Fréttablaðið - 28.10.2009, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 28. október 2009
Bókmenntir ★★★★
Yfir hafið og í steininn
Tapio Koivukari
Flutningar
á flóttafólki
Þýdd skáldsaga úr finnsku af Sigurði
Karlssyni eftir rithöfundinn Tapio Koivukari
kom skemmtilega á óvart. Á baki er sagt
frá efni sögunnar. Í lok Vetrarstríðsins
hófst ný styrjöld í Finnlandi. Þá tók stjórn
við í Finnlandi vinveitt Rússum og eitt
verkefni hennar var að skila til Sovétríkj-
anna öllum flóttamönnum frá Ingerlandi
og úr Kirjálabotni. Fyrra svæðið sem var
sunnan Pétursborgar og var byggt finnskumælandi fólki
var orðið að samyrkjubúasvæði og þaðan lá straumur
flóttafólks. Kirjálabotninn var annað svæði sem var lagt
undir Rússa og þaðan flúði fólk líka. Um
þessa flóttamenn fjallar sagan.
Sögumaðurinn er fiskimaður í finnska
skerjagarðinum og rekur hann sögu
sína á tveimur tímum, endurliti atvika
við flóttaleiðina og svo setu í fangelsi
vegna þessara flutninga. Sagan er
feikilega vel samin, spennandi, grósku-
mikil í þröngum farvegi sögunnar,
lesandinn er langan tíma að átta sig á
þessari rödd og skynja hana og örlög
hennar til fulls. Forsagan er smátt og
smátt að koma í ljós. Hann er mikill
töffari þessi maður en hér er allt fullt
af smáatriðum, vel byggðum lýsingum
sem færa okkar örugglega inn á vett-
vanginn. Þetta er örugglega ein af bestu
skáldsögum sem komnar eru á markað
á þessu hausti, þýdd af miklu öryggi á
safaríkan hátt af Sigurði Karlssyni. Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Frábær og spennandi saga.
Bókmenntir ★★★★
Svo skal dansa
Bjarni Harðarson
Við erum reköld fátæktarinnar
Fátækar konur og falleraðar, rekast fyrir vindum lítilla efna og ástar um
íslenskt samfélag. Þær ber niður austur á fjörðum og ílengjast þar. Þrjár kyn-
slóðir valkyrja, stoltar konur með stóran harm. Allar eignast þær ungar börn,
vart af barnsaldri sjálfar, og þurfa að láta frá sér. Hjartasárið grær aldrei en
lífið heldur áfram með fleiri börnum og fleiri sögum. Ástin ber að dyrum og
stundum virðist lífshamingjan brosa við. En fyrir fátækar, ættlausar konur
með ómegð eru kostirnir ekki margir; breiða fisk á flekk í þurrabúðinni og
salta síld, eða koma sér að á sveitabæ. Og víst má láta sig dreyma um betra
líf, en til hvers eru draumar og hvers mega fátækar alþýðukonur vænta, eða
eins og Sigríður orðar það: „Víst hefði ég viljað eiga dætur sem vitjuðu um
mig en hver var ég að fara fram á slíkt?“
Bjarna Harðarsyni tekst á lipran hátt að flétta eigin ættarsögu saman
við sögu íslensku þjóðarinnar, sögu alþýðukvenna, sögu erfiðrar lífsbaráttu
og einbeitts vilja. Bjarni kann að segja sögur, sér það skoplega í lífinu og
bregður fyrir sig lýríkinni þegar við á. Svo skal dansa er mikil saga mikilla
kvenna sem lifðu við lítil efni. Kolbeinn Óttarsson Proppé
Niðurstaða: Vel skrifuð saga um erfiða lífsbaráttu fátækra en viljasterkra
kvenna. Heillandi bók.
Fyrir minna en
400 kr. kílóið
398 kr.kg.
K.S FROSIN LAMBASVIÐ 268 kr.kg.
K.S FROSINN INNMATUR HJÖRTU OG LIFUR
198 kr.kg.
ALI SA
298 kr.kg.
KJARNAFÆÐI FROSIÐ SPARHAKK
398 kr.kg.
KJARNAFÆÐI NÝTT KJÖTFARS
398 kr.kg.
B RÓNUS BLANDAÐIR KJÚKLINGABITA
398 kr.kg.
www.facebook.com/graenaljosid
FRUMSÝND 6. NÓVEMBER