Fréttablaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 63
LAUGARDAGUR 17. október 2009 35
listamanna í Galleríi Havarí í
Austurstræti 6. Flestir myndirn-
ar eru seldar og verk hans hafa
spurst út því margir koma gagn-
gert til að skoða þau. „Mín skoð-
un á vinsældum hans er að hann
málar myndir sem fá fólk til að
brosa. Hann málar myndir af kar-
akterum sem fólk þekkir og finnst
gaman að hafa uppi hjá sér,“ segir
Sævar. Hann segir mynd af Tinna
og félögum í geimfarabúningum
vinsælustu myndina og einar tíu
þannig hafi selst. „Þær eru nátt-
úrulega ekki allar eins, en það er
lítið mál að biðja Ísak um að mála
einhver mótíf aftur og aftur. Hann
hefur bara gaman af því. Það er
áberandi hversu lunkinn hann er
í því að teikna sömu persónurn-
ar eftir eigin höfði, en hann vill
síður teikna umhverfi eða bak-
grunn. Hann hefur ekki teiknað
neitt upp úr sjálfum sér enn þá, en
það verður spennandi að sjá þegar
það gerist.“
Afköst Ísaks eru hvílík að þótt
myndir hans seljist vel þá bætist
við safnið á miklum hraða. „Ísak
er mjög fylginn sér, hann setur sér
skýr markmið og nær þeim und-
antekningarlaust. Segir kannski:
„Klukkan tvö ætla ég að teikna
Tinna og Kolbein“, og svo bara
einfaldlega gerir hann það. Ein-
hverfan er þannig að það truflar
hann ekkert. Það væri alltaf eitt-
hvað að trufla okkur. Við mynd-
um þurfa að fara út í búð, hlusta á
fréttirnar eða skreppa á pöbbinn,
en Ísak getur setið og málað allan
daginn og það truflar hann ekkert.
Vegna plássleysis heima þurfum
við að skammta ofan í hann blind-
ramma. Hann er að mála þetta 15-
20 málverk á viku. Þetta yrði enn
þá meira ef við takmörkuðum ekki
flæðið. Og þegar hann er ekki að
mála þá teiknar hann.“
Framtíðin óráðin
Sævar segir að Ísak hafi frá fyrsta
degi fengið ákaflega vandaða
kennslu og þjálfun í skólakerfinu.
„Hann hefur alltaf verið í sérdeild-
um fyrir einhverfa og það hefur
hjálpað honum mikið,“ segir hann.
„Vissulega var það rosa sjokk að
eignast fatlað barn, en því fyrr
sem maður áttar sig á því og sættir
sig við það, því betra. Það er mikil-
vægt að sá fatlaði fái rétta þjálfun
og hjá Ísaki hefur allt verið eins og
það á að vera.“
Ísak er nú á tímamótum. „Hann
kláraði stúdentinn frá FG í vor.
Okkur hefur alltaf tekist að leika
næsta leik í framtíð hans, en nú er
það snúnara. Ekki er um auðugan
garð að gresja hvað varðar nám
fyrir fatlaða eftir að menntaskóla
lýkur,“ segir pabbi hans.
Fjölskyldan fór til Danmerk-
ur nýlega til að skoða myndlistar-
skóla fyrir fatlaða. „Það var mjög
áhugavert. Mér datt í hug að það
væri sniðugt ef Listaháskólinn á
Íslandi byði upp á deild fyrir fatl-
aða því það eru margir efnilegir
fatlaðir listamenn á Íslandi. Ég
ræddi við Hjálmar H. Ragnarsson
um möguleikann á þessu. Honum
leist svo sem ágætlega á hugmynd-
ina en málið strandar auðvitað á
skorti á fé.“
Framtíð Ísaks er því óráðin.
„Hann sækir námskeið tvisv-
ar í viku í Myndlistaskólanum í
Reykjavík. Vitanlega viljum við að
hann efli enn og þroski þessa hæfi-
leika sína. Hann er bara að verða
tvítugur svo það er alltof snemmt
að hann fari að vinna. Það er ekk-
ert annað í spilunum en að hann
sinni þessu áfram. Þetta er það
sem hann er góður í. Hann verður
ekki verkfræðingur úr þessu.“
➜ EINHVERFA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
Mér datt í
hug að það
væri sniðugt ef Lista-
háskólinn á Íslandi
byði upp á deild
fyrir fatlaða því það
eru margir efnilegir
fatlaðir listamenn á
Íslandi.
Samkvæmt nýjustu rannsóknum
er einn af hverjum 150 einstakling-
um með fötlun á einhverfurófinu,
Aspergerheilkenni þar með talið.
Þetta þýðir að á Íslandi eru um 2.000
einstaklingar með þessa fötlun. Mikill
minnihluti þessara einstaklinga hefur
fengið greiningu. Fötlunin er fimm til
tíu sinnum algengari meðal drengja
en stúlkna.
Núlifandi frægðarmenni með ein-
hverfu eru til að mynda tölvupopp-
arinn Gary Numan og Craig Nicholls
úr áströlsku hljómsveitinni The Vines,
tónlistargagnrýnandinn og Pulitzer-
verðlaunahafinn Tim Page og Satoshi
Tajiri, höfundur Pokémon.
Margt sögufrægt fólk hafði einkenni
einhverfu, meðal annars stórmenni á
borð við Thomas Edison, Albert Ein-
stein, Henry Ford, Mark Twain, Alfred
Hitchcock og Andy Warhol.
Frægar einhverfar persónur úr bíó-
myndum eru meðal annars Forrest
Gump, Arnie Grape (leikinn af Leon-
ardo DiCaprio) í What’s Eating Gilbert
Grape? og Raymond Babbitt (leikinn
af Dustin Hoffman) í Rain Man.
Frægir foreldrar sem eiga eða hafa
átt einhverf börn eru lagahöfundurinn
Burt Bacharach og leikkonan Angie
Dickinson, og leikararnir John Travolta
og Kelly Preston.