Fréttablaðið - 28.10.2009, Page 34
22 28. október 2009 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson hefur
farið vel af stað með sínu nýja liði,
Rhein-Neckar Löwen, í þýsku
úrvalsdeildinni í haust. Hann kom
til liðsins í sumar frá Ciudad Real
á Spáni þar sem hann átti gríðar-
legri velgengni að fagna þau sex
ár sem hann var þar. En í haust tók
við nýr kafli á hans ferli.
„Þetta var það sem ég bað um og
vildi fá. Ég vildi fá nýja áskorun,“
sagði Ólafur í samtali við Frétta-
blaðið í gær. „Ég vissi að ég væri
að fara í lið sem væri allt öðruvísi
samansett og þyrfti að byggja upp
frá grunni. Fyrstu tvