Fréttablaðið - 24.10.2009, Page 72
48 24. október 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Á sunnudag eru síðustu forvöð að sjá Fjölskyldusýningu Íslenska
dansflokksins á stóra sviði Borgarleikhússins. Vegna
mikillar aðsóknar verður aukasýning og jafnframt síðasta
sýningin á sunnudag.
Fjölskyldusýning Íd er ávallt litrík og skemmtileg sýning.
Að þessu sinni eru sýnd brot úr sex mismun-
andi verkum og kennir því ýmissa grasa á
sviðinu. Meðal annars er sýnt úr verkinu The
Match þar sem umfjöllunarefnið er fótbolti,
kómísk saga af eldri borgurum sem endar í
allsherjar matarslag úr Endastöð, Svanurinn sem er
fallegur og rómantískur dúett eftir Láru Stefánsdóttur,
einn af okkar reyndustu danshöfundum. Dansarar eru
Emelía Benedikta Gísladóttir og Steve Lorenz.
Sýningin er ætluð allri fjölskyldunni og er markmiðið
að kynna nútímadans fyrir fólki og þá sérstaklega yngri
kynslóðinni. Þess vegna býður Íslenski dansflokkurinn
börnum sem eru 12 ára og yngri ókeypis inn á sýninguna
og 13-16 ára fá miðann á hálfvirði .
Aðra helgi verður Íslenski dansflokkurinn svo á
Akureyri og sýnir í samkomuhúsinu. Verkin sem
verða þar í boði eru Skekkja eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur sem þau
Cameron Corbett og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir dansa, en Lovísa var
tilnefnd til Grímunnar 2009 sem besti dansarinn fyrir þetta verk.
Í Kvart dansa dansararnir fyrir hver annan líkt og hipp-hopp-
arar á götum stórborga eða ættbálkar í Afríku gera. Við sjáum
kraftmikinn og fagran dans við magnaða tónlist eftir finnska
tónskáldið Kimmo Pohjonen sem hefur meðal annars unnið
með Sigur Rós og múm. Höfundur Kvart er Norðmaður-
inn Jo Strömgren. Dansarar í Kvart eru: Aðalheið-
ur Halldórsdóttir, Cameron Corbett, Emelía
Benedikta Gísladóttir, Hannes Egilsson,
Katrín Á. Johnson, Katrín Ingvadóttir, Lovísa
Ósk Gunnarsdóttir og Steve Lorenz.
Dansflokkurinn verður með tvær sýningar
á Akureyri.
Vinsæl sýning kveður syðra
LISTDANS Fjölskyldusýningar Dansflokks-
ins hafa gengið vel en síðasta sýning á
prógramminu í Reykjavík er á sunnu-
dag en aðra helgi verða
sýningar á Akureyri. MYND / ÍD.
Sala hljóðrita dróst saman
um 31 prósent milli áranna
2008 og 2007 í eintökum
talið. Í fyrra seldust ríf-
lega 446.000 eintök af inn-
lendum og erlendum hljóð-
ritum á heildsölustigi sem
er 200.000 eintökum færra
en árið á undan.
Vísir greinir frá að
þetta komi fram á vef-
síðu Hagstofunnar. Þar
segir að heildarverðmæti
seldra hljóðrita í heildsölu
í fyrra nam um 592 millj-
ónum króna, sem jafngild-
ir um 950 milljónum króna
í smásölu að virðisauka-
skatti meðtöldum. Inni í
tölum um sölu hljóðrita eru
geisladiskar, hljómplötur og
snældur.
Frá árinu 2005 hefur sala
hljóðrita dregist saman
um 46 af hundraði, eða
um 377.000 eintök. Hæst-
um hæðum náði salan árið
1999 en þá seldust á heild-
sölustigi 868.000 eintök, eða
422.000 fleiri eintök en árið
2008.
Þá nam sala hljóðrita um
1,4 eintökum á íbúa en var
þegar best lét árið 1999
ríflega þrjú eintök.
- pbb
Minnkandi
diskasala
kl. 16.
