Iðnneminn - 01.09.1967, Síða 25
Grípur U.S.A. þá í taumana í nýju Vietnam stríði? Nýtt Viet-
nam? Það getur víða orðið Vietnam.
Þegar þessi grein er skrifuð er ástandið í Austurlöndum nær
mjög alvarlegt. Friðurinn hangir á bláþræði. Fyrir minnstu mis-
tök annars livors aðilans getur styrjöld brotizt út milii ísraels
og Arabaríkjanna. En er hægt að takinarka slíkt stríð? Stríð,
sem hefur áhrif á svo mikilvæg olíulindasvæði Vesturlanda, get-
ur auðveldlega breytzt í meiri háttar stríð. Hætta er einnig á
að Rússar blandi sér í leikinn. Því um er að ræða svæði, sem
hafa mikla hernaðarlega þýðingu fyrir Rússa, sem hafa veitt
Egyptalandi og Sýrlandi margvíslegan efnahags- og hernaðar-
legan stuðning. ísrael er vafalaust mjög hernaðarlega sterkt nú
og baráttuþrekið mikið, en við verðum líka að hafa í huga, að
huga að Egyptaland er nú miklu öflugra, en fyrir tíu árum, þeg-
ar þessum löndum laust síðast saman. ísraei myndi einnig þurfa
að berjast á fleiri vígstöðvum, gegn öðrum Arabaríkjum.
En það er til lítils að reyna að gera sér grein fyrir úrslitum
slíkrar styrjaldar. Hættan á afskiptum stórveldanna gnæfir yfir
allt annað. Og því er það, að maður vonar að stórveldin finni
eitthvert ráð til að stöðva þessa ískyggilegu þróun.
Hvað snertir Vietnam, virðist stríðið þar ætla að verða eilíft.
Bandaríkin hafa stóraukið styrjaldaraðgerðir sínar þar, það sem
af er árinu. U Þant, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna var-
aði í vor við því, að verið gæti að Kínverjar blönduðu sér í
stríðið og þriðja heimsstyrjöldin gæti blossað upp. Þessum verð-
um við að taka, með mikilli alvöru.
Vissulega hefur stjórnin í Washington lýst því yfir, að hún
hafi ekki hugsað sér að gera innrás í Norður-Vietnam. En hvers
virði eru slík heit? í hvert sinn, sem styrjaldaraðgerðir hafa verið
auknar hefur stjórnin í Washington gefið svipuð lofurð, en að-
gerðirnar brotið í bága við þau. Stríðið fylgir eiginlega lögbund-
inni þróun.
Washington stjórnin neitar að líta á stríðið sem borgarastyrj-
öld, en lítur á það sem innrás úr norðri. Það verður að hegna
Norður-Vietnam með sprengjuárásum. En þetta hefur ekki nægt.
Stríðið í Suður-Vietnam heldur áfram.
Það hefur lengi verið ljóst, að það er ekki unnt að sigra
N.-Vietnam með sprengjuárásum. Rökrétt afleiðing væri, að
gera þyrfti innrás í N.-Vietnam. En nægir það? í fyrsta lagi
verður það ekki auðvelt fyrir Bandaríkin, sem fengju á móti
sér mörg hundruð þúsund vel þjálfðara hermanna. Og að baki
N.-Vietnam standa Kína og Sovétríkin. í slíkri stöðu þyrfti
einnig að gera árás á Kína.
Að sjálfsögðu eru margir möguleikar fyrir hendi. Einn er
sá að Kínverjar taki í taumana, fyrr en Washingtonstjórnin
virðist gera ráð fyrir. Pekingstjórnin hefur margoft lýst yfir, að
hún sé reiðubúin að senda sjálfboðaliða til Vietnam, ef óskað
verði eftir því. í þessu sambandi skulum við rifja upp, það sem
George F. Kennan, amerískur sérfræðingur um utanríkismál og
fyrrverandi sendiherra í Moskvu, lét hafa eftir sér í fyrra, í ut-
anríkismálanefnd ameríska þingsins. Hann sagði: „Ég held að
það sé öruggt, að jafnvel Kínverjar vilji hliðra sér frá stríðinu
og að þeir munu gera það meðan þeim finnst ekki, að hern-
aðaraðgerðir okkar séu komnar á það stig, að þær geti orðið
þeim hættulegar herfræðilega, eða valdið þeim stórfelldum álits-
hnekki í augum annarra þjóða. Ég tel að ef sprengjuárásir verði
gerðar allt of blygðunarlausar, eða ef við hefjum aðgerðir nærri
landamærum Kína, þá munu þeir grípa í taumana ..."
Það er að sjálfsögðu erfitt að gera sér grein fyrir, hvernig
mál myndu þróast í stríði milli Kína og U.S.A. og veldur þar
mest á hver afstaða Sovétríkjanna yrði.
Það eru miklar andstæður milli Rússa og Kínverja, en það
gæti hugsast að Bandaríkin drægju rangar ályktanir af þessurn
andstæðum. Hvað varðar þetta atriði lýsti fyrrnefndur Kennan
yfir eftirfarandi: „ Lendum við í stríði við Kínverja, með venju-
legum vopnum, í Suð-austur Asíu, trúi ég ekki, að Sovétríkin
Iáti það til sín taka opinberlega. En verði kjarnorkusprengjum
beitt veit ég satt að segja ekki hvernig almenningsálitið í heim-
inum mundi verða, hvernig almenningsálitið hér heima yrði, eða
hver afleiðing slíkra átaka yrði. Allt gæti skeð. Það gæti orðið
til þess að Sovétríkin drægjust inn í átökin, og ég er hræddur
um, að þegar fram í sækti mundu Sovétríkin komast í þá af-
stöðu, að þau veru tilneydd að ráðast gegn okkur, af öllu afii
... Við værum þá á barmi hengiflugs, hengiflugs sem við
megum ekki færa okkur nær."
Þetta eru ummæli sem stjórnarherrunum í Washington væri
hollt að hugleiða fyrir haustið. (Þýtt úr Elektrikeren).
Sðnnemar Akranesi
Framhald af bls. 23.
unandi kennslu í meðferð þeirra áhalda og tækja, er að náminu
lúta?
Eftirlit er ekkert hér og má það furðulegt teljast af hálfu iðn-
fræðsluráðs að það skuli ekki fylgjast með því að iðnfulltrúi
hverju sinni geri skyldu sína. Ég hef á þessu 3VÍ ári séð iðn-
fulltrúa aðeins EINU SINNI hér á vinnustaðnum og þá talaði
hann ekki við neinn af nemunum sem hér eru. Slíkt ástand er
algjör óhæfa og þarfnast skjótrar úrbótar.
Hvert er álit þitt á starfsemi I.N.S.Í.?
Mér finnst I.N.S.Í. starfa mjög vel eftir því sem ég þekki til,
og mér finnst sjálfsagt fyrir hvert iðnnemafélag að ganga í þessi
samtök, og eftir því sem félögin í því eru fleiri, styrkist sam-
bandið, og betri aðstaða skapast til að vinna að kjarabótum okk-
ur til handa.
Hvað segir þú um kynningarstarfsemi milii iðnnemafélaganna
í landinu?
Mér finnst sjálfsagt að auka kynni milli iðnnemafélaga, og
með eflingu á samstarfi hlýtur að batna aðstaða viðkomandi
félags á hverjum stað auk þess sem þau eiga auðveldara með
samanburð á ýmsum málefnum er upp kunna að koma hjá
hverju félagi.
Hvernig lýst þér svo á framtíðina í þessari iðn?
Framtíðin virðist lofa góðu. Það eru alltaf að bila bílar eins
og gengur og þá þarf að gera við þá. Þó er mikill galli á, að ekki
skuli vera haft eftirlit með því, að ófaglærðir menn vinni við
bæði bifvélavirkjun og annað, sem lærðir menn væru, og sú
vinna jafnvel seld á fullu verði. Þetta eru ekkert annað en svik
gagnvart okkur, sem leggjum á okkur að ganga í skóla og læra
vissa iðngrein, ef svo þessi réttindi sem við fáum eru gerð
einskis virði af réttindalausum mönnum, og ekkert er við þv'
sagt.
IÐNNEMINN
25