Iðnneminn - 01.09.1967, Síða 28
HALLDÓR GUÐMUNDSSON
viðbótaulAn
hIjsnæðismAla
stjObmr
Eitt þeirra mála, sem INSÍ hefur barizt hvaS mest fyrir á und-
anförnum misserum, er aðild iðnnema að viðbótarlánum Hús-
næðismálastjórnar. Þetta réttlætismál iðnnema fékk síðan hina
herfilegustu útreið í Húsnæðismálastjórn, svo sem iðnnemum
er kunnugt.
Þar sem nokkur blaðaskrif urðu um málið, og telja má víst
að þau hafi ekki komið fyrir sjónir nær allra iðnema, var talið
rétt að gefa þeim rúm í Iðnnemanum.
AÐ SITJA HJÁ
Með júnísamkomulagi því, sem verkalýðsfélögin gerðu við
ríkisstjórnina 1965 náði fram að ganga sú krafa, að lán Hús-
næðismálastjórnar hækkuðu úr krónum 140 þúsund í 280 þús-
und, þá náðist og samkomulag um það að efnalitlir meðlimir
verkalýðsfélaga innan Alþýðusambands íslands fengju 75 þúsund
króna viðbótarlán.
Það blandast engum hugur um það, að þrátt fyrir þessa hækk-
un duga þessi lán húsbyggjendum skammt í verðbólgueldinum.
Það var því ekki að ófyrirsynju að Iðnnemasamband íslands fór
þess á leit við ASÍ, að það hlutaðist til um að iðnnemar fengju
aðild að þessum viðbótarlánum verkalýðsfélaganna, þessari
málaleitan INSÍ var vel tekið, en til þess að svo megi verða þarf
lagabreytingu til. Því var það í vetur að lagt var fram á Alþingi
frumvarp þess efnis að iðnnemar fengju aðild að þessum við-
bótarlánum.
TíLLAGA GUÐMUNDAR VIGFÚSSONAR
Flutningsmenn þessa frumvarps voru tveir þingmenn Al-
þýðubandalagsins, þeir Hannibal Valdimarsson forseti ASÍ og
Geir Gunnarsson. Hefur frumvarpið verið í nefnd á Alþingi, og
leitaði sú nefnd ekki alls fyrir löngu umsagnar Húsnæðismála-
stjórnar um frumvarpið.
í Húsnæðismálastjórn eiga sæti 5 menn frá stjórnmálaflokk-
unum, einn frá Alþýðubandalaginu, einn frá Framsóknar-
fiokknum, tveir frá íhaldinu og síðast en ekki sízt kratinn Óskar
Hallgrímsson, þá tilnefnir Landsbankinn og einn mann í stjórn-
ina. Á fundi þar sem tekið var fyrir bréf Alþingis, kom fram
tillaga frá Guðmundi Vigfússyni (Alþýðubandalag) þess efnis
að Húsnæðismálastjorn mælti með samþykkt frumvarpsins. Til-
laga þessi var felld með 3 atkvæðum íhaldsins og Landsbanka-
fulltrúans gegn 2, en einn sat hjá. A.fstaða íhaldsins var hvorki
verri né betri en búizt hafði verið við, hún var rétt eins og alltaf
má vænta úr þeirri átt.
FORMAÐUR IÐNFRÆÐSLURÁÐS SAT HJÁ
Hinsvegar vakti það furðu þegar í ljós kom hver hafði setið
hjá, það var einmitt formaðurinn sjálfur, formaður Ionfrœðslu-
ráðs og fyrrverandi iðnnemi, Oskar Hallgrímsson. í umræðum
um málið lagðist Óskar Hallgrímsson gegn samþykkt tillögunn-
ar, og sýndi að hann var reiðubúinn til þess að leggjast undir
íhaldseykið, þó til þess kæmi ekki, þar eð tryggt var, að tillagan
yrði felld, þess vegna sat hann hjá.
Það er vert að gefa afstöðu og þankagangi þessa fyrrverandi
iðnnema nokkurn gaum. Það hlýtur að hafa átt sér stað mikil
hugarfarsbreyting hjá formanninum, sem fyrir ekki allmörgum
árum stóð í sporum þeirra er nú væntu einhvers af honum, og
sem fyrir ekki alllögnu gegndi forustuhlutverki í iðnnemasam-
tökunum og ekki kannski sízt fyrir það að formaðurinn hefur
verið í tengslum við iðnnema síðusru ár gegnum starf sitt sem
formaður Iðnfræðsluráðs.
Formaðurinn sem vinnur fjórfalda vinnu til að fá lifað mann-
sæmandi lífi, þurfti ekki mikið hugmyndaflug til þess að setja
sig inn í fjárhagsaðstæður iðnnema sem standa í húsbyggingum,
það þurfti ekki heldur mikinn kjark til þess að veita þessu rétt-
lætismáli liðsinni þó að atkvæði hans hefði ekki veitt því braut-
argengi (kannski einmitt þess vegna).
Iðnnemar munu kunna formanni Húsnæðismálastjórnar, Iðn-
fræðsluráðs, Félags rafvirkja, Reykjavík, og borgarfulltrúa Al-
þýðufiokksins, Óskari Hallgrímssyni, litla þökk fyrir þessa ein-
stæðu ræktarsemi við sitt fyrra stéttarfélag.
Halldór Guðmundsson.
ATHUGASEMD
Herra ritstjóri.
Enda þótt ég vilji ekki, þrátt fyrir gefið fordæmi, brjóta þá
hefð, að ræða ekki opinberlega ágreiningsmál sem upp koma
innan Húsnæðismálastjórnar, langar mig að biðja yður, vegna
endurtekinna staðhæfinga í blaði yðar, um afstöðu mína í Hús-
næðismálastjórn í sambandi við viðbótarlán til iðnnema, að birta
eftirfarandi greinargerð sem ég lét bóka á fundi Húsnæðismála-
stjórnar þegar umrætt mál var til meðferðar:
„Með því að hér er um að ræða atriði, sem lögleitt var í fram-
IÐNNEMINN
28