Fréttablaðið - 24.10.2009, Page 69
LAUGARDAGUR 24. október 2009
„Mín skoðun er að mannlíf verði sett
í forgang og að bílar, steypa og stór-
byggingar kaffæri ekki lífið í borg-
inni,“ segir Magnús Geir Þórðarson,
leikstjóri Borgarleikhússins, en hann
hefur setið í stýrihópi skipuðum fólki
úr ólíkum geirum samfélagsins.
Hópurinn fór yfir styrkleika og
sóknarfæri Reykjavíkur og útbjó hug-
myndir um hvernig hægt væri að gera
borgina fegurri og mannúðlegri. Farið
verður yfir þessar hugmyndir á Hug-
myndaþingi Reykjavíkur í Ráðhúsinu
á sunnudag.
Á Hugmyndaþinginu er ætlunin
að gera íbúum borgarinnar kleift að
koma að stefnu og ákvörðunum í borg-
inni. Boðið verður upp á vinnustofur
þar sem íbúar geta komið eigin hug-
myndum um ýmis málefni á framfæri.
Yfirskriftir vinnustofanna eru meðal
annarra: Í hvernig borg viltu starfa?,
Í hvernig borg viltu læra?, Í hvernig
borg viltu eldast? Í hvernig borg viltu
leika þér?
Magnús Geir segist vilja kasta fram
hugmyndum um hvernig megi gera
borgina mennskari. Reykjavíkurborg
sé höfuðborg landsins, í því felist
styrkur en einnig ábyrgð.
„Reykjavík er ekki bara einhver
borg heldur er hún höfuðborg allra
landsmanna og hefur því höfuðborgar-
hlutverk, því hlutverki þarf að sinna
með menningunni og ýmsu fleiru sem
höfuðborgir eiga að bjóða upp á,“ segir
hann og bendir á að Borgarleikhús-
ið eigi til dæmis að vera leikhús allra
landsmanna sem Reykvíkingar bjóði
landsmönnum upp á.
Magnús segir að síðustu ár hafi
verið lögð áhersla á hraða uppbygg-
ingu. Sem mest af byggingum hafi átt
að drífa upp á sem skemmstum tíma
fremur en að hlúa að því góða sem
fyrir var og styrkja það. „Nú er tæki-
færi til að láta hlutina þróast frem-
ur en að bylta þeim á örskotsstundu,“
segir Magnús Geir sem telur að margt
gott hafi tekist vel hér í borg. Í Reykja-
vík séu til að mynda haldnar vinsælar
hátíðir á borð við Airwaves og Menn-
ingarnótt auk þess sem mörg græn
svæði séu þar sem betur megi nýta í
þágu landsmanna.
Hugmyndaþingið hefst klukkan 13
og stendur til klukkan 16 á sunnudag-
inn. Barnahorn verður í boði fyrir
börnin og verður „þingmönnum“ boðið
upp á létta hressingu. - kdk
Leitað leiða til að gera
Reykjavík mennskari
MANNLÍFIÐ Í FORGANG Magnús Geir er einn þeirra sem sátu í stýrihópi sem leituðu sóknar-
færa Reykjavíkur og leiða til að nýta þau færi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigurlaug Helgadóttir
Borgarbraut 65, Borgarnesi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut miðviku-
daginn 21. október.
Gunnar Gauti Gunnarsson Edda Soffía Karlsdóttir
Guðbjörg Lilja Gunnarsdóttir
Sigurlaug Tanja Gunnarsdóttir
Árni Gunnarsson, Sigríður Eva Magnúsdóttir
Sólveig Gunnarsdóttir
Margrét Gunnarsdóttir
Gauti, Daði og Birkir Árni.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
föður, tengdaföður og afa,
Gunnars Hvammdals
Sigurðssonar
veðurfræðings.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Ingibjörg Gunnarsdóttir Bill Jenkins
Helga Gunnarsdóttir Val Bracey
Ásta Kristín Gunnarsdóttir Oddur Björnsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
Vigdís Þorbjörnsdóttir
Janger, Dídí,
lést á Hjúkrunarheimilinu í Greenwich Woods fimmtu-
daginn 15. október. Minningarathöfn var frá St.
Catherine of Siena föstudaginn 23. október. Jarðsett
verður frá Reykjavík og auglýst síðar.
Þórdís Janger Smith
Siv Janger Schultz
og fjölskyldur.
Ástkær systir okkar, mágkona og frænka,
Sigríður Helgadóttir,
Dedda,
Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn
26. október kl. 13.30.
Jóhann Helgason Sigríður Árnadóttir
Sigrún Helgadóttir Jón Bjarnason
Hólmfríður Andersdóttir Úlfar Hauksson
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
Jónína Steinunn Jónsdóttir
frá Ströndum í Miðfirði, Kleppsvegi 62,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli miðvikudaginn
21. október.
Jón Grétar Guðmundsson Sesselja Ó. Einarsdóttir
Jóhann Örn Guðmundsson Guðrún Helga Hauksdóttir
Salóme Guðný Guðmundsdóttir Helgi Þór Guðmundsson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
föðursystur okkar,
Ragnheiðar Karlsdóttur
Tjarnarlundi 3f, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Bakkahlíð
og Skógarhlíð fyrir góða umönnun.
Karl Haraldsson Steingerður Ósk Zóphoníasdóttir
Haraldur Haraldsson Sigurlaug Bára Jónasdóttir
og fjölskyldur.
Bróðir okkar og mágur,
Þórir Dagbjartsson
stýrimaður og netagerðarmaður,
Bræðraborgarstíg 4, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn
26. október kl. 11.00.
Sigrún Dagbjartsdóttir
Vilborg Dagbjartsdóttir
Páll Dagbjartsson Guðrún Magnúsdóttir
Þorleifur Dagbjartsson Soffía Magnúsdóttir
Innilegar þakkir til allra sem sýndu mér
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legs eiginmanns míns,
Ásgeirs Kr. Sörentsen
Háholti 16, Hafnarfirði.
Renate Scholz.
Þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Elínar Oddsdóttur
Ástúni 8, Kópavogi.
Sólrún B. Kristinsdóttir
Hauður Kristinsdóttir Magnúns Alfonsson
Þóra Sjöfn Kristinsdóttir
Anna Margrét Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
Marta Ármannsdóttir
áður til heimilis Lindargötu 57,
lést á Droplaugarstöðum þann 13. október. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Droplaugarstöðum og
innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýju.
Elín Einarsdóttir
Peter Ingemar Thornér
Frida Marta Thornér
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóð-
ir og amma,
Kristrún Birgitta
Kristjánsdóttir (Víp)
áður til heimilis Hellubraut 3, Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund, mánudaginn 19. okt-
óber. Útförin fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði,
miðvikudaginn 28. október kl.13.00.
Steindór Olsen
Árný S. Steindórsdóttir Bragi Jóhannsson
Ásrún S. Steindórsdóttir Rögnvaldur Þ. Höskuldsson
og barnabörn.
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengda-
faðir og afi,
Kjartan I. Jónsson
Sóleyjarrima 15, Reykjavík,
andaðist að morgni 23. október á Landspítalanum
við Hringbraut eftir skammvinn veikindi. Jarðarförin
auglýst síðar.
Ingibjörg Ámundadóttir
Árni Hrafnsson Birna Guðjónsdóttir
Jóhann B. Kjartansson Lotte Munch
Margrét B. Kjartansdóttir Stefán H. Birkisson
og afabörn.