Fréttablaðið - 24.10.2009, Side 68

Fréttablaðið - 24.10.2009, Side 68
44 24. október 2009 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is MERKISATBURÐIR 1648 Þrjátíu ára stríðinu lýkur með undirritun friðar- samninga í Münster í Vestfalíu. Samningarnir fela meðal annars í sér viðurkenningu á sjálf- stæði Sviss. 1945 Sameinuðu þjóðirnar verða til sem alþjóða- samtök. 1975 Íslenskar konur leggja niður vinnu til þess að sýna fram á mikilvægi kvenna í atvinnulífinu á Kvennafrídeginum. 1975 Sjónvarpsútsendingar í lit hefjast hjá Ríkisútvarpinu. 1988 Stöð 2 stendur fyrir heimsbikarmóti í skák, sem fram fer í Borgarleik- húsinu í Reykjavík. 2003 Síðasta áætlunarflug Concorde-þotu. BILL WYMAN FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1936. „Ég á mér mjög skemmtileg áhugamál, eins og fornleifa- fræði og ljósmyndun.“ Bill Wyman var bassaleikari hljómsveitarinnar Rolling Stones frá stofnun sveitarinnar til ársins 1992. AFMÆLI MAGNÚS JÓNSSON leikari er 44 ára. ROMAN ABRAMOVICH kaupsýslu- maður er 43 ára. „Þetta var ein af þessum hugmyndum sem maður veit um leið að er góð. Ég ákvað strax að kýla á þetta og útkoman er frábær. Þetta er æðislegur kontór,“ segir Tómas Hermannsson hjá Sögum útgáfu. Útgáfan hefur opnað nýja skrif- stofu og verslun í litlu húsnæði við Vesturgötu 19 í Reykjavík. Tómas segir húsnæðið rýma starf- semina vel þrátt fyrir smæð, en allt í allt hefur hann 34 fermetra til umráða við Vesturgötuna. „Tengdapabbi minn hefur búið hér við hliðina í fjörutíu ár, þannig að ég þekki húsnæðið og vissi að það væri mögulegt að gera eitthvað gott úr þessu. Þegar húsnæðið losnaði úr leigu var bara hafist handa. Ég reif niður millivegg, setti upp nýjar hillur og málaði allt hátt og lágt. Svo þegar konan hafði lokið við að skella nýju betrekki á var allt tilbúið. Eitt af því sem við einsettum okkur að nýta vel er hversu mikil lofthæð er hér.“ Að sögn Tómasar hefur Vesturgata 19 hýst ýmsa starfsemi um árin. „Mér skilst að fyrir fjörutíu árum hafi verið hér hannyrðabúð. Svo var Heiðar snyrt- ir á fullu að litgreina fólk hérna fyrir tuttugu árum, þannig að pressan er mikil á mann að standa sig,“ segir hann og hlær. Fleiri forlög eru í grennd við Sögur á Vesturgötunni. Má þar til að mynda nefna Bjart, Veröld og Forlagið á Bræðraborgarstíg og Skrudduna á Eyjarslóð. Tómas segir eina vitið að koma sér fyrir í Vesturbænum. „Þetta er langbesti staðurinn. Fullt af fólki labbar hér fram hjá, kíkir inn um glugg- ann og lítur við í kaffi. Nágrannarn- ir virðast líka vera hæstánægðir með aukið líf í götunni. Nú þegar hef ég farið í klippingu hjá rakaranum hér rétt hjá og boðist að halda útgáfupartí í far- fuglaheimilinu við hliðina á mér, þannig að þetta er hið besta mál.“ Ekki er um hefðbundna bókaverslun að ræða í þeim skilningi að aðeins eru til sölu vörur sem Sögur gefa út. „Í og með er þetta hugsað sem kynning fyrir útgáfuna. Við vitum alveg að við kepp- um ekki við stóru búðirnar í sölu, en það er auðvitað ekkert að því að kíkja í heimsókn og kaupa beint af bóndanum. Það eru allir velkomnir, ég verð hérna nánast stanslaust fram að jólum,“ segir Tómas. kjartan@frettabladid.is SÖGUR ÚTGÁFA: OPNAR NÝJA SKRIFSTOFU OG VERSLUN Á VESTURGÖTU Nágrannarnir hæstánægðir VESTURGATA Starfsemin rúmast vel innan 34 fermetra, segir Tómas Hermannsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Á þessum degi árið 1987 birt- ust forsíðuviðtöl við hljóm- sveitina Sykurmolana í tveim- ur helstu popptónlistarblöð- um Bretlands, Melody Maker og New Musical Express (NME). Þessum vikublöðum var dreift víða og seldust mjög vel, og þótti ásjóna Bjarkar Guðmunds dóttir og félaga hennar á forsíðunum bera þess vitni að óðum styttist í heimsfrægð Sykurmolanna, eða The Sugarcubes eins og sveitin kallaðist upp á ensku. Fyrsta lagið sem Sykur- molarnir gáfu út í Bretlandi, Birthday, var valið smáskífa vikunnar í Melody Maker vik- una 23. til 30. ágúst 1987. Í kjölfarið óskaði blaðið eftir forsíðuviðtali við sveitina. Hljómsveitarmeðlimirnir fóru því utan til viðtals og mynda- töku, en gáfu NME einnig færi á forsíðuviðtali. Í bók Árna Matthíassonar um Sykurmol- ana frá 1992 segir að starfs- menn Melody Maker hafi tryllst af reiði yfir því að sitja ekki einir að hljómsveitinni á forsíðu. Þeir hafi þó tekið gleði sína að nýju þegar þeir fengu í sárabætur þrjú hundr- uð eintök af smáskífunni Cold Sweat, sem þá beið útgáfu, til að dreifa meðal lesenda sinna. ÞETTA GERÐIST: 24. OKTÓBER 1987 Forsíður undirlagðar Sykurmolum Gullbrúðkaup Gullbrúðkaup eiga í dag, 24. október, hjónin Sólveig V. Þórðardóttir frá Sölvholti og Sigfús Kristinsson frá Litlu-Sandvík. Þau fagna í tilefni dagsins með fjölskyldunni. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 MOSAIK Ástkær eiginmaður, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, Þorsteinn Kristinsson Hörgshlíð 20, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 20. október, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 26. október kl. 13.00. Frida Petersen Kristinn Már Þorsteinsson María Þorsteinsdóttir Karl Sigurðsson Ingibjörg Þorsteinsdóttir Hans Jakob Beck Ester Þorsteinsdóttir Þröstur Jensson Eyðstein Wardum Súsanna S. Wardum Alf Wardum Unnur Sigurjónsdóttir Hallur Wardum Marjun F. Wardum Klara Kristinsdóttir Vignir Daníel Lúðvíksson afabörn og langafabörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar sambýliskonu, móður, tengdamóður, ömmu, systur og mágkonu, Guðrúnar Láru Kjartansdóttur Heiðarhjalla 29, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landspítalans Kópavogi. Bjarni Sólbergsson Jón Kjartan Kristinsson Elsa Guðrún Jóhannesdóttir Arnar Jónsson Karítas Jónsdóttir Kjartan Kjartansson Halla Guðmundsdóttir Kristín Kjartansdóttir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.