Í dag opnar Ómar Stefánsson mál-
verkasýningu á nýjum veitinga-
stað sem heitir „46“ og stendur við
Hverfisgötu 46. Á sýningunni eru
26 verk og eru flest til sölu. Ómar á
að baki langan feril, bæði hérlendis
og erlendis, en hann útskrifaðist úr
nýlistadeild MHÍ árið 1981 og síðar
úr málaradeild Klaus Fussmann í
HDK í Berlín árið 1986.
Annað kvöld frumsýnir Ís-
lenska óperan Ástardrykk-
inn í bíósal Gamla bíós
við Ingólfsstræti, þar sem
vistarverurnar eru vanar
göldrum og sögum ungra
elskenda. Með helstu hlut-
verk fara Dísella Lárusdótt-
ir og Garðar Thór Cortes.
Átta sýningar eru ákveðnar
á verkinu og langt komið að
verða uppselt á þær allar.
Tónskáldið Gaetano Donizetti
samdi Ástardrykkinn – L’elisir
d’amore – 1832 og hefur gaman-
óperan síðan verið ein af vinsæl-
ustu óperum tónbókmenntanna.
Hún er samkvæmt vefsíðunni
www.operabase.com á verkefna-
skrám 33 óperuhúsa um heiminn
allan á þessum vetri. Vinsældir
hennar má rekja til hinnar einföldu
farsa- og blekkingarfléttu sem fell-
ur vel saman við sindrandi tónlist
Donizetti en helstu hlutverk gefa
flinkum söngvurum tækifæri til að
sýna hvað í þeim býr, bæði í söng
og ekki síður í léttum gamanleik.
Hér segir frá hinum unga Nem-
orino og vinkonu hans, Adinu,
og sprenghlægilegum tilburð-
um þeirra við að ná saman. Inn í
atburðarásina blandast síðan ást-
ardrykkjarsalinn Dulcamara,
herforinginn Belcore og vinkonan
Giannetta, auk hóps þorpsbúa sem
fylgist náið með hvernig atburða-
rásinni vindur fram; bellibrögðun-
um sem skötuhjúin beita í viðleitni
sinni, vandkvæðunum sem þeim
síðan fylgja og hinni sönnu ást sem
að lokum fær að blómstra.
Aðalhlutverkin í Ástardrykkn-
um syngja Garðar Thór Cortes,
Dísella Lárusdóttir, en þetta er
fyrsta stóra hlutverk hennar á
íslensku sviði, Bjarni Thor Krist-
insson, Ágúst Ólafsson og Hallveig
Rúnarsdóttir, en Þóra Einarsdóttir
og Gissur Páll Gissurarson syngja
einnig í sviðsetningu Ágústu
Skúladóttur á sýningatímabilinu.
Listrænir stjórnendur auk Ágústu
eru Guðrún Öyahals leikmynda-
hönnuður, Katrín Þorvaldsdóttir
búningahönnuður, Páll Ragnarsson
ljósahönnuður og Daníel Bjarna-
son hljómsveitarstjóri, auk þess
sem kór og hljómsveit Íslensku
óperunnar taka þátt í sýningunni.
Sýningin er styrkt af Orkuveitu
Reykjavíkur en upphaflega átti
hún að koma á svið fyrr á árinu
en var frestað vegna efnahags-
ástandsins. pbb@frettabladid.is
BRALL OG BEISKIR DRYKKIR
LEIKLIST Bjarni Thor og Garðar Thór með hinn görótta drykk sem óperan heitir eftir.
MYND/ÍSLENSKA ÓPERAN
FRUMSÝNING – Sunnudaginn 25.10.2009 – UPPSELT
2. sýning - Föstudaginn 30. 10. 2009 – UPPSELT
3. sýning - Laugardaginn 31. 10. 2009 – UPPSELT
4. sýning - Laugardaginn 7. 11. 2009 – UPPSELT
5. sýning - Sunnudaginn 8. 11. 2009 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
6. sýning - Föstudaginn 13. 11. 2009 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
7. sýning - Sunnudaginn 15. 11. 2009 – UPPSELT
8. sýning - Föstudaginn 20. 11. 2009 – UPPSELT
WWW.OPERA.IS
F
A
B
R
I
K
A
N
2009
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16
Leiðsögn fyrir hópa ı Netfang: gerduberg@reykjavik.is
Gerðubergi 3-5 ı 111 Reykjavík ı Sími 575 7700 ı www.gerduberg.is