Fréttablaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 74
 24. október 2009 LAUGARDAGUR Bókmenntir ★★★★★ Milli trjánna Gyrðir Elíasson Í stuttri grein um stöðu smásög- unnar fyrir þremur árum líkti Ólafur Gunnarsson þessu bók- menntaformi við geisladisk: „Á geisladiski er ekki sama lagið spil- að diskinn út í gegn. Þar eru mörg lög. Hvort sem um er að ræða blús, rapp, pönk, rokk eða diskó.“ Þessi líking á ágætlega við verk Gyrðis Elíassonar, það hefur allt- af verið mikið af tónlist í verkum hans – hann er meira að segja far- inn að nota iPod. Og ef við höldum okkur á þessum slóðum má segja að smásagnasafnið Milli trjánna sé fyrsta tvöfalda albúm Gyrðis, helmingi lengra en bækur hans hafa verið hingað til, 47 sögur á 267 blaðsíðum. Í því felst ákveðin yfir- lýsing, viss kokhreysti sem lesand- inn hefur óneitanlega í huga áður en hann kveður upp sinn dóm. Það er skemmst frá því að segja að Milli trjánna er frábært safn – þetta er verk af sömu hlaupvídd og Revolver eða Blood on the Tracks eða London Calling eða hvað sem á annað borð höfðar til manns, Abba: Gold ef út í það er farið – hreinn og beinn listgaldur. Smásagnasafn er vel að athuga ekki safnplata, en hver sá listamaður sem gæti safn- að í „greatest hits“ plötu af þessu gæðastigi væri fullsæmdur af sínum ferli. Milli trjánna er vissulega afskap- lega „gyrðislegt“ verk, stútfullt af hversdagslegum furðum, daðri við óhugnað, klikkun og ísmeygi- legri fyndni. Yfir þessu svífur hins vegar frískur andi sem ég hef ekki fundið fyrir hjá höfundinum lengi; togstreitan er eindregnari og fyll- ir bilið milli orðanna, háskinn og galsinn dansa hraðan rokkabillí, til dæmis í Dagleiðinni löngu, sem er mögulega fyndnasta saga sem ég hef lesið en er þó hreint ekkert gamanmál. Hjá þeim sem hér skrifar skilur þessi bók eftir sig tilfinningu fyrir endurnýjaðri ástríðu höfundarins fyrir skáldskapnum; að minnsta kosti er eins og það hafi eitthvað komið fyrir Gyrði, eitthvað gott. Síðasta bók, Sandárbókin – Past- óralsónata, var fyrst og fremst blús, tragísk hljómkviða þar sem dimmu nóturnar réðu ferðinni og rifu mann með sér í rökkrið. Hér stingur Gyrðir hins vegar gítarn- um í samband, telur í og skáldar um Strindberg í Ikea. Það kveð- ur sem sagt við nýjan, en um leið kunnuglegan, tón. „Það væri gaman ef íslenskir rithöfundar færu aftur að djamma og setja saman þessi stuttu lög,“ skrifaði Ólafur Gunnarsson. Ég veit ekkert um það hvort Gyrðir las þessa grein hans, en ef svo er hefur hann tekið hann á orðinu. Milli trjánna er verk samið af höfundi, sem hefur náð fullkomnum tökum á list sinni, liggur mikið á hjarta og kemur því til skila af leiftrandi sköpunargleði. Smásagan held- ur hljómleika, svo ég steli enn frá Ólafi, og arkar fram á sviðið í öllu sínu demóníska veldi. Bergsteinn Sigurðsson Niðurstaða: Hreinn og beinn list- galdur. Smásögur halda hljómleika BÓKMENNTIR Gyrðir Elíasson hefur gefið frá sér stórt lagasafn sem jafnast á við Hvíta albúmið eða Exile on Main street. Eða er það Bitches Brew? Myndir af híbýlum okkar eru fátíðar þótt á undanförnum árum hafi nokkrir sinnt skráningu á þeim vettvangi: Ívar Brynjúlfs- son í sínum ljósmyndaseríum, Roni Horn skoðaði stöðu Herðu- breiðarmálverka Stefáns Jóns- sonar á heimilum. Þá hafa inn- lendir og erlendir ljósmyndarar fylgt í slóð Dieters Roth sem festi skipulega á filmu öll hús á Íslandi á áttunda og níunda áratug síð- ustu aldar sem er einstakt safn og ómetanlegt. Í dag opnar Unnar Örn sýningu í Galleríi Ágúst þar sem hann sýnir meðal annars ljósmyndir teknar af híbýlum Íslendinga á fyrri hluta tuttugustu aldar sem safnað var af Sigurði Guttormssyni, banka- starfsmanni og umbótamanni frá Vestmannaeyjum. Sigurður ferðaðist um Ísland á árunum 1930-1945 og tók myndir af húsa- kosti landsmanna sem hann taldi til merkis um óviðunandi lífsskil- yrði alþýðufólks. Alls voru mynd- irnar sem Sigurður safnaði um 230 og veita þær óvenjulega og raunsæja innsýn í líf Íslendinga á þessum tíma. Þessar myndir hafa aldrei áður verið sýndar í heild sinni. Unnar Örn (1974) býr og starfar í Reykjavík og Atlanta í Bandaríkjunum. Hann útskrifað- ist frá Myndlista- og Handíðaskóla Íslands 1999 og lauk mastersnámi við Malmö Art Academy í Svíþjóð 2003. Frá árinu 1999 hefur hann tekið þátt í fjöldamörgum einka- og samsýningum víða um heim, þar af nýlega í Safnasafninu á Svalbarðsströnd, sýningarým- inu Suðsuðvestur í Reykjanesbæ og Listasafni Akureyrar. Gallerí Ágúst er þægilega staðsett í mið- bænum á Baldursgötu 12 (Nönnu- götumegin á Baldurstorgi) beint fyrir neðan veitingastaðinn Þrjá Frakka. Gallerí Ágúst er í samstarfi við Reykjavíkurborg. - pbb Kofar og kytrur MYNDLIST Árnastaðir við Seyðisfjörð. MYND/SIGURÐUR GUTTORMSSON (GALLERÍ ÁGÚST) Aukatónleikar Í S L E N S K A Ó P E R A N Fjörug og fróðleg fjölskyldusýning í Borgarleikhúsinu. Leikhópurinn Opið út í samstarfi við Borgarleikhúsið. Ævintýraferð um undraheima vatnsins „Sú bábilja…að fræðsla eigi ekki heima í leikhúsi er hér barin niður með skellihlátri og kærleik til alls sem lifir og streymir. Yndisleg sýning fyrir börn frá sex eða átta ára aldri og foreldra þeirra, afa og ömmur.“ María Kristjánsdóttir, eyjan.is „Bláa gullið er vel unnin, falleg og vel leikin sýning.“ Guðmundur Brynjólfsson, Mbl. „Tær og falleg sýning fyrir skynsamar verur frá sex til níræðs.“ Páll Baldvin Baldvinsson, Fbl. Miðasala er í síma 568 8000 og á borgarleikhus.is Næstu sýningar· í dag kl. 14 · sunnudag kl. 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.