Fréttablaðið - 17.10.2009, Síða 86
58 17. október 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Landsliðsfyrirliðinn
Rakel Dögg Bragadóttir hefur
ekki fengið mörg tækifæri með liði
sínu, Vejen, í dönsku úrvalsdeild-
inni í handbolta í vetur. Hún hefur
því verið að hugsa sinn gang.
„Þetta er búið að ganga upp og
ofan,“ sagði Rakel við Fréttablað-
ið í gær. „Mér gekk mjög vel eftir
áramót á síðasta tímabili en svo
hefur þetta farið illa af stað í haust
að mér finnst. Ég hef lítið fengið að
spila og er ekki nógu sátt við þjálf-
arana og fleira í þeim dúr.“
Hún hefur því verið að hugsa sér
til hreyfings. „Það kemur í ljós á
næstu dögum eða vikum hvern-
ig þetta fer hjá mér. Ég hef í það
minnsta verið að hugsa minn gang
vel og vandlega. Ég vil auðvitað fá
að komast í lið þar sem ég fæ að
spila. Ég hef til að mynda mikinn
metnað fyrir landsliðinu og ég þarf
að vera í toppformi fyrir verkefni
þess. Það gerist ekki nema ég fái
að spila með mínu félagsliði,“ segir
Rakel.
Hún hefur þó ekki hug á að
halda heim á leið. „Nei, ekki nema
eitthvað mikið gerist í mínum
málum. Ég á mörg ár eftir í boltan-
um og mér líður mjög vel úti í Dan-
mörku. Ég hef líka verið að sinna
mínu námi með boltanum og mun
útskrifast frá Háskóla Íslands nú í
vor. Stefnan er svo að fara í fram-
haldsnám og halda einnig áfram í
handboltanum.“
Rakel varð margfaldur Íslands-
og bikarmeistari með Stjörnunni
áður en hún hélt til Danmerkur.
Hún á að baki 62 landsleiki og
hefur skorað í þeim 189 mörk.
KIF Vejen er nú í sjötta sæti
dönsku úrvalsdeildarinnar með
sex stig eftir sex leiki. Rakel hefur
enn ekki fengið tækifæri með lið-
inu í haust.
- esá
Rakel Dögg Bragadóttir hefur fá tækifæri fengið með Vejen í Danmörku:
Vil komast að hjá nýju félagi
RAKEL DÖGG Hér í leik með íslenska landsliðinu fyrr á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Í vikunni lék Ísland sinn
fyrsta leik í undankeppni Evrópu-
meistaramótsins sem haldið verð-
ur í Noregi og Danmörku í desem-
ber á næsta ári. Ísland tapaði þá
fyrir Frakklandi ytra en getur náð
sér á strik með sigri á Austurríki í
Vodafone-höllinni á morgun. Leik-
urinn hefst klukkan 16.
Auk fyrrgreindra þriggja liða
er Bretland í riðlinum en þau lið
sem verða í efstu tveimur sætun-
um í riðlinum komast beint á EM.
Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari,
segir möguleika íslenska liðsins
góða í leiknum á morgun.
„Við vorum mjög ánægð með
dráttinn á sínum tíma þó svo að
við vissum ekki nákvæmlega um
styrkleika Austurríkis þá. Liðið
hefur þó verið að missa gamlar
stjörnur og því kom smá millibils-
ástand á meðan kynslóðaskipti
áttu sér stað. Austurríki hefur
hins vegar verið frægt fyrir það að
safna liði með því að gefa erlend-
um leikmönnum vegabréf þegar
mest þarf á að halda og það er búið
að vera að gerast núna.“
Hann á því von á sterku aust-
urrísku liði á morgun en metur
möguleika íslenska liðsins engu að
síður góða. „Ég hef verið að skoða
myndefni með þessu liði eins og
það lítur út í dag og við eigum fína
möguleika gegn því.“
Ætli Ísland sér til Noregs og
Danmerkur er ljóst að liðið þarf
helst tvö stig í þessum leik. Frakk-
land er fyrir fram talið með sterk-
asta liðið í riðlinum og ætti að
eiga greiða leið í úrslitakeppn-
ina. Ísland og Austurríki munu
því líklega berjast um annað sæti
riðilsins þó svo að Júlíus vilji ekki
afskrifa Breta, sem hafa ekki verið
þekktir fyrir mikla handboltaiðk-
un.
„Möguleikar okkar eru góðir og
við ætlum okkur að sækja stíft að
því að komast á þetta mót,“ sagði
Júlíus. Ísland hefur aldrei áður
tekið þátt í stórmóti í handbolta
kvenna áður og segir hann að tími
sé kominn til að brjóta þann múr.
„Lið sem koma sér inn á stórmót
í fyrsta sinn koma alltaf til með að
græða á því eins og dæmi kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu sýnir.
Það þarf að brjóta ísinn og byggja
upp til framtíðar.“
Rakel Dögg Bragadóttir á von á
hörkuleik en hún segir leikmenn
vel í stakk búna fyrir átökin.
„Við erum hrikalega spennt-
ar fyrir því að fá að spila þenn-
an leik. Okkar möguleikar eru án
nokkurs vafa mjög raunhæfir enda
erum við með sterkt lið og að spila
á heimavelli. Með fullri höll stuðn-
ingsmanna eigum við fína mögu-
leika,“ sagði hún og hvatti alla
handboltaáhugamenn til að fjöl-
menna á leikinn.
Austurríki vann á miðvikudag-
inn Bretland í hinum leik fyrstu
umferðar riðlakeppninnar, 30-20.
Ísland tapaði fyrir Frakklandi á
sama tíma, 32-23.
eirikur@frettabladid.is
Ætlum okkur á stórmót
Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari segir að íslenska landsliðið eigi góðan mögu-
leika á að komast á stórmót í handbolta í fyrsta sinn. Til þess þarf liðið þó að
vinna sigur á Austurríki í afar mikilvægum leik í Vodafone-höllinni á morgun.
KLÁR Í SLAGINN Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari og leikmennirnir Rakel Dögg Braga-
dóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
> Forsala í verslunum Lyfju
Forsala verður í fimm verslunum
Lyfju á höfuðborgarsvæðinu fyrir
leik Íslands og Austurríkis sem fer
fram í Vodafone-höllinni á morgun
klukkan 16. Landsliðskonur munu
svo mæta sjálfar í verslanir Lyfju á
milli 14 og 18 í dag þar sem hægt verður
að kaupa tvo miða á verði eins – 1.000
krónur. Það tilboð er þó í gildi alla helgina.
Lyfja hefur verið aðalstyrktaraðili íslenska
kvennalandsliðsins í handbolta undanfarin
misseri og verður áfram. Í gær var nýr
samstarfssamningur á milli HSÍ og Lyfju
undirritaður.
Haukar taka á móti pólska liðinu Wisla Plock í Evrópukeppni
félagsliða í klukkan 16.00 dag. Um síðari leik liðanna er að
ræða en Haukar standa ágætlega að vígi eftir að hafa tapað
leiknum ytra með aðeins tveimur mörkum.
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, biðlar til íslenskra áhorf-
enda að mæta á völlinn í dag enda er búist við talsverðum
fjölda Pólverja á leikinn.
„Það var strax í sumar að ég fór að fá hringingar frá Pól-
verjum sem sýndu leiknum áhuga og vildu bara kaupa miða
strax. Það er þegar búið að selja um fimmtíu Pólverjum miða í
forsölu og það kemur um þrjátíu manna hópur með liðinu frá
Póllandi. Ofan á það mun fjöldi kaupa miða á leikdegi og ég
býst því við nokkur hundruð Pólverjum á leikinn. Það er því
algjört lykilatriði að íslenskir áhorfendur fjölmenni á völlinn
því heimavöllurinn okkar má ekki breytast í útivöll,“ sagði
Aron.
Haukarnir fóru nýstárlega leið til þess að auglýsa
leikinn en í auglýsingum sem var dreift um Hafnarfjörð
var hann auglýstur bæði á íslensku og pólsku.
Haukunum hefur ekki gengið sérstaklega vel í fyrstu leikjun-
um sínum í N1-deildinni og því er ljóst að þeir hittu á betri
leik í Póllandi.
„Sá leikur var talsvert betri en leikirnir hér heima. Vörnin
var ágæt gegn Stjörnunni, sem og markvarslan, en úti
í Póllandi kom sóknarleikurinn líka. Menn voru miklu
beinskeyttari í öllum aðgerðum. Við tókum skref fram á við
en stigum ansi mörg skref aftur á bak þegar Akureyri kom
í heimsókn,“ sagði Aron og bætir við að hans lið þurfi að
eiga toppleik til að vinna leikinn enda sé pólska liðið
firnasterkt.
„Það er búið að setja mikinn pening í þetta
lið, sem er meðal annars með sterka danska og
norska leikmenn. Þarna er til að mynda Lars Möll-
er Madsen sem skaut íslenska landsliðið í kaf á
HM 2006. Svo er danskur þjálfari með liðið. Það
er pressa á þeim enda ætlast til að liðið komist
áfram miðað við hvað búið er að leggja í það,“
sagði Aron Kristjánsson.
ARON KRISTJÁNSSON, ÞJÁLFARI HAUKA: BÝST VIÐ NOKKUR HUNDRUÐ PÓLVERJUM Á ÁSVÖLLUM Í DAG
Heimavöllurinn okkar má ekki breytast í útivöll
FÓTBOLTI Boltinn byrjar að
rúlla á nýjan leik í ensku
úrvalsdeildinni í dag eftir
landsleikjahlé og að vanda
eru margir áhugaverð-
ir leikir í boði.
„Stóru fjögur“
liðin verða öll í eld-
línunni í dag og
dagskráin hefst
á Villa Park
með hádegisleik
toppliðs Chelsea
og Aston Villa
en Chelsea hefur
unnið sjö af átta
leikjum sínum í
deildinni til þessa.
Englandsmeist-
arar Manchester United fá
Grétar Rafn Steinsson og
félaga í Bolton í heimsókn
á Old Trafford og Arsenal
tekur á móti nýliðum Birm-
ingham á Emirates-leikvang-
inum.
Þá heimsækir Liverpool
Leikvang ljóssins og mætir
Sunderland en Steven Gerr-
ard og Fernando Torres eru
fjarri góðu gamni hjá Liver-
pool vegna meiðsla. - óþ
Enska úrvalsdeildin fer aftur af stað um helgina:
Gerrard og Torres
ekki með Liverpool
ÓLEIKFÆR Fernando Torres getur
ekki leikið með Liverpool í dag
frekar en Steven Gerrard.
NORDIC PHOTOS/AFP
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
Gólfþjónustan er með sérlausnir
í smíði borða fyrir fyrirtæki
og heimili svo sem fundarborð,
eldhús- og borðstofuborð.
SÉRSMÍÐI ÚR
PARKETI
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225