Fréttablaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 44
17. október 2009 LAUGARDAGUR4
Markaður verður haldinn í Mjóddinni í Breið-
holti í dag.
„Markaðurinn á að vera vettvangur fyrir íbú-
ana til að hittast og selja eða gefa hluti sem ekki
er not fyrir lengur,“ segir Helgi Kristófersson, for-
maður íbúasamtakanna Betra Breiðholt, sem standa
fyrir markaði í göngugötunni í Mjódd í dag á milli
klukkan 11 til 14.
Helgi segir þetta jafnframt tilvalið tækifæri
fyrir þá sem vilja skapa aukið rými í geymslunni
eða vilja létta á birgðum heimilisframleiðslunnar.
„Þarna verða seljendur sem hafa pantað pláss í gegn-
um okkur. Þeim sem vilja er velkomið að koma við og
gefa þeim dót, svo lengi sem það er heillegt.“
Helgi tekur fram að einnig verði nýjar vörur á boð-
stólnum. „Sem dæmi get ég nefnt bretti undir fartölv-
ur sem er nýjung á íslenskum markaði.“
Þá verða ýmsar uppákomur í tengslum við
markaðinn. „Já, Valgeir Guðjónsson
kíkir meðal annars í heimsókn og
tekur lagið,“ segir Helgi og bætir
við að ef vel takist til sé aldrei að
vita nema framhald verði á. - rve
„Þetta er fyrst og fremst mynd um
indverskt brúðkaup,“ segir Birta
Fróðadóttir, sem hefur staðið
fyrir því að kvikmynda lífshlaup
indverska drengsins Rajeev, sem
Íslendingar kynntust fyrst sem
eins af félögum Pappírspésa í
samnefndri kvikmynd. Lífshlaup
Rajeevs er nú orðið nokkuð merki-
legt en því hefur æskuvinkona
hans Birta gert góð skil í kvik-
myndunum Leitin að Rajeev og
nú Rajeev Revisited, eða Rajeev,
heimsóttur á ný.
„Nú finnst mér Rajeev vera orð-
inn fullorðinn,“ segir Birta en hún
kynntist þessum vini sínum þegar
þau voru á barnsaldri í Mosfells-
dal. Þangað flutti fjölskylda hans
vegna starfa föður hans við sím-
virkjun og dvaldi í fjögur ár. Fáir
innflytjendur bjuggu á Íslandi á
þeim tíma, hvað þá þeir sem komu
frá framandi stöðum eins og Ind-
landi. En frá Íslandi flutti Rajeev
og átti hann síðar erfiða ævi. Nú
sýnist Birtu framtíðin blasa björt
við Rajeev en í myndinni er skil-
ið við hann nýkvæntan og ham-
ingjusaman. Hún segir kvik-
myndina varpa ljósi á ótrúlegan
menningarmun, sem skilið hefur
að æskuvini, og draga upp mynd
af indverskum brúðkaupum sem í
alla staði séu mjög ólík þeim sem
Íslendingar þekkja. Henni þótti
hún stinga talsvert í stúf við hind-
úana í brúðkaupinu, litrík klæði
þeirra og fíla.
Einnig þótti henni mjög áhuga-
vert að Rajeev og kona hans voru
valin saman eftir því hvernig
stjörnur þeirra áttu saman. „Þetta
var gert með tæki á internetinu og
þar kom í ljós að þau væru heppi-
legt par. Þau voru síðan kynnt
fyrir hvort öðru og gefinn tími til
að spjalla og kynnast,“ segir Birta
um hvernig indverskur ráðahag-
ur í efri stéttum samfélagsins þar
í landi fer fram. Hún segir enga
þvingun hafa falist í hjónabandinu
heldur hafi þau bæði virkað sér-
lega ástfangin og hamingjusöm.
„Já, mér sýnist ekkert vitlaust að
velja saman fólk eftir stjörnukorti
á Netinu,“ segir Birta.
Sýningin á sunnudag er í sam-
vinnu við Hjálparstarf kirkjunn-
ar og rennur aðgangseyrir óskipt-
ur til verkefnis sem hjálparstarfið
styður við. Byggist það á að leysa
þrælabörn á Indlandi úr ánauð og
koma þeim til mennta. Aðalfram-
leiðandi myndarinnar er kvik-
myndagerðarfyrirtækið Vala sem
hefur nýtekið til starfa. Sýningin
hefst klukkan 13.30 og er miðaverð
1.500 krónur. karen@frettabladid.is
Ekki vitlaust að finna
maka eftir stjörnumerki
Rajeev Revisited nefnist ný mynd Birtu Fróðadóttur leikstjóra. Myndin er sjálfstætt framhald heimildar-
myndarinnar Leitin að Rajeev. Á sunnudaginn verður haldin styrktarsýning Í Háskólabíói.
Mynd Birtu varpar ljósi á þann gríðarlega menningarmun sem Birta og Rajeev búa við. Hún segist hafa stungið nokkuð í stúf í
brúðkaupi vinar síns meðal fíla og hindúa í litríkum klæðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna mun á morgun frumflytja tvö
verk eftir aðalstjórnanda sveitarinnar, Oliver Kentish.
Verkin eru sérstaklega samin fyrir tvo einleikara af yngri kynslóð
hljómsveitarinnar, þá Magnús Pálsson klarinettuleikara og Baldvin
Oddsson trompetleikara.
Verkin, Artemis, fyrir einleiksklarinett og kammersveit, og App-
ollo, fyrir einleikstrompet og kammersveit, verða flutt í Seltjarnar-
neskirkju klukkan 17.00 en auk einleiksverkanna verður 9. sinfónía
Dvoráks, Frá Nýja heiminum, flutt.
Aðgangseyrir er 2.000 kr. fyrir fullorðna og 1.000 kr. fyrir eldri
borgara og nema. Frítt er fyrir börn.
Þess má geta að tónleikarnir eru framlag hljómsveitarinnar til
Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis. - jma
Frumflytja tvö verk
Tónleikarnir á sunnudag eru framlag hljómsveitarinnar til Heimsgöngu í þágu
friðar og tilveru án ofbeldis. MYND/ÚR EINKASAFNI
Steinunn Jóhannesdóttir rithöf-
undur flytur fræðsluerindi um ævi
Guðríðar Símonardóttur undir yfir-
skriftinni „Prestskona með flókna
fortíð“ á fræðslumorgni í Hall-
grímskirkju 18. október. Í fræðslu-
erindi sínu fjallar hún um líf kon-
unnar sem varð eiginkona Hall-
gríms Péturssonar og deildi
kjörum með honum í 38 ár.
Rakin verður fortíð hennar áður en
leiðir þeirra Hallgríms lágu saman
í Kaupmannahöfn, sagt frá þeim
mannraunum sem hún rataði í
sem eitt af fjölmörgum fórnar-
lömbum Tyrkjaránsins og útlausn
hennar og annarra úr nær áratug-
ar ánauð í Algeirsborg. Að lokum
verður rakin stuttlega sambúðar-
saga hennar og Hallgríms eftir því
sem heimildir vitna um.
Fræðslumorgnar hefjast kl. 10.00
og þeim lýkur um 10.40.
Prestskona með
flókna fortíð
FJALLAÐ VERÐUR UM ÆVI GUÐ-
RÍÐAR SÍMONARDÓTTUR Á
FRÆÐSLUMORGNI Í HALLGRÍMS-
KIRKJU Á SUNNUDAG.
Steinunn Jóhannesdóttir.
Upphitun fyrir
Breiðholtsdaga
Fólki er velkomið að koma
við og gefa seljendum dót.
Hin árlega Sauðamessa verður haldin í Borgarnesi í dag eftir því sem fram
kemur á fréttavefnum Skessuhorni. Messugjörð hefst með fjárrekstri frá
Dvalar heimili aldraðra í Borgarnesi klukkan 13.30. Eru íbúar og gestir beðn-
ir um aðstoð við að verja heimalönd íbúa við Borgarbraut, Þorsteinsgötu og
Skallagrímsgötu en það er sú leið sem farin verður með fjárreksturinn þetta
árið.
Í og við Skallagrímsgarð verður hátíðardagskrá fram eftir degi. Þar verður
markaðstorg og á sviði verður dagskrá frá klukkan 14.02 til 16.03. Þar troða
meðal annars upp Bakkabræður og Bakkasystur, Siggi Óli og Bankaræn-
ingjarnir, haldin verður fegurðarsamkeppni Mýrahrúta og hið árlega læra-
kappát. Þá verður ýmiss konar afþreying í boði í garðinum á meðan á dag-
skrá stendur.
Öllum gestum verður boðið
upp á ókeypis kjötsúpu í boði
sauðfjárbænda í héraði sem
Raftar, einnig úr héraði, sjá um
að framreiða við Tónlistarskóla
Borgarfjarðar.
Um kvöldið verður réttarball í
nýju reiðhöllinni í Borgarnesi.
Þar mun hljómsveitin Festival
spila fyrir dansi.
Hin árlega Sauðamessa
FEGURÐARSAMKEPPNI MÝRAHRÚTA OG ÁRLEGT LÆRAKAPPÁT ER MEÐAL ÞESS
SEM BOÐIÐ ER UPP Á Á SAUÐAMESSU Í BORGARNESI.
Lærakappátið vekur ávallt lukku.
Yfirburðir Fréttablaðsins staðfestir!
Fréttablaðið er með 106% meiri lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað, höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009.
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna
dagblað landsins með glæsilegt
forskot á samkeppnisaðila sinn
eins og síðasta könnun Capacent
Gallup ótvírætt sýnir.
Við erum auðvitað rífandi stolt af
þessum góða árangri og bendum
auglýsendum á að notfæra sér
forskot okkar þegar þeir velja
auglýsingamiðill.
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
72%
35%
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki