Fréttablaðið - 28.10.2009, Síða 28

Fréttablaðið - 28.10.2009, Síða 28
16 28. október 2009 MIÐVIKUDAGUR timamot@frettabladid.is Eiginkona mín, Helga Ingólfsdóttir semballeikari, sem lést 21. október sl., verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju mánudaginn 2. nóvember kl. 15 en tónlistarstund hefst kl. 14.30. Þeim sem vilja minnast Helgu er bent á Sumartónleika í Skálholtskirkju, kt. 700485-0809, reikningur 0334-13-554431. Þorkell Helgason Ástkær móðir okkar og amma, Jóhanna Herdís Sveinbjörnsdóttir frá Vestmannaeyjum, Borgarholtsbraut 20, Kópavogi, lést á Landspítalanum, Landakoti, að morgni sunnu- dagsins 25. október. Útförin verður auglýst síðar. Ríkharður H. Friðriksson Jóhanna Vigdís Ríkharðsdóttir Kristín Helga Ríkharðsdóttir. MOSAIK Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Björn Ólafsson Þverbrekku 4, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut hinn 19. októb- er. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 29. október kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Kolbrún D. Magnúsdóttir Erla María Kristinsdóttir Ómar Óskarsson Hrafnhildur Björnsdóttir Jón Magnús Katarínusson Magnús Ólafur Björnsson Aníta Ýr Eyþórsdóttir Oddný Björnsdóttir Róbert James Abbey Eygló Björnsdóttir Friðrik Þór Hjartarson Berglind Björnsdóttir Ólafur Tryggvason barnabörn og barnabarnabörn. MERKISATBURÐIR 1134 Magnús Einarsson er vígður biskup í Skálholti af Össuri erkibiskupi í Lundi. 1449 Kristján I. er krýndur kon- ungur Danmerkur. 1601 Rúdolf II., keisari Hins rómverska keisaradæm- is, kaupir öll stjörnuskoð- unartæki Tycho Brahe af Kirsten ekkju hans. 1780 Reynistaðabræður leggja af stað úr Árnessýslu norður Kjöl við fimmta mann, með 180 kind- ur og 16 hesta. Mennirnir farast allir í Kjalhrauni. 1981 Hrauneyjafossvirkjun í Tungnaá er tekin í notkun. 1987 Þáttur Hermanns Gunnars- sonar, Á tali hjá Hemma Gunn, hefur göngu sína í Sjónvarpinu. JOHN LOCKE (1632-1704) LÉST ÞENNAN DAG. „Mér hefur alltaf fundist gerðir manna gefa bestu vísbending- una um hugsanir þeirra.“ Locke var enskur heimspek- ingur, sem hafði feikileg áhrif með ritum sínum í þekkingar- fræði og stjórnspeki. Hann var einn helsti upphafsmaður bresku raunhyggjuhefðarinnar og lagði grunninn að hugmynda- fræði frjálshyggju. Þráinn Jóhannsson skósmíðameistari opnaði skóvinnustofuna Þráinn skóari á Grettisgötu 3 árið 1984 og fagnar því 25 ára rekstrarafmæli um þessar mundir. Hann var einungis 21 árs þegar hann hóf rekstur en á engu að síður talsvert lengri starfsævi að baki. „Ég hóf störf á skóvinnustofu Einars Högnasonar að Sólheimum 1 þegar ég var fimmtán ára. Það var af einskærri tilviljun og hef ég verið í þessu nán- ast alla tíð síðan,“ segir Þráinn. Alla tíð hefur hann haft nóg að gera en hann segir þó aldrei hafa verið meira að gera en eftir að kreppan skall á. „Það urðu straumhvörf í þessum efnum síðastlið- ið haust og hefur verið brjálað að gera hjá okkur sem og öðrum skósmiðum enda er fólk að nýta skóna sína mun lengur en áður. Til marks um það má nefna að við tökum inn um sextíu til hundrað pör á dag,“ upplýsir Þráinn. Hann segist skilja þessa þróun mæta vel enda geti stígvél jafnvel kostað um sjötíu þúsund í dag en algengt verð sé í kringum þrjátíu þúsund. „Það kostar aldrei meira en fjögur til fimm þúsund að sóla og hæla skó svo það margborgar sig að láta gera við.