Fréttablaðið - 24.10.2009, Page 78

Fréttablaðið - 24.10.2009, Page 78
54 24. október 2009 LAUGARDAGUR Kvikmyndir ★★★★ Zombieland Leikstjóri: Ruben Fleischer. Aðalhlutverk: Woody Harrelson, Jesse Eisenberg. Uppvakningagrín Columbus telur að hann sé einn sá síðasti sem lifði af árásir uppvakninga. Hann er sannfærður um að reglur sem hann samdi hafi haldið sér á lífi, þangað til hann kynnist Tallahassee, sem er andstæðan við Columbus: kjarkaður, fljótfær og fylgir engum reglum. Saman mynda þeir hið undarlegasta teymi. Zombieland er skrautleg blanda af gaman- og uppvakningsmynd. Slíkt hefur áður verið gert með snilldarútkomu í Shaun of the Dead. Rétt eins og sú mynd er Zombieland með kostulega framvindu og viðkunnanlegar persónur. Smáatriði handritshöfunda á borð við furðulegar reglur eða áráttu aðalpers- ónanna er frábær. Eins rangt og það hljómar er ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með hinum ýmsu drápsaðferðum á uppvakningum með ólíkleg- ustu tækjum og tólum, og síðan að botna drápin með fyndnum setningum. Jesse Eisenberg fer á kostum í hlutverki hins stressaða og óreynda Columbusar. Saklaust útlit og taktar Eisenbergs gerir það að verkum að þegar hann verður vandræðalegur læðist að manni hrollur yfir því hversu mikill auli hann er. Woody Harrelson er fantagóður sem harða týpan Tallahassee með svörin við öllu en er í raun alveg glórulaus. Í mörgum sams konar félagamyndum vantar allan neista milli aðalleikarana, en hér tekst þeim að mynda hið besta teymi. Zombieland er bráðfyndinn óður til uppvakn- ingamynda og það er alveg á hreinu að hörðustu aðdáendur verða svo sannarlega ekki sviknir. Vignir Jón Vignisson Niðurstaða: Frábær gamanmynd með skemmtilegum persónum og góðum leik. Jack White, meðlimur The White Stripes og The Dead Weather, hélt óvæntan fyrirlestur í háskól- anum Dublin Trinity á Írlandi um helgina. White ávarpaði með- limi í heimspekifélagi háskólans, sem er eitt elsta nemendafélag heimsins, stofnað á 18. öld. Á meðal þekktra meðlima þess fyrr á öldum eru skáldin Bram Stoker, Oscar Wilde og JB Yates. White, sem var heiðraður af félaginu, ræddi á heimspekilegan hátt um skoðun sína á tónlistarbransan- um. Sagði hann að söngkonur á borð við Britney Spears væru hugsanlega trúrri sjálfum sér heldur en goðsagnir á borð við Bob Dylan og Tom Waits. White með fyrirlestur JACK WHITE Rokkarinn hélt óvæntan fyrirlestur í Dublin Trinity-háskólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Julian Casablancas, söngvari The Strokes, segir meðlimi Strokes ósammála um hvort lögin á nýju plötunni séu tilbúin eða ekki. Casablancas sagði í viðtali við breska fjölmiðla að hljómsveitin væri klofin í afstöðu sinni til nýju plötunnar, sem fylgir eftir First Impressions of Earth, sem kom út árið 2006. „Sumir í hljómsveitinni telja að lögin séu tilbúin og aðrir ekki. Ég er á báðum áttum,“ sagði Casablancas og bætti við að hluti vandamálsins sé fólginn í því að meðlimirnir búa langt frá hver öðrum í dag. „Það er erfitt fyrir okkur að hittast. Við erum á víð og dreif og hittumst bara á æfingum. Við hittumst ekki og förum í bíó saman. Að vera í hljómsveit er frábær leið til að eyðileggja vináttuna.“ - afb Strokes-liðar ósammála HITTAST VARLA Meðlimir Strokes fara aldrei í bíó saman. Brak hljómplötur gefa í dag út fyrstu hljómplötu Caterpillarmen, Adopt a monkey. Hljómsveitin spil- ar þunga og þróaða rokktónlist undir áhrifum frá gömlu progg- rokki, liði eins og Pink Floyd, King Crimson og Emerson, Lake & Palmer, í bland við nýrri strauma. Á plötunni eru sjö lög, kaflaskipt til hins ýtrasta. Hljómsveitin fagnar útgáfunni með tónleikum í dag kl. 15 í versl- uninni Havarí í Austurstræti. Á eftir, kl. 16, treður DJ Flugvél- ar og geimskip upp og leikur lög af plötunni Rokk og róleg lög. Sú plata kom út fyrr á árinu, einnig hjá Brakinu, en útgáfan sérhæfir sig í lítt þekktu tónlistarfólki og plötum í litlu upplagi. - drg Lirfumenn ættleiða apa PROGG! Fyrsta plata hljómsveitarinnar Caterpillarmen kemur út í dag. Synir Rúnars Júlíussonar, þeir Júlíus og Baldur, halda merki föður síns og útgáfufélagsins Geimsteins á lofti. Nokkrar plötur eru í pípunum. „Núna fyrir jólin koma út minningartónleikarnir um pabba frá því í vor, safndiskurinn Geimsteinn 33 1/3 ára og svo Ævintýrakassinn, sem eru sjö sígild ævintýri sem pabbi gerði á sínum tíma með Gylfa Ægissyni. Þau koma öll saman í einum pakka,“ segir Júlíus. Hann segir að eftir áramót sé planið að gefa út nýjan disk með Deep Jimi, sem Þorvaldur Bjarni „pródúserar“ og frumraun hljómsveitarinnar Lifun. Bjartmar hefur verið að taka upp í Geimsteini og plata með honum er í bígerð eftir áramót og þá er líka líklegt að fyrsta sólóplatan með Erpi Eyvindar- syni, aka Blaz Roca, detti í hús. Á heimili Geimsteins við Skólaveg í Keflavík er haldið úti Rokkheimum Rúnars sem er sýning á persónulegum munum frá ferli Rúnars. „Við höfum nú bara opið eftir samkomulagi, eins og sagt er, en fastir opnunartímar verða auglýstir síðar, eins og til að mynda á afmælisdegi pabba og í kringum jólin,“ segir Júlíus. - drg Halda merki föður síns á lofti Útgáfufagnaður var haldinn í bókabúð Máls og menning- ar í tilefni af fyrstu skáld- sögu Bjarna Harðarsonar, Svo skal dansa. Góðir gestir samfögnuðu með Bjarna, þar á meðal vinir hans úr pólitíkinni. Skáldsagan Svo skal dansa hefur fengið mjög góðar viðtökur og komist ofarlega á lista yfir mest seldu bækur landsins. Bókin fjall- ar um baráttu kvenna, er hetjusaga hinna snauðu og ættarsaga hinna ættlausu. Sagan hefst seint á 19. öld í gistihúsi rétt hjá Reykjavík og lýkur um hundrað árum síðar í Efstasundinu og Houston Texas. Bjarni tók á móti gestum FRAMSÓKNARMENN Framsóknarmennirnir Höskuldur Þórhallsson og Guðni Ágústs- son voru að sjálfsögðu mættir í útgáfuhófið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON MARGRÉT OG ELÍN Margrét Hauksdóttir og Elín Margrét Hárlaugsdóttir voru á meðal gesta. ÁRITUN Bjarni Harðarson áritaði nýju bókina sína eins og góðra skálda er siður. BROSMILD Gunnur Vilborg Guðjóns- dóttir og Eiríkur Benedikz voru brosmild í hófinu. GEIMSTEINN LIFIR! Rúnar, Baldur og Júlíus. „ Rögnu Sigurðardóttur tekst í þessu einstaka skáldverki að afhjúpa þær tálmyndir er fram á síðustu tíma réðu lögum og lofum. Hið fullkomna landslag sýnir og sannar að Ragna Sigurðardóttir er einn besti höfundur sinnar kynslóðar.“ F R Í ÐA B J ÖR K I N G VA R SD Ó T T I R ún er gefin af góðum hug en Hönnu g Steinar grunar að hún sé fölsuð. vað gera þau ef grunurinn reynist éttur? Saga úr viðsjárverðum heimi ðskipta með listaverk. HVER MÁLAÐI HINA FULL- KOMNU LANDSLAGSMYND?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.