Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 6
6 17. október 2009 LAUGARDAGUR KIRKJAN Vel á annað hundrað manns mætti á opinn fund sem séra Gunn- ar Björnsson og stuðningsmenn hans stóðu fyrir á Selfossi í gær- kvöldi. Fundurinn hófst með því að gestir sungu saman lagið Fyrr var oft í koti kátt, og voru fundargest- ir í kjölfarið hvattir til að tjá hug sinn allan. Tilefni fundarins var mál séra Gunnars, en biskup tilkynnti honum bréfleiðis í vikunni að til stæði að færa hann til í starfi. Biskup segir í bréfinu að sér sé vel ljóst að séra Gunnar hafi verið sýknaður af ákæru um kynferðis- brot. „Þrátt fyrir þá niðurstöðu er einsýnt af öllum atvikum að djúp- stæður og alvarlegur trúnaðar- brestur hefur myndast milli yðar og þeirra sem fara með málefni safnaðarins,“ segir í bréfinu. „Slíkur trúnaðarbrestur milli sóknarprests og sóknarnefndar veldur því að kirkjulegu starfi í söfnuðinum verður ekki unnt að sinna með eðlilegum hætti ef þér komið til starfa að nýju og einingu innan sóknarinnar yrði beinlínis búin hætta af.“ Sú skylda hvíli á herðum biskups að beita sér fyrir lausn ágreiningsefna, og vegna þess að skýr krafa hafi borist frá sóknar- nefnd Selfosskirkju um að Gunn- ar snúi ekki aftur, hafi biskup því ákveðið að gera Gunnar að sérþjónustupresti út skipunartíma sinn, til 31. maí 2012. Í starfinu felist verkefni á vegum Helgisiðastofu og önnur til- fallandi verkefni og hann geti sinnt því heiman frá sér. Gunnar hefur hins vegar lýst því yfir að hann hyggist hafa ákvörð- un biskups að engu. Gunnari er þó ekki stætt á því að hunsa ákvörðunina, að sögn Gests Jónssonar, lögfræðings Biskups- stofu. Ákvörðunin sé meðal annars byggð á 36. grein laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, sem segir að stjórnvald sem skip- að hefur mann í embætti geti flutt hann í annað embætti heyri þau bæði undir stjórnvaldið. „Hann getur hins vegar borið það upp við dómstóla eins og aðrir hafi hann einhverjar efasemdir um heimildirnar,“ segir Gestur. Tíu prestar rituðu biskupi bréf í sept- ember til stuðn- ings séra Gunn- ari. Í bréfinu er áhyggjum lýst af þróun málsins, það sé hættulegt fordæmi þegar dómar Hæsta- réttar eru snið- gengnir og það sendi vond skilaboð út í íslenskt sam- félag. Taki Gunnar ekki aftur við starfi sínu á Selfossi skapist alvarleg for- dæmi sem geti orðið hættulegt öllum starfsmönnum kirkjunnar. „Nægjanlegt sé að kæra starfs- mann, þar þurfi engar hefðbundn- ar reglur samfélagsins að gilda. Þar sé starfsfólk, sem ekki hafi þau mannréttindi að hægt sé að sýkna það.“ stigur@frettabladid.is Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00 30% afsl. 5.690,- 3.983,- Helgar- tilboð KAUPUM GEGN STAÐGREIÐSLU Mercedes Benz GL, ML 320 Cdi Landrover Discovery Dísel LandCruiser 200 (bensín & dísel) Range Rover Vogue V8 Dísel Range Rover Sport Dísel Audi Q7 Dísel BMW X5 Dísel Árgerð 2007 og yngra Sendu myndir og upplýsingar í tölvupósti á: deutsche.auto@gmail.com eða hringdu í síma 821 9980. Eina lífvarðanámskeiðið á Íslandi Öryggisvarðaskólinn Kynning í kringlunni í dag (17.ókt) milli kl.10-17 14 til 28 Nóvember 2009 Terr security býður uppá starfsmöguleika á heimsvísu Sími: 698 1666 ovskoli.is STJÓRNSÝSLA Forsætisráðuneytið telur það ekki á valdi forsætisráð- herra að hnekkja ákvörðun forseta Íslands um að veita ekki aðgang að bréfum, sem forsetaskrifstofan afhenti Rannsóknarnefnd Alþing- is. Fréttablaðið óskaði eftir afritum þeirra sautján bréfa sem forseta- skrifstofan afhenti Rannsóknar- nefndinni en fékk synjun. Forseta- embættið vísaði til þess að vegna almannahagsmuna mætti undan- þiggja bréfin upplýsingarétti þar til þrjátíu ár væru liðin frá ritun þeirra. Fréttablaðið bar synjun forseta- skrifstofunnar undir forsætisráðu- neytið á þeim forsendum að sam- kvæmt 11. grein stjórnarskrárinnar sé forseti Íslands ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum. Því hafi synjunin verið á ábyrgð forsætisráðherra. Í bréfi sem Fréttablaðinu barst í gær og er undirritað af Ragnhildi Arnljótsdóttur ráðuneytisstjóra og Ágústi Geir Ágústssyni segir að ýmis verkefni forseta Íslands lúti ekki meðferð þess valds sem honum sé veitt í stjórnarskránni og ráðherrum sé falið að framkvæma á eigin ábyrgð. „Falla þar t.d. undir ýmis formleg og óformleg sam- skipti forseta Íslands við innlenda og erlenda aðila.“ Segist ráðuneyt- ið telja ljóst að bréfaskipti forsetans séu meðal þeirra verkefna. Það sé því ekki á valdi forsætisráðherra að hnekkja ákvörðun skrifstofu forset- ans. Ráðuneytið bendir á að heim- ilt sé að bera synjun forsetaskrif- stofunnar undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál, en Fréttablaðið sendi málið til meðferðar hjá nefnd- inni hinn 12. október. - pg Forsætisráðuneytið vísar frá sér ákvörðun um að afhenda bréf forseta Íslands: Tengist ekki framkvæmd valds forseta Íslands RANNSÓKN. Páll Hreinsson, formaður rannsókn- arnefndar Alþingis, skrifaði forseta Íslands bréf 11. ágúst síðastliðinn til að óska eftir upp- lýsingum um og afritum af bréfaskrifum for- setans í þágu íslenskra fjármálastofnana eða fyrirsvarsmanna þeirra á árunum 2000-2008. Auk þess að spyrja almennt um bréfaskipti þessu tengt tiltók Páll fjögur bréf sem hann bað forsetann um að afhenda nefndinni ljósrit af. Þar var um að ræða bréf til Björgólfs Thors Björgólfssonar, dagsett 11. júlí 2002 og þrjú bréf til erlendra fyrirmenna; bréf frá árinu 1998 til Jiang Zemin, fyrrerandi forseta Kína, og tvö bréf frá árinu 2005, annars vegar til Alexanders krónprins og Katrínar krónprins- essu í Serbíu og hins vegar til Georgi Parvan- ov, forseta Búlgaríu.Í svari forsetaembættisins til Páls Hreins- sonar frá 27. ágúst er getið um þrettán bréf, auk þeirra fjögurra sem rannsóknarnefndin óskaði sérstaklega eftir. „Aðeins í einu tilviki hefur forseti skrifað bréf gagngert til stuðnings íslensku fjár-málafyrirtæki, en það er bréf til forseta Kasakstans þar sem fjallað er um fyrirhugaða starfsemi Creditinfo Group í landinu,“ segir í svari Örnólfs Thorssonar forsetaritara. Síðan segir Örnólfur að í fáeinum bréfum öðrum sé vikið að starfsemi íslenskra banka í tilteknu landi en þá sé jafnframt fjallað um ýmis atriði önnur sem varða samvinnu Íslands og viðkom- andi lands. Loks sé „í örfáum bréfum vikið að bönkunum í framhjáhlaupi og einu sinni nefnt það áhugamál fyrirsvarsmanns eins þeirra að fá William Jefferson Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, til að halda ræðu á Íslandi.“ Í svari forsetaembættisins til rannsóknar- nefndar er tekið fram að forsetinn hafi sent meira en 200 bréf á árunum 2007-2008 til erlendra þjóðarleiðtoga og sendiherra, aðal- lega til stuðnings framboði Íslands til setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Listi yfir bréfin sautján sem forsetaembætt- ið lét rannsóknarnefndinni í té er birtur hér til hliðar. Forsetaembættið afhenti á föstudag blaða- manni afrit af bréfaskiptum embættisins við rannsóknarnefndina eftir að hafa áður synjað um afhendingu. peturg@frettabladid.is AÐU!KUR 9. OKTÓBER ný Ósk Aradóttir formaður Ungra ungliðahreyfing-rinnar, á lands-þingi um helg-ina. Dagný er meistara-nemi í lögfræði við Háskóla Íslands. Hún var formaður túdentaráðs kólans 2007 til 008. Í stjórn-álaályktun agið vilji að markmið um aust sam-a náttúru. og félags-þegar r er varða knar. Þing-rópusam-u evru agslífs. - kóp Aradóttir Pind:aður ung-eyfingar rn- ji num lán. æk- ðal- aði - d a rinn: ret- Rannsóknarnefnd Alþingis hefur fengið eftirfar- andi sautján bréf afhent frá forsetaembættinu. Nefndin óskaði sérstaklega eftir fjórum fyrst- töldu bréfunum. Hin þrettán eru þau sem forsetaembættið sendi nefndinni sem svar við bréfi þar sem óskað var eftir afritum af bréfum forsetans til erlendra aðila vegna erlendrar starfsemi íslenskra fjármála- stofnana: ■ Til Jiang Zemin forseta Kína, dagsett 14. ágúst l998. ■ Til Björgólfs Thors Björgólfssonar, dagsett 11. júlí, 2002.■ Til Alexanders krónprins og Katrínar krónprins- essu í Serbíu, dagsett 10. janúar 2005. ■ Til Georgi Parvanov, forseta Búlgaríu, dagsett 29. september 2005.■ Til Williams Jefferson Clinton, fyrrverandi for- seta Bandaríkjanna, dagsett, 21.10. 2004. ■ Til Hu Jintao, forseta Kína, dagsett 20.07. 2005. ■ Til Lisa Murkowski, öldungadeildarþingmanns frá Alaska, dagsett 28.11. 2005. ■ Til Nursultan A. Nazarbayev, forsta Kasakstans, dagsett 12.01. 2006.■ Til Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkj- anna, dagsett 08.01. 2007. ■ Til Shri Palaniappan Chidambaram, fjármála- ráðherra Indlands, dagsett 22.06. 2007. ■ Til Hu Jintao, forseta Kína, dagsett 01.08. 2007. ■ Til Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, dagsett 01.08. 2007.■ Til Hamad Bin Khalifa Al Thani, emírs af Katan, dagsett 04.02. 2008.■ Til Mani Shankar Ayiar, ráðherra íþrótta- og æskulýðsmála á Indlandi, dagsett 18.02. 2008. ■ Til Mohammed Bin Zayed Al Nahyan, krón- prins Abu Dhabi, dagsett 23.04. 2008. ■ Til Leon Black, forstjóra Apollo, dagsett 04.05. 2008. ■ Til Hamad Bin Khalifa Al Thani, emírs af Katar, dagsett 22.05. 2008. BRÉFIN SAUTJÁN ákvæð vilyrði hafa fengist frá mörgum íslenskum kröfuhöfum, þótt formlegar samþykktir liggi ekki fyrir. Sjóðurinn hefur fengið erlenda lögmannsstofu og ráðgjafa til að afla samþykkis erlendu kröfuhaf- anna. - afb gt fyrir a þetta óklárað; okkur, i ð fjármálaráð- ra Rússa um lán og sagðist eiga von á yfirlýsingu þeirra í dag. - kóp FJÁRMÁLARÁÐHERRA Steingrímur hittir hollenskan starfsbróður sinn í dag en í gær átti hann fund með breska fjár- málaráðherranum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ólafur skrifaði erlendum forsetum bréf um bankana Rannsóknarnefnd Alþingis óskaði eftir afritum af bréfi forseta Íslands til Björgólfs Thors Björgólfssonar og forseta Búlgaríu og Kína. Clinton, Gore, Hu Jintao og Jiang Zemin eru meðal þeirra sem forsetinn skrifaði. VEÐURSPÁ Soffía BRÉFASKIPTI Rannsóknarnefnd Alþingis óskaði eftir upplýsing- um um bréfaskriftir forsetans í þágu banka og fjármálastofn- ana 11. ágúst. Hinn 27. ágúst svaraði forsetaembættið nefndinni og lét í té afrit af 17 bréfum. Fréttablaðið hefur fengið afrit af bréfa-skiptum rannsókn-arnefndarinnar og forsetans; bréfin sautján sem um ræðir hafa hins vegar ekki verið gerð opinber. BRÉF Rannsóknarnefnd Alþingis ósk- aði eftir bréfum sem forsetinn hefði skrifað til stuðnings fjármálastofnun- um eða forsvarsmönnum þeirra og fékk sautján bréf til rannsóknar. Ætlar þú á Airwaves? Já 3% Nei 97% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ertu farin(n) að huga að jólunum? Segðu skoðun þína á visir.is. Séra Gunnar getur ekki hunsað biskup Biskup taldi sér skylt að leysa ágreininginn í Selfosssókn með því að flytja séra Gunnar Björnsson til í embætti. Gunnari er ekki stætt á að hunsa ákvörðunina. Fullt var út úr dyrum á borgarafundi Gunnars og stuðningsmanna hans í gær. Eftirtaldir prestar undirrita bréfið til biskups sem skrifað er til stuðn- ings séra Gunnari: ■ Auður Eir Vilhjálmsdóttir, sér- þjónustuprestur ■ Dalla Þórðardóttir, prófastur í Skagafirði ■ Gísli Gunnarsson, sóknarprestur í Glaumbæ ■ Guðmundur Þorsteinsson, fyrrverandi dómprófastur ■ Gunnar Sigurjónsson, sóknar- prestur í Digraneskirkju ■ Jón Ragnarsson, sóknarprestur í Hveragerði ■ Valgeir Ástráðsson, sóknarprest- ur í Seljakirkju ■ Vigfús Þór Árnason, sóknar- prestur í Grafarvogskirkju ■ Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur STUÐNINGSMENN SÉRA GUNNARS SÉRA GUNNAR BJÖRNSSON Er verulega ósáttur við ákvörðun biskups. DÓMSMÁL Héraðsdómur hefur sýknað fyrrverandi starfsmenn fréttaskýringarþáttarins Kompáss af skaðabótakröfu Benjamíns Þórs Þorgrímssonar, sem Kompás festi á filmu á laun þegar hann veittist að Ragnari Magnússyni veitinga- manni. Benjamín taldi Kompásmenn hafa brotið gegn friðhelgi einkalífs síns með því að sýna myndskeiðið í sjónvarpi og höfðaði mál á hend- ur þeim Jóhannesi Kr. Kristjáns- syni og Kristni Hrafnssyni, auk 365 miðla og forstjóranum Ara Edwald. Benjamín krafðist tíu milljóna í bætur. „Þótt aðalefni myndskeiðs- ins og umfjöllunar stefndu hafi verið hinar ólögmætu starfsað- ferðir stefnanda, verður að telja að birting myndar af honum hafi, eins og hér háttaði til, ekki falið í sér brot gegn rétti stefnanda til eigin myndar,“ segir í dómnum. „Að áliti dómsins hafði almenn- ingur augljósa hagsmuni af því að þekkja stefnanda og starfsaðferð- ir hans, og mun meiri en stefnandi af því að upptakan yrði ekki birt. Jafnframt er það álit dómsins að umfjöllun stefndu um stefnanda hafi í umrætt sinn bæði verið mál- efnaleg og byggð á staðreyndum.“ Benjamín er dæmdur til að greiða hverjum hinna stefndu 170 þúsund krónur í málskostnað. Dómnum verður áfrýjað, að sögn Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, lög- manns Benjamíns. - sh Benjamín Þór Þorgrímsson tapar skaðabótamáli vegna Kompássþáttar: Blaðamenn Kompáss sýknaðir ÚR ÞÆTTINUM Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að hagsmunir almennings af því að sjá Benjamín og starfsaðferðir hans hafi vegið þyngra en friðhelgi einkalífs hans. MYND/STÖÐ 2 ÍSRAEL, AP Mannréttindaráð Sam- einuðu þjóðanna ákvað í gær að skýrsla um mannréttinda- brot Ísraela og Palestínumanna í þriggja vikna stríði á Gasaströnd um síðustu áramót verði send Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til umfjöllunar. Bæði Ísraelar og Palestínumenn hafa gagnrýnt skýrsluna, en þar er því haldið fram að mannréttindabrot hafi verið framin á báða bóga. Ísraelar hafa verið andvígir því að ráðið fjalli um skýrsluna, en Palestínumenn hafa verið tvístíg- andi. Talsmaður Palestínustjórn- ar, fagnaði því í gær að skýrslan fari fyrir Öryggisráðið. - gb Mannréttindaráð SÞ: Gasaskýrslan til Öryggisráðsins KJÖRKASSINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.