Fréttablaðið - 28.10.2009, Side 8

Fréttablaðið - 28.10.2009, Side 8
8 28. október 2009 MIÐVIKUDAGUR Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta. Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins. Nánari upplýsingar og tillögur um breytingar á samþykktum eru á heimasíðu sjóðsins, www.almenni.is. Sjóðfélagafundur Almenni lífeyrissjóðurinn boðar til sjóðfélagafundar fimmtudaginn 29. október á Hilton Reykjavík Nordica og hefst kl. 17:15. DAGSKRÁ 1. Fundarsetning. 2. Skýrsla stjórnar um rekstur og afkomu Almenna lífeyrissjóðsins. 3. Tillaga og ákvörðun um sameiningu Almenna lífeyris- sjóðsins og Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka hf. 4. Tillögur um breytingar á samþykktum. Lagt er til að sameina deildir samtryggingarsjóðs. 5. Önnur mál. A N T O N & B E R G U R Auglýsingasími – Mest lesið MENNING „Var þarna verið að lýsa stöðu þjóðarinnar um þessar mundir? Ísland bundið í klafa skulda og efnahagurinn harð- frosinn,“ segir Sigurður Sigurðar- son, vefstjóri heimasíðu Skaga- strandar, um listaverk brasilísku listakonunnar Renötu Padovan. Renata vinnur að list sinni í lista- miðstöðinni Nesi á Skagaströnd. „Hún fékk starfsmenn tveggja fyrirtækja, Vélaverkstæðis Skaga- strandar og Rafmagnsverkstæðis- ins Neistans til að útbúa mót með útlínum Íslands. Hún frysti vatn- ið og síðla dags í gær var hvítur klakinn, íslandið flutt niður í Vík og sjósett. Fjöldi manns var vitni að því er báran bláa, sem þó var frekar grá, tók á móti ísnum, slíp- aði hann til, lagfærði hann, gerði straumlínulagaðra, ef svo má að orði komast. Og svo hvarf hann, varð ósýnileg viðbót fyrir Atlants- hafið,“ lýsir Sigurður á skaga- strond.is. - gar Brasilísk listakona vinnur íslistaverk í heimsókn sinni á Skagaströnd: Ísland leysist upp og hverfur ÍSLAND Tilbúið til sjósetningar og varð skömmu siðar hafinu að bráð. MYND/SIGURÐUR SIGURÐARSON STJÓRNMÁL Framlög úr Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga nema í ár rúm- lega 1,2 milljörðum króna og voru þrír fjórðu hlutar þeirra, 931 millj- ón, greiddir út í gær. Afgangurinn verður greiddur út fyrir áramót. Kristján Möller, ráðherra sam- göngu- og sveitarstjórnarmála, ákvað úthlutunina á grundvelli tillögu ráðgjafanefndar Jöfnunar- sjóðs sveitarfélaga. Af 78 sveitarfélögum fá 42 framlög. Sjö fá meira en 50 millj- ónir, tíu fá á milli 20 og 50 milljón- ir og 25 sveitarfélög fá innan við 20 milljónir. Það sveitarfélag sem minnst fær er Arnarneshreppur í Eyja- firði sem fær rúmar sjötíu þús- und krónur. Jöfnunarsjóður veitir sveitar- félögum framlög til jöfnunar á mismunandi tekjumöguleikum og útgjaldaþörf eftir þar til gerðum reglum. Ekkert sveitarfélaganna átta á höfuðborgarsvæðinu fær framlög úr Jöfnunarsjóði. Tólf af fimmtán sveitarfélögum á Norðausturlandi fá framlög. - bþs Tæpur milljarður króna greiddur út úr Jöfnunarsjóði: Reykjanesbær fær 150 milljónir króna TEKJUJÖFNUNARFRAMLÖG Þessi fá yfir 50 milljónir í framlög Sveitarf. Áætl. framl. Greitt nú Reykjanesbær 205 153 Akureyri 161 120 Garður 73 55 Rangárþing eystra 72 54 Dalvíkurbyggð 66 50 Eyjafjarðarsveit 62 46 Húnaþing vestra 53 40 Tölur eru í milljónum króna Heimild: Samg. og sveitarstj.ráðun. ÍRAN Íranar eru reiðubúnir að ganga til samninga við Sameinuðu þjóðirnar um kjarnorkueftirlit, en þó aðeins ef veigamiklar breyting- ar verða gerðar á þeim samningi sem nú liggur fyrir. Þetta hefur íraska fréttastofa Al Alam-sjón- varpsins eftir heimildarmönnum sínum og segir að stjórnvöld í Íran muni gefa Alþjóðakjarnorkumála- stofnuninni svar innan tveggja sólar hringa. Samkvæmt samningsdrögunum munu Íranar senda auðgað úran til Rússlands og Frakklands þar sem efninu verður breytt í kjarnorku- eldsneyti. Íranar áttu að svara á föstudaginn var. Manoucheher Mottaki, utanríkis- ráðherra Írans, sagði á mánudag að stjórnvöld þar í landi væru að íhuga að verða sér úti um auðgað úran í öðrum löndum. Vesturveldin telja sig vera að koma til móts við Írana með því að gefa þeim möguleika á að fá það kjarnorkueldsneyti sem þeir þurfa en um leið verði tryggt að Íranar noti ekki auðgað úran í kjarna- vopn. Bernand Kouchner, utanríkis- málaráðherra Frakklands, sagði að Írönum hefði verið sýnd mikil þolinmæði og sakaði írönsk stjórn- völd um tímaeyðslu. Samkvæmt heimildum bresku fréttastofunnar BBC gætir vax- andi andstöðu við samninginn hjá Írönum og er óttast að ef samningurinn verði ekki sam- þykktur muni það setja frekari samningaviðræður í uppnám. - kh Ræða við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina: Íranar vilja breyting- ar á samningnum KJARNORKUVER Fulltrúar frá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni hófu að rannsaka kjarnorkuverið Fordo í Íran á sunnudaginn var. Mikil leynd hefur hvílt yfir kjarnorku- verinu en það er falið inni í fjalli. Íranar hafa alla tíð haldið því fram að kjarnorku- framleiðsla þeirra sé einungis í friðsamlegum tilgangi. NORDICPHOTOS/AFP Ráðherra boðar breytingar Sjávarútvegsherra sagði á aðalfundi smábátaeigenda að fljótlega mundi hann leggja fram frumvarp um stjórn fiskveiða. Tíu atriði væru til skoðunar. Meðal þeirra eru línuívilnun, flutningur aflaheimilda milli ára og milli skipa. SJÁVARÚTVEGSMÁL Göngubrýr fegurstar Vegagerðin hefur veitt viðurkenningu fyrir gerð og frágang mannvirkja. Fegurst mannvirkja byggð á árunum 2005-2007 þóttu göngubrýrnar yfir Hringbraut og Njarðargötu. UMHVERFISMÁL Vænta skattlagningar Um sjötíu prósent Dana búast við því að þurfa að borga meiri skatt á næstu árum, til að auka tekjur ríkisins í kreppunni. Blaðið Børsen birtir þessa könnun. Á næsta ári verður fjárlaga- halli danskra stjórnvalda um 100 milljarðar danskra króna. DANMÖRK

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.