Fréttablaðið - 24.10.2009, Page 28

Fréttablaðið - 24.10.2009, Page 28
28 24. október 2009 LAUGARDAGUR H inir valinkunnu poppspekúl- antar, sem allir eiga það sam- eiginlegt að ýmist vinna fyrir sér með tónlistarumfjöllun eða eru þekktir fyrir yfirgrips- mikla þekkingu og allt að því undarlega mikinn áhuga á öllum popp-tengdum hlutum, voru beðnir um að gera lista yfir þrjá bestu Íslendingana, lífs og liðna, í þeim stöð- um sem skipað hafa flestar popphljómsveitir frá því í árdaga. Efsta sæti í hverjum flokki gaf viðkomandi tónlistarmanni þrjú stig, annað sætið tvö stig og þriðja sætið eitt stig. Álitsgjafarnir voru einungis beðnir um að nefna þrjá bestu einstaklingana í hverri stöðu fyrir sig, alls óháð því hvernig sigurvegararn- ir í hverjum flokki myndu pluma sig saman í hljómsveit. Það er svo lesenda að geta sér til um hvernig þessi ímyndunar-súpergrúppa Íslands- sögunnar hefði hljómað á sviði og plötu. Eitt er þó víst; Það er valinn maður í hverju rúmi. Fréttablaðið leitaði álits tæpra fjörutíu af helstu poppspekingum þjóðarinnar á því hvaða íslensku popptónlistarmenn hefðu skar- að fram úr á sínu sviði í gegnum tíðina. Kjartan Guðmundsson brá á leik og myndaði ímyndaða súpergrúppu þjóðarinnar. Arnar Eggert Thoroddsen Ágúst Bogason Ásgeir Tómasson Bergþóra Jónsdóttir Bertel Andrésson Björn Gunnlaugsson Bobby Breiðholt Dr. Gunni Felix Bergsson Freyr Bjarnason Freyr Eyjólfsson Georg Magnússon Gestur Guðmundsson Guðni Már Henningsson Heiða Eiríksdóttir Helga Þórey Jónsdóttir Hildur Maral Hamíðsdóttir Jens Guð Jón Agnar Ólason Jónatan Garðarsson Klemens Ólafur Þrastarson Kolbrún Björt Sigfúsdóttir Kristinn Gunnar Blöndal Kristinn Pálsson Magnús Einarsson Margrét Erla Maack Ólafur Páll Gunnarsson Snorri Sturluson Steinþór Helgi Arnsteinsson Stígur Helgason Sveinn Birkir Björnsson Trausti Júlíusson Þórður Helgi Þórðarson Þórleifur Ásgeirsson Ölvir Gíslason ÁLITSGJAFAR FRÉTTABLAÐSINS VORU: „Það er alltaf verið að hengja á mann hina ýmsu titla. Menn gera sér margt til gamans og dundurs. En það er gaman að þessu,“ segir Egill Ólafsson, besti poppsöngvari Íslandssög- unnar að mati álitsgjafa blaðsins. „Angist listamannsins er sú að í eigin huga er hann aldrei betri en það síðasta sem hann gerði. Ég er nokkuð vel haldinn í því tilliti núna, var að koma frá Akureyri þar sem Þurs- arnir héldu tónleika. Við vorum helvíti góðir,“ segir Egill og bendir á að Þursaflokkurinn verði með tónleika í Reykjavík hinn 14. næsta mánaðar. Spurður hvernig honum lítist á samherja sína í hinni ímynduðu ofurgrúppu segir Egill að mjög gaman hefði verið að heyra hvernig bandið hefði hljómað. „Ég er og var málkunn- ugur öllu þessu fólki og þetta eru allt snill- ingar,“ segir Egill og bætir við að hann hafi einnig þekkt alla sem urðu fyrir neðan hann á listanum yfir fimm bestu söngvarana. „Á þessum lista tel ég mig vera meðal jafningja, en alls ekki fremstan meðal jafningja. Annars eru margir sem misskilja og halda að hægt sé að keppa í tónlist. Menn geta keppt í hundrað metra hlaupi og hverju sem þeir vilja og þar deilir enginn um úrslitin, en það sama á ekki við um tónlistina. Sem betur fer. Þess vegna er ég ekki hundrað metra hlaupari,“ segir Egill Ólafsson og skellir upp úr. ➜ ALDREI BETRI EN ÞAÐ SEM ÉG GERÐI SÍÐAST➜ HEF UNNIÐ MEÐ ÖLLUM NEMA GUNNARI „Ég er ánægður með þetta. Þetta er frábært og ég er þakklátur fólki fyrir að hafa nefnt mig á nafn í þessu samhengi,“ segir Jakob Smári Magnússon, sem álitsgjafar blaðsins telja besta bassaleikara Íslandssögunnar. Aðspurður segist Jakob allt eins hafa búist við því að verða meðal fimm efstu í könnun- inni. „Þegar Íslensku tónlistarverðlaunin voru veitt til hljóðfæraleikara á sínum tíma var ég alltaf á topp fimm, en náði bara að vinna einu sinni. Þannig að það kemur mér nokkuð á óvart að vera efstur. Ég hef nú spilað mikið og lengi og verið áberandi, svo það er kannski ekki óeðlilegt að nafn manns komi upp.“ Jakob segir hina ímynduðu súpergrúppu skipaða einvalaliði. „Einhvern tímann á lífsleið- inni hef ég unnið með öllu þessu fólki, nema Gunnari Jökli. Ég var með Björk í Tappa Tíkar- rassi, hef spilað heilan helling með Guðmundi Péturssyni og svo lék Kalli Sighvats inn á eina plötu með SSSól. Þetta er allt frábært fólk.“ Bassaleikarinn telur líklegt að samstarfið hefði getað gengið. „Eitthvað hefði kannski þurft að miðla málum, svona tónlistarlega séð, en þetta hefði eflaust getað orðið hin fínasta plata. Ég gæti kannski ímyndað mér að bandið hefði hljómað eins og blanda af Tappa Tíkarrassi og Þursaflokknum, með smá Hendrix-fíling frá Gumma,“ segir Jakob Smári Magnússon. 1. Björk Guðmundsdóttir (58 stig) „Röddin hennar og tóngerningar opna sífellt fyrir manni nýja heima sem maður vissi ekki að væru til.“ 2. Ellý Vilhjálms (38 stig) 3. Ragnhildur Gísladóttir (20 stig) 4. Andrea Gylfadóttir (16 stig) 5. Ellen Kristjánsdóttir (15 stig) BESTA SÖNGKONAN 1. Jakob Smári Magnússon (27 stig) „Flinkur, þéttur, fljót- andi...allt sem hægt er að segja jákvætt og uppbyggilegt um hljóðfæraleik á við um Jakob og bassana hans.“ 2. Tómas Tómasson (26 stig) 3. Pálmi Gunnarsson (20 stig) 4. Bragi Ólafsson (13 stig) 5. Skúli Sverrisson (12 stig) BESTI BASSALEIKARINN 1. Guðmundur Pétursson (46 stig) „Fjölhæfur gítar- leikari sem hefur leikið flestalla stíla í gegnum tíðina af smekk- vísi. Hann lætur lítið yfir sér en handbragð hans er ætíð auðþekkj- anlegt.“ 2. Björgvin Gíslason (22 stig) 3. Þorsteinn Magnússon (17 stig) 4. Gunnar Þórðarson (13 stig) 5/6. Guðlaugur Kristinn Óttarsson (6 stig) 5/6. Halldór Bragason (6 stig) BESTI GÍTARLEIKARINN 1. Karl Sighvatsson (57 stig) „Allir aðrir eru hjóm í samanburði. Hefði háð heiðarlega bar- áttu við Manzarek um sæti í Doors, ef hann hefði ekki álpast til að fæðast á Íslandi.“ 2. Eyþór Gunnarsson (28 stig) 3. Davíð Þór Jónsson (25 stig) 4. Jakob Frímann Magnússon (11 stig) 5. Magnús Kjartansson (8 stig) BESTI HLJÓM- BORÐSLEIKARINN 1. Egill Ólafsson (34 stig) „Hinn sígildi íslenski popp- söngvari, eldist eins og eðalskoti.“ 2. Vilhjálmur Vilhjálmsson (25 stig) 3. Haukur Morthens (22 stig) 4. Megas (12 stig) 5/6. Páll Rósinkrans (10 stig) 5/6. Stefán Hilmarsson (10 stig) BESTI SÖNGVARINN 1. Gunnar Jökull Hákonarson (40 stig) „Það var eins og orkumikill trommu- leikur hans smitaði yfir í hljóðfæraleik meðspilara og allur flutningur öðlaðist líflegt og frísklegt yfirbragð.“ 2. Sigtryggur Baldursson (37 stig) 3. Ásgeir Óskarsson (19 stig) 4. Gunnlaugur Briem (14 stig) 5. Björn Stefánsson (9 stig) BESTI TROMMARINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.