Fréttablaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 57
7 MENNING KVEÐIÐ UPP ÚR GRALLARANUM Sæll er sá mann sem hafna kann hrekkvísra manna ráði. Og syndugra vegi aldrei ann ei sat hjá skjemdar háði. Heldur með vilja, hug og mátt hreinferðugliga dag og nátt að guðs lögmáli gáði. Sá maður líkur eik sú er upp vex hjá vatna straumi á sínum tíma aldin ber ei fellur lauf né blómi. Allt hvað hættir að hafast að honum mun ætíð veitast það farsællega fram komi. Þeir glæpavegi ganga á Guðs ráðum ekki hlýða auðnu þvílíkri aldrei ná áfelli heldur líða. So sem það fis á flatri jörð feykja burt veður hvöss og hörð um ýmsar álfur víða. Illgjarnir munu ekki því uppreisn í dómi hljóta né sannra Guðs vina söfnuði’ í syndugir heiðurs njóta. Enn góðra manna greiðir veg Guðs náð og miskun æfinleg ranglátra leið mun þriota. Hátíðarmessa, samkvæmt Graduale- messubókinni frá 1594, eða Grallaranum eins og íslenskum mönnum einum gat dottið í hug að kalla messu- bók, verður í Langholtskirkju á morgun kl. 11. Messan er í tilefni af 25 ára vígsluafmæli Langholtskirkju sem helguð er Guðbrandi biskupi Þorlákssyni á Hólum. Sungin verður messa samkvæmt Grallaranum og fylgir texta úr Guðbrandsbiblíu frá 1584 og einnig verður sung- inn sálmur úr sálmabók Guð- brands frá 1589. Sr. Jón Aðal- steinn Baldvinsson Hólabiskup predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Kristjáni Vali Ingólfs- syni og sr. Jóni Helga Þórarins- syni sóknarpresti. Klukkustund fyrr, kl. 10, verð- ur opnuð sýning á Guðbrands- biblíu, prentaðri á Hólum, Grall- ara frá Skálholti og hebreskri Biblíu áritaðri af Guðbrandi en það er hald manna að Guð- brandur biskup hafi ætlað að nota hana til að endurbæta þýð- inguna í Guðbrandsbiblíu á Gamla testamentinu. Messan verður sungin án hljóðfæraleiks og fylgir messu- formi Grallarans fyrir 19. sunnudag eftir þrenningarhá- tíð. Messan er sungin bæði á íslensku og latínu. Flestir föstu liðir hennar eru sungnir á latínu þ. e. Kyrie, Sanctus og Agnus Dei en aðrir messuliðir og sálm- ar á íslensku og í flestum tilfell- um fylgt orðalagi Grallarans. Jón Stefánsson organisti hefur sett messuna upp með nútíma nótnaskrift og verður kirkju- gestum gefið tækifæri að æfa hana kl. 10 óski þeir að taka þátt í flutningnum. Málfar sumra textanna er ofurlítið tyrfið en aðrir textar hafa staðist tímans tönn og eru kjarnyrtir og tærir. Má sjá dæmi þess hér á síðunni. Það eru 415 ár liðin síðan Grallarinn var fyrst gefinn út á prenti, 425 ár síðan Guðbrands- biblía kom fyrst út á prenti og 420 ár síðan sálmabókin kom fyrst út á prenti. So sem það fis á flatri jörð Messa helguð Guðbrandi Þorlákssyni og kirkjulegum ritum hans er í Langholti í Reykjavík á morgun. MYND/ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Dagskrá D A V ID TH O R. O R G - 2 00 9 RÁÐSTEFNAN ER ÖLLUM OPIN – AÐGANGUR ÓKEYPIS SKRÁNING Á: WWW.LYDHEILSUSTOD.IS RÁÐSTEFNAN FER FRAM Á ENSKU STAÐSETNING: HÓTEL SAGA – SALUR: HARVARD Velferð á tímum efnahagsþrenginga Hótel Saga, Reykjavík, 21. Október 2009 ý Nordisk Ministerråd Félags- og tryggingamálaráðuneytiðMenntamálaráðuneytiðHeilbrigðisráðuneytið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.