Fréttablaðið - 17.10.2009, Síða 82
17. október 2009 LAUGARDAGUR
„Okkur fannst alveg upplagt að
gefa ís við opnun sýningarinnar
og vorum svo heppnar að Ísbúð
Vesturbæjar styrkti okkur höfð-
inglega,“ segir Julia Staples,
en hún og samlanda hennar frá
Bandaríkjunum, Lana Vogestad,
halda samsýninguna No man‘s
land þessa dagana í Lost Horse
Galleríinu að Vitastíg 9a. Þær
endurtaka ísgjöfina í dag frá kl.
13-19, eða eins lengi og birgð-
ir endast. Auk listarinnar og
íssins verður boðið upp á lifandi
órafmagnaða tónlist í dag. Skúli
Þórðarson, Snorri Helgason,
Una Sveinbjarnardóttir, Adda og
hljómsveitin Reykjavík! koma
fram.
Gefins ís á
Vitastíg
Baldvin Jónsson hefur verið
valinn í undirbúningsnefnd
fyrir hina þekktu matar-
messu Fanzy Food Show
sem verður haldin í Wash-
ington árið 2011.
„Auðvitað er þetta mikil viður-
kenning. Það er afskaplega gaman
að því þegar einhver tekur eftir
því að maður er að gera eitthvað
viturlegt en þetta er ekkert annað
en vinna,“ segir Baldvin Jónsson.
Hópurinn á að vinna að því að
gera Washington að sælkeraborg
Bandaríkjanna árið 2011 og er
hátíðin hluti af þeirri áætlun. Sjö
manns voru valdir í hópinn og er
Baldvin eini útlendingurinn. „Það
er ekki verið að velja núna Frakka,
Spánverja eða Ítali. Það er verið
að velja Íslendinga og það kitlar
pínulítið hégómagirndina því ég
hef verið mjög stoltur af íslenska
matnum,“ segir hann.
Baldvin er búsettur í Wash-
ington þar sem hann hefur unnið
ötullega að kynningu íslenskrar
matargerðar. Að auki hefur hann
unnið að Food & Fun-hátíðinni í
Reykjavík undanfarin ár ásamt
Sigga Hall. Food & Fun hefur
vakið mikla athygli utan land-
steinanna, meðal annars í Wash-
ington. „Þeim finnst áhugavert
það sem við erum að gera heima.
Þar höfum við verið að tengja
saman matreiðslumeistara víða
að úr heiminum og við erum núna
búin að fá þessa viðurkenningu,“
segir hann og bætir við að tíma-
ritið Forbes hafi valið Food & Fun
sem eina af fremstu matarhátíð-
um heimsins.
Fanzy Food-sýningin hefur
undanfarin ár verið haldin í New
York en flyst til Washington 2011.
„Fanzy Food-sýningin er risastór
sýning sem gengur út á sælkera-
mat. Við höfum verið að reyna
að ná fótfestu á þeim markaði og
það er að takast. Við getum aldrei
brauðfætt alheiminn en þurfum
að finna hillur þar sem fólk kann
að meta okkar afurðir og þær eru
alltaf dýrar.“ freyr@frettabladid.is
Íslendingur undirbýr matar-
messu í Washington
GLAÐIR KOKKAR Baldvin Jónsson, lengst til vinstri á myndinni, hefur verið valinn í und-
irbúningsnefnd fyrir matarmessuna Fanzy Food Show sem verður haldin í Washington.
Á myndinni eru hann og Siggi Hall með danska kokkinn Claus Henriksen á milli sín.
Við opnum nýja Ísbúð og veitum 30% kynningarafslátt
af öllum ísréttum, samlokum, salötum og gosi
17-26 okt.
Nýbýlavegi 32 Nýbýlavegi 32
Opið til 22:00 alla daga
Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands
standa saman að Eyrarrósinni, viðurkenningu sem veitt
er árlega einu afburða menningarverkefni á starfssvæði
Byggða stofnunar á landsbyggðinni. Fyrstu Eyrarrósina, árið
2005, hlaut Þjóðlagahátíðin á Siglufirði; 2006 féll hún í skaut
LungA, Listahátíðar ungs fólks á Austurlandi; Eyrarrósina
2007 hlaut Strandagaldur á Hólma vík, árið 2008 kom hún
í hlut hinnar ísfirsku Rokkhátíðar alþýð unnar; Aldrei fór ég
suður, og á þessu ári hlaut Landnámssetrið í Borgarnesi
Eyrarrósina.
• Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni úr hópi
umsækjenda um Eyrarrósina 2010
• Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, 1.500.000 kr.
og verðlaunagrip til eignar
• Viðurkenningin verður afhent í ársbyrjun 2010 á
Bessastöðum
• Verkefnið sem hlýtur viðurkenninguna fær
sérstaka kynningu í tengslum við Listahátíð
í Reykjavík 2010
• Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff
forsetafrú
Framúrskarandi
menningarstarf
á landsbyggðinni
HÉR MEÐ ER AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM
UM EYRARRÓSINA 2010
UMSÓKNUM SKAL FYLGJA:
Lýsing á verkefninu
Lögð skal fram greinagóð lýsing á verkefninu; umfangi þess,
sögu og markmiðum.
Tíma- og verkáætlun
Gerð skal grein fyrir stöðu og áætlaðri framvindu
verkefnisins og áformum á árinu 2010. Skilyrði er að
verkefninu hafi nú þegar verið hleypt af stokkunum.
Upplýsingar um aðstandendur
Lagðar skulu fram ítarlegar upplýsingar um helstu aðila sem
að verkefninu standa og grein gerð fyrir þeirra þætti í því.
Fjárhagsáætlun
Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins á þessu ári.
Uppgjör ársins 2008 fylgi umsókn.
• Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar upplýsingar
verður hún ekki tekin til greina
• Umsækjendur geta verið m.a. stofnun, safn,
tímabundið verkefni eða menningarhátíð
• Umsóknarfrestur er til 16. nóvember 2009
og verður öllum umsóknum svarað
• Viðurkenningin verður veitt í ársbyrjun 2010
• Umsóknir skal senda til Listahátíðar í Reykjavík,
pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar „Eyrarrósin“
Allar nánari upplýsingar veitir
framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík
í síma 561 2444, johanna@artfest.is
www.listahatid.is
Í
Í