indalegu atriði glergerðarinnar,
hefur hinum listrænu atriðum
ekki verið gleymt. Einn afkom-
andi Houghton varð hrifinn af
hinu fagra Steuben-gleri og
skapaði félagið sér aðstöðu til að
framleiða það. Sú framleiðsla
hófst árið 1918. Nú eru Steuben-
glermunir hafðir til sýnis við
hina frægu götu Fifth Avenue í
New York, og á meðal þeirra,
sem hafa skreytt það eru kunnir
menn, s. s. John Monteith Gates,
Jean Cocteau, Sidney Waugh,
Jean Hugo og aðrir góðir lista-
menn. Margir hinna miklu lista-
manna nútímans á öðrum svið-
um hafa skreytt Steuben-gler-
muni og gert það starf að nýrri
listagrein 20. aldarinnar.
Corning-verksmiðjurnar fram-
leiða bæði listmuni og þarfleg
búsáhöld handa húsmæðrunum,
og allt þar í milli. Árið 1930 lagöi
Corning-félagið allt kapp á að
koma út „Pyrex“-eldhúsáhöld-
um og lækkaði verð þeirra um
helming til að gera þau útgengi-
legri. í mörg ár hafa húsmæður
og matsveinar haft mikið dálæti
á „Pyrex“-gleri, en þó er skammt
síðan notkun þess varð almenn
og hlaut fulla viðurkenningu. Sá
matreiðslumaður, sem notar eld-
traust „Pyrex“-gler, getur alltaf
séð, hvort pannan er hrein, en
sá, sem notar málmbúsáhöld, er
aldrei viss í sinni sök. Margar
konur, sem notað hafa „Pyrex“
árum saman, fullyrða, að það
geri matinn eigi aðeins lystugri,
heldur og bragðbetri.
Síðasta nýung Corning-verk-
smiðjanna á sviði búsáhalda-
gerðar, eru „Vycor“-vörur, sem
eru að 96 hundraðshlutum úr
kísilgleri. Kunnur gaseldavéla-
framleiðandi hefur notfært sér
þetta gler og gert úr því sléttar
þynnur til að hlífa brennurun-
um, dreifa loganum jafnar og
koma í veg fyrir að smáílát velti
á hliðina.
Frægasti smíðisgripur Corn-
ingverksmiðjanna er e. t. v. 200
þumlunga glerskífa er notuð er
sem sjónaukaspegill í rannsókn-
arstöðinni á Palomarfjalli í Calí-
forníu. Áður en þessi „stærsti
glermunur veraldarinnar“ yrði
til og þeim 20 smálestum bráðins
glers, sem í hann fóru, yrði hellt
í leirmótin, var unnið 3ja ára
undirbúningsstarf. Fyrst voru
steypt 3 sýnishorn — 30, 60 og
120 þumlungar að fermáli — til
að reyna aðferðina. Til þess að
hún brotnaði ekki var þessi
geysistóra skífa látin kólna
smámsaman í 300 daga. Með
þessum sjónaukaspegli munu
menn eygja miklu lengra en áð-
ur út í himingeyminn, sem virð-
ist óendanlegur, og segja má
með sanni, að hann sé mesta
meistaraverk Corning-verk-
smiðj anna.
Margir halda, að dagar glerblás-
aranna sé hjá liðnir vegna vél-
anna, sem notaðar eru nú við
glerblástur og glermótun í verk-
smiðjum vorra daga. Svo er þó
ekki. Fjarska oft þarf að búa til
muni, sem eru óvenjulegir að
gerð, og þá aðeins fáa. Hlutir,
sem eru sérlega margbreytilegir
að lögun, svo og listmunir, eru
ætíð unnir af handiðnaðar-
mönnum. — Glerblásarinn er
tengdur gleriðnaðinum órjúf-
andi böndum, þótt ekki sé til
annars en að reyna ný efni.
Vélblástursaðferðin hefur ver-
ið endurbætt margfaldlega síð-
an á dögum fyrstu raflampa
Edisons. Fyrsta vélin, sem gerð
var til að búa til glerkúlur, var
talin eitt hinna sjö furðuverka
heimsins á sviði iðnaðarins, og
Var hún notuð með þeim hætti,
að bráðið gler rann úr geymi út
á milli valtara og yfir langar
plötur með götum á. Með blæstri
var nokkru af glerinu þrýst nið-
ur um götin og nærri því sam-
tímis lukust mót um glerbóluin-
urnar, breyttu þeim í kúlur, sem
notaðar voru utan um hina lýs-
andi þræði, ef svo bar undir. Nú
koma úr vélunum á fáeinum
IÐNNEMINN
27