Fréttablaðið - 28.10.2009, Page 33
MIÐVIKUDAGUR 28. október 2009
Grínhópurinn Mið-Ísland stendur
fyrir ókeypis skemmtun á Batterí-
inu (áður Organ) annað kvöld kl.
21.30. Í hópnum eru Ari Eldjárn,
Jóhann Alfreð, Dóri DNA, Bergur
Ebbi og Árni Vilhjálmsson. Sjón-
varpsmaðurinn og verðandi Akur-
eyringurinn Helgi Seljan var mun-
straður til að vera kynnir
á kvöldinu. „Ég hitti
hann baksviðs eftir
einhverja tónleika
um daginn og við
drukkum vodka
af stút og sögðum
karlmannlega hluti,
en mér leið raun-
verulega eins og
rækju og lyppaðist út og hakkaðist
í leigubílnum heim,“ segir Bergur
Ebbi. Hann þurfti að herða sig mikið
upp áður en hann þorði að hringja í
Helga. „Jú, hann virkar svo harður í
sjónvarpinu og er nokkuð röff týpa.
En Helgi tók frábærlega í þetta og
er farinn að bryðja haltu-kjafti
brjóstsykur í gríð og erg til að hafa
kjálka vélbyssukjaftsins í toppformi
á fimmtudaginn.“
Ástæðan fyrir því að Mið-Ísland
vildi fá Helga til að kynna er ein-
föld. „Við höfum engan áhuga á að
presentera okkur sem einhverja
101 hipstera sem halda kaldhæð-
in „grínkvöld“ á börum bæjarins.
Við viljum segja grín fyrir alþýð-
una. Hipsterana og flíspeysuliðið í
bland og Helgi er þannig „heads on“
gæi sem hristir upp í báðum hópun-
um.“ - drg
Helgi Seljan kynnir grínið
ENGIR 101 HIPSTERAR Mið-Ísland vill
líka grínast fyrir flíspeysuliðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VERÐUR HANN
DÓNI OG FÍFL?
Helgi Seljan kynnir
grín Mið-Íslands.
Hljómsveitin Furstarnir með
Geir Ólafsson í fararbroddi held-
ur sína árlegu tónleika á Kringlu-
kránni 6. og 7. nóvember. Aðrir
söngvarar auk Geirs verða þau
Ólafur Gaukur, Svanhildur
Jakobs dóttir, André Bachmann,
Egill Ólafsson og Páll Rósinkrans.
„Þetta er í fyrsta skipti sem þeir
eru með okkur þarna. Það er mik-
ill heiður að hafa þá,“ segir Geir
um þá Egil og Pál. Geir er sjálfur
að undirbúa nýja dúettaplötu þar
sem eingöngu konur munu syngja
með honum, þar á meðal Móeiður
Júníus dóttir. Upptökur hefjast í
nóvember og verður platan tilbúin
næsta vor. - fb
Egill og Páll
með Furstum
FURSTAR Geir Ólafsson og André Bach-
mann spila á Kringlukránni í nóvember.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fjögur af heitustu nýböndun-
um í dag slá saman í tónleika í
kvöld til styrktar nemendum í
Myndlistaskólanum í Reykjavík.
Nemarnir stefna á námsferð til
Prag. Böndin sem spila eru Úti-
dúr, Nolo, Bárujárn og Sykur. Öll
böndin spiluðu á Airwaves-hátíð-
inni og fengu góða dóma. Tónleik-
arnir fara fram á Batteríinu. Þeir
hefjast kl. 21 og það kostar 500
kall inn. - drg
Styrkja nema
SYKUR Á Batteríi í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Opnunartónleikar Womex-heims-
tónlistarhátíðarinnar í Kaup-
mannahöfn verða sendir út í
beinni útsendingu á Rás 2 í kvöld.
Opnunartónleikarnir eru að
þessu sinni helgaðir norrænni
tónlist. Heiða Árnadóttir, söng-
kona hljómsveitarinnar Mógils,
er ein þeirra sem koma fram
með hljómsveitinni. Það gerir
líka Eivör Pálsdóttir, fóstur dóttir
Íslands. Útsending stendur frá
klukkan 19 til 20.30. - drg
Eivör í beinni