“ Þráinn rifjar í því sambandi upp viðtal sem var tekið við hann þegar hann opnaði árið 1984. „Þá kostaði hælplötuviðgerðin 130 krónur en í dag kostar hún 2.450 krónur sem er ágætis mælikvarði á hversu mikið hefur breyst á ekki lengri tíma.“ Þráinn segist taka eftir því að skó- tauið sem komi til hans í dag sé vand- aðra en áður. „Fyrir svona tíu árum var þetta óttalegt drasl en það var um svipað leyti og buffalo-skórnir voru sem vinsælastir. Ég viðurkenni það fúslega að mér finnst öllu skemmti- legra að eiga við það skótau sem við- gengst í dag.“ Þráinn hefur að sögn mikla ánægju af starfinu. „Hingað kemur mikið af alls kyns fólki og ég hlakka alltaf til að fara í vinnuna.“ Fyrir utan skó- viðgerðir er Þráinn með allar viðhalds- vörur auk þess sem hann tekur við fötum í hreinsun. „Það höfum við allt- af gert að erlendri fyrirmynd og hefur það gefist vel. Þá erum við einnig með skóbúð og leggjum mikla áherslu á vandaða vöru,“ segir Þráinn en í búð- inni fást meðal annars skór frá Pertti Palnroth og Stuart Weitzman. Í tilefni afmælisins verður opið hús milli klukkan 16 og 18 á laugardag auk þess sem Þráinn býður upp á 25 pró- senta afslátt af allri vöru og þjónustu í vikunni. „Ég á von á því að álagið auk- ist til muna við það en þetta er mín leið til að heiðra viðskiptavini mína í gegnum tíðina.“ vera@frettabladid.is ÞRÁINN SKÓARI: FAGNAR 25 ÁRA AFMÆLI MEÐ AFSLÆTTI OG OPNU HÚSI Straumhvörf urðu við hrun STENDUR Í STRÖNGU Þráinn hefur alla tíð haft nóg að gera en þó aldrei meira en eftir að kreppan skall á. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þennan dag árið 1848 var Dómkirkjan í Reykjavík vígð eftir gagngera endurbygg- ingu. Kirkjan var byggð árið 1796 en árið 1815 var hún ekki talin hæf til messuhalds. Árið 1817 var hún algerlega tekin í gegn og tveimur árum síðar var svo byggt við hana bæði skrúðhús og líkhús. Kirkjan var svo aftur stækkuð á árunum 1846 til 1848 og þá bæði hækkuð og byggt við hana. Eftir það var lítið gert við hana fram til ársins 1878 þegar hún var enn á ný tekin í gegn og vígð að ári liðnu. Upp frá því hefur henni verið haldið við nokkuð reglulega og nú síðast var turninum breytt í upprunalegt horf. Dómkirkjan er emb- ættiskirkja biskups Ís- lands og þar með höfuðkirkja hinnar lúthersku þjóðkirkju Ís- lands sem og sóknar- kirkja nokkurra elstu hverfa Reykjavíkur. Kirkjan er við Austur völl og frá endurreisn Al- þingis árið 1845 hefur sú hefð haldist að þing- setning hefst með messu í Dómkirkjunni og þaðan leiðir dóm- kirkjuprestur þingmenn til Alþingis. ÞETTA GERÐIST: 28. OKTÓBER 1848 Dómkirkjan vígð eftir endurbyggingu AFMÆLI BILL GATES stofnandi Microsoft, er 54 ára í dag. STEINN ÁRMANN MAGNÚS- SON leikari er 45 ára í dag. JULIA ROBERTS leikkona er 42 ára í dag. EROS RAMAZZ- OTTI söngv- ari er 46 ára í dag. Vísindamiðlun verður eitt aðalumræðuefni fyrirlest- urs Ara Trausta Guðmunds- sonar jarðvís- indamanns á fundi Vísinda- félags Ís- lands í Norræna húsinu í kvöld sem hefst klukkan 20. Raktar verða breyting- ar sem orðið hafa á vísinda- miðlun frá 1970 og rætt um hve ólíkum hópum hún þjónar, börnum, unglingum, fullorðnum, fólki í atvinnu- starfsemi og ráðamönnum. Að endingu verða settar fram hugmyndir um úrbæt- ur á vísindasviðinu, meðal annars um stofnun Aka- demíu Íslands. Vísindaþing ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.