Fréttablaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 4
4 17. október 2009 LAUGARDAGUR STJÓRNSÝSLA Alþingi kaus hag- fræðinginn Daniel Gros í banka- ráð Seðlabankans á fimmtudag, en þingflokkur Framsóknarflokksins tilnefndi hann. Daniel er búsett- ur í Brussel og því ljóst að hann þarf að ferðast um langan veg á bankaráðsfundi. Þá er líklegt að þýða þurfi öll gögn fyrir hann. Fréttablaðið spurðist fyrir um hver greiddi kostnað við ferðir, uppihald og þýðingar en fátt var um svör. Í Seðlabankanum fengust þær upplýsingar að þar vissu menn ekkert um málið utan það að Alþingi hefði kosið Gros í ráðið. Engin hefð væri fyrir því að bankaráðsmenn byggju erlend- is og hvað kostnað varðaði væri réttast að ræða við Alþingi sem kaus Gros. Helgi Bernódusson, skrifstofu- stjóri Alþingis, segir hins vegar að afskiptum Alþingis ljúki þegar bankaráðsmaður hefur verið kos- inn. „Það er eitt sem við gerum, að kjósa fólk í nefndir og ráð. Þar með er því lokið. Það er Seðla- bankans að ráða fram úr kostn- aðinum.“ Helgi segist gera ráð fyrir að nokkur kostnaður sé við ferðalög, uppihald og þýðingu. Einar Skúlason, framkvæmda- stjóri þingflokks Framsóknar- flokksins, segir tilskipun Gros tilraun til að opna stjórnsýsluna. Kannað hefði verið hvort þetta væri ekki löglegt, en kostnaður- inn væri óljós. „Ég vona að kostn- aðurinn lendi ekki á okkur.“ - kóp MANNRÉTTINDI Ragna Árnadótt- ir dómsmálaráðherra varð frá að hverfa eftir að hróp voru gerð að henni á ráðstefnu í Háskóla Íslands í gær. Mótmælin eru talin tengjast öðrum sem boðuð höfðu verið vegna brottvísunar fjögurra útlendinga til Grikklands í vik- unni. Mótmælt var við heimili dómsmálaráðherra á miðviku- dagskvöldið. Þá sóttu að sögn lög- reglu um tuttugu manns mótmæli á Lækjartorgi í gær. Mótmælend- urnir halda því fram að aðbúnaður hælisleitenda í Grikklandi sé óvið- unandi og óforsvaranlegt að senda hælisleitendur hér þangað. Anna Pála Sverrisdóttir, þing- maður Samfylkingar, spurði dóms- málaráðherra út í málið á Alþingi á fimmtudag. Þar áréttaði Ragna að brottvísun hælisleitenda væri byggð á lögum og almennum mæli- kvörðum. Ekki væri um geðþótta- ákvörðun ráðherra að ræða. „Hvort sem mönnum líkar betur eða verr er lagaumhverfið þannig að við erum aðilar að Dyflinnar- samstarfinu sem byggist á því að þegar eitt Dyflinnar-ríki endur- sendir fólk til annars ríkis er það vegna þess að hælismeðferð fer þá fram í því ríki sem það er sent til,“ sagði Ragna og benti á að Norður- löndin endursendu öll hælisleitend- ur til Grikklands. Þá sagði Ragna mál allra flóttamanna vera skoðað gaumgæfilega og benti á að flótta- mannahjálp Sameinuðu þjóðanna hefði komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður í Grikklandi hefðu breyst svo til hins betra að óhætt væri fyrir flóttamenn að snúa aftur þangað. Hún vísaði einnig til skýrslu sem ráðuneytið birti í sumar vegna ákvörðunarinnar um að endursenda fólk til Grikklands. Í skýrslunni kemur fram að skoða eigi hvert tilvik fyrir sig og RAGNA ÁRNADÓTTIR Eftir um 10 mínútna stapp gafst dómsmálaráð- herra upp á að reyna að flytja ræðu í Háskólanum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HRÓP GERÐ AÐ RÁÐHERRA Mótmælendur sóttu ráðstefnu sem boðað hafði verið til í gær af tilefni 50 ára afmælis mannréttindadómstóls Evrópu og komu í veg fyrir að Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra gæti flutt þar ræðu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hröktu ráðherra úr púlti Brottvísun hælisleitenda til Grikklands er umdeild. Mótmælendur hafa farið mikinn. Dæmi eru um að Út- lendingastofnun hafi látið hjá líða að senda fólk til Grikklands. Sjálfstætt mat er lagt á sérhverja umsókn. UMSÓKNIR UM HÆLI Þróun síðustu ára 2009 27* 2008 73 2007 42 2006 39 2005 87 2004 76 2003 80 2002 117 2001 53 2000 25 1999 24 *Fram til 1. október 2009. HEIMILD: ÚTLENDINGASTOFNUN. Umtalsverð fækkun hefur á þessu ári orðið á umsóknum um hæli hér á landi samkvæmt upplýsingum Útlendingastofnunar. Um síð- ustu mánaðamót höfðu borist 27 umsóknir um hæli, en þær voru alls 73 árið 2008. Árin 2006 og 2007 sóttu 39 og 42 um hæli. Flestar hafa umsóknir á einu ári orðið árið 2002 þegar 117 sóttu um hæli hér á landi. Af umsóknum sem bárust á þessu ári drógu níu umsækjendur umsóknir sínar til baka eða hurfu af landi brott. Átta voru sendir aftur til samstarfsríkis Dyflinnarsamkomu- lagsins á grundvelli Dyflinnarreglu- gerðarinnar, einum var synjað um hæli en í málum tveggja var veitt hæli. Sjö mál eru svo enn í vinnslu hjá Útlendingastofnun. Útlendingastofnun hefur þar fyrir utan veitt hæli af mannúðarástæð- um í tilvikum sjö umsækjenda á þessu ári, vegna umsækjenda sem komu fyrir 1. janúar 2009. Þá fengu fjórir slíkt leyfi sem áður höfðu dregið umsóknir um hæli til baka. HÆLISLEITENDUM FÆKKAR MJÖG kanna aðstæður „og meta með hlið- sjón af fyrirliggjandi upplýsingum um aðstæður hælisleitenda í Grikk- landi hvort þess megi vænta að við- komandi muni njóta réttinda sinna sem hælisleitandi þar í landi“. Rósa Dögg Flosadóttir, sett- ur forstjóri Útlendingastofnunar, staðfestir að Dyflinnar-reglugerð- inni sé ekki fylgt fortakslaust held- ur séu mál könnuð í samræmi við það vinnulag sem lagt er upp með í skýrslu dómsmálaráðuneytisins. Dæmi séu um að ákveðið hafi verið að senda fólk ekki þangað vegna þess að það hafi fallið undir skil- greiningar skýrslunnar. olikr@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Farsóttanefnd Landspítala mælist til þess að almenningur takmarki heim- sóknir sínar til sjúklinga á sjúkrahúsinu eins og kostur er vegna yfirstandandi svínaflensu- faraldurs. Margar deildir hafa þegar tak- markað heimsóknir og er fólk vinsamlegast beðið að virða þær takmarkanir. Fólk sem hefur einkenni flensunnar á borð við hálssærindi, hita, beinverki og hósta er beðið um að koma alls ekki í heimsókn á spítalann, aðrir aðeins ef þeir eiga brýnt erindi og þá í samráði við starfsfólk við- komandi deildar. - jss Tilmæli frá Landspítalanum: Heimsóknir takmarkaðar FJÖLMIÐLAR Íslenskir fjölmiðlar hafa verið hvattir til þess að auka hlut jákvæðra frétta. Það geti dregið úr neikvæðum langtíma- áhrifum á Íslendinga í kjölfar efnahagshrunsins. Þetta segir í netútgáfu breska blaðsins Financ- ial Times í umfjöllun um afleið- ingar hrunsins í gær. Vitnað er til Guðjóns Magnússonar, læknis og prófessors í lýðheilsufræðum við Háskólann í Reykjavík. Guðjón var aðstoðarlandlækn- ir 1980-1990, þekktur víða og eftirsóttur fyrirlesari á alþjóða- ráðstefnum um lýðheilsu. Hann lést 4. október síðastliðinn og var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju á fimmtudag. - jab FT vitnar í látinn fræðimann: Jákvæðar frétt- ir mikilvægar Seðlabanki vísar á Alþingi sem vísar á Seðlabanka og Framsókn er í óvissu: Enginn veit hver á að borga DANIEL GROS Er búsettur í Belgíu og þarf að ferðast um langan veg á banka- ráðsfundi. VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Berlín Billund Brussel Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 21° 13° 8° 10° 11° 13° 9° 9° 7° 6° 27° 12° 8° 24° 9° 12° 13° 7° Á MORGUN 10-18 m/s norðaustan til annars hægari 6 6 8 6 8 8 10 8 10 9 6 6 3 4 3 3 3 8 8 8 10 6 -1 -1 1 6 6 MÁNUDAGUR 5-10 m/s 1 3 -4 -4-1 VÆTUSAMT OG KÓLNANDI Í dag verður stíf sunnanátt sunnan og austan til annars mun hægari norðvestlæg átt. Rigning víða um land en þó úr- komu minnst á Austur- landi og Vestfjörðum. Milt verður framan af degi en smám saman kólnar, fyrst vestan til og í kvöld má búast við snjókomu til fjalla og á heiðum. vestanlands. Veður fer kólnandi. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur DÓMSTÓLAR Ákæra á hendur Bjarka Frey Sigurgeirssyni fyrir manndráp var þingfest í Héraðs- dómi Reykjaness í gær. Bjarka er gefið að sök að hafa veist að manni í herbergi að Dals- hrauni í Hafnarfirði 17. ágúst og slegið hann minnst fimm þungum höggum í höfuðið með tréborði og vöfflujárni. Maðurinn hlaut mörg brot á höfuðkúpu og alvarlega áverka á heila sem drógu hann til dauða. Bjarki játaði sök, en neit- aði þó að hafa notað vöfflujárn. Aðstandendur mannsins krefja Bjarka um samtals fjórar milljón- ir króna, auk útfararkostnaðar. - jss Ákærður fyrir manndráp: Játaði morðið fyrir dómi Blátunnur í Árborg Svokallaðar Blátunnur eiga að vera við hvert heimili í Árborg frá og með næstu áramótum. Blátunna er ætluð undir endurvinnanlegan pappírsúrgang og tekur við fleiri tegundum pappírs en grenndargámakerfið sem nú er við lýði. UMHVERFISMÁL GENGIÐ 16.10.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 236,5554 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,54 124,12 201,36 202,34 184,15 185,19 24,735 24,879 22,071 22,201 17,754 17,858 1,3554 1,3634 196,62 197,80 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.