Fréttablaðið - 28.10.2009, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 28. október 2009 11
LANDBÚNAÐUR Hættu á að bændur
yrðu fyrir tjóni ef bilanir kæmu
upp í mjaltakerfum frá norska
fyrirtækinu DeLaval var að
mestu afstýrt í fyrradag. Þá var
undirrituð viljayfirlýsing milli
Fóðurblöndunnar og DeLaval um
að Fóðurblandan tæki yfir sölu
og þjónustu á vörum DeLaval á
Íslandi. Tekur hún gildi um mán-
aðamót.
Vélaver hefur haft umboð fyrir
DeLaval (áður Alfa Laval) en er
nú til gjaldþrotameðferðar. Vara-
hluti í mjaltakerfi og mjaltaþjóna
hefur skort um skeið og tækin
ekki fengið eðlilega þjónustu. Í
frétt á vef Bændablaðsins í fyrra-
dag, bbl.is, sagði að raunveruleg
hætta væri á að mjaltaþjónar
yrðu óstarfhæfir ef bilanir kæmu
upp. - bþs
Samið við DeLaval:
Bændur ótt-
uðust að verða
fyrir tjóni
MJALTIR Frá og með mánaðamótum
verður þjónusta við DeLaval í höndum
Fóðurblöndunnar.
EVRÓPA Nú má nota gelísku í form-
legum samskiptum milli ráðherra
skosku stjórnarinnar og embættis-
manna Evrópusambandsins.
Þetta var ákveðið í byrjun mán-
aðarins og er svipað samkomulag
og var gert um notkun velsku í
júlí. Skotar greiða sjálfir fyrir
þýðingarnar.
„Að gelíska sé töluð á slíkum
vettvangi eykur vægi hennar
heima og erlendis. Ég hlakka til
að ávarpa ráðið á gelísku,“ segir
menningarmálaráðherra Skot-
lands, Mike Russel.
Árið 2001 töluðu 58.652 Skotar
gelísku. - kóþ
Skotar og Evrópusambandið:
Geta nú talað
saman á gelísku
FÆREYJAR Nú þegar fundur
Norður landaráðs stendur yfir í
Stokkhólmi eiga fulltrúar Fær-
eyinga í ráðinu að heita á stærri
Norðurlandaþjóðir að fara að
fordæmi Færeyinga og lána
Íslendingum peninga.
Svo segir Henrik Old, fyrr-
verandi þingmaður Jafnaðar-
flokksins, í viðtali við Portal.
fo, stærsta vefmiðil Færeyja.
Ísland hefur farið eftir flestum
kröfum AGS, en fær ekki
útborgað lán sitt. Lán Norður-
landanna bíða einnig AGS. Fær-
eyingar eiga að nýta fundinn
til að minna á erfiðleikana á
Íslandi, segir Henrik. - kóþ
Fyrrum þingmaður í Færeyjum:
Ýtum nú við
Norðurlöndum
EBÍ borgar 300 milljónir út
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag
Íslands mun greiða sveitarfélögunum
sem eiga það samtals 300 milljónir
króna á þessu ári. Ákveðið hefur verið
að útgreiðslan á næsta ári verði 250
milljónir.
SVEITARFÉLÖG
Tekur við safni Ólafs Thors
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgar-
stjóri mun í dag taka formlega við
einkaskjalasafni Ólafs Thors, fyrrver-
andi forsætisráðherra, og opna vefsíð-
una olafurthors.is. Systurnar Ólöf og
Guðrún Pétursdætur gefa safnið í
minningu foreldra sinna, Mörtu Thors
og Péturs Benediktssonar.
MENNING
Restaurant
Pizzeria
Gallerí - Café
Hafnarstræti 15, sími 551 3340
Tónleikar í Djúpinu
í kvöld kl. 21
Markús og the
Diversions sessions
og Skúli Þórðarson
Staðreyndin er sú að ökumenn sjá vegfarendur með endurskinsmerki
fimm sinnum fyrr. Flest eigum við endurskinsmerki ofan í skúffu, en þau
koma aðeins að gagni séu þau notuð. Gætum að því að börnin okkar noti
endurskinsmerki.
Nýi Kaupþing banki ætlar í samstarfi við Umferðarstofu og lögregluna
að gefa endurskinsmerki, sem nálgast má í öllum útibúum bankans. Þeir
sem búa fjarri útibúum bankans, geta sent tölvupóst á fraedsla@us.is og
fengið merki sent.
Nældu þér í endurskinsmerki í næsta útibúi. NÝI KAUPÞING BANKI
Við viljum sjá þig
STJÓRNMÁL Um níutíu frambjóð-
endur til síðustu alþingiskosninga
höfðu ekki skilað fjárhagslegu
uppgjöri til Ríkisendurskoðunar á
mánudag, en skilafrestur rann út
á miðnætti á sunnudag.
Alls átti 321 frambjóðandi að
skila inn fjárhagslegu uppgjöri
vegna framboðskostnaðar eða
einfaldri yfirlýsingu um að kostn-
aður við framboðið hefði kostað
300.000 krónur eða minna. Þetta
er í samræmi við lög um fjármál
stjórnmálasamtaka, en brot gegn
þeim geta varðað allt að sex ára
fangelsi. Um 230 svör höfðu bor-
ist stofnuninni á mánudag.
„En við gefum fólki auðvitað
kost á því að skila þótt það hafi
brunnið inni á frestinum,“ segir
Lárus Ögmundsson, skrifstofu-
stjóri hjá Ríkisendurskoðun.
„Skárra er seint en aldrei.“
Ríkisendurskoðun á
í framhaldinu að
birta útdrátt úr
reikningum þar
sem greina skal
heildartekjur og
heildargjöld hvers
frambjóðanda.
Þá skal greina á
milli framlaga frá
lögaðilum og frá ein-
staklingum. Sérstak-
lega skal greint frá
afslætti sem frambjóðandi kann
að hafa fengið frá markaðsverði.
Birta á nöfn allra fyrirtækja sem
styrkja frambjóð-
andann.
- kóþ
Ekki fara allir frambjóðendur til Alþingis eftir lögum um fjármál stjórnmálaflokka:
Um níutíu skiluðu ekki uppgjöri
KJÖRKASSINN Þeir
sem bjóðast til að fara
með löggjafar valdið
eiga að greina frá því
hverjir borga reikn-
ingana við framboðið,
samkvæmt lögum um
fjármál stjórnmálasam-
taka. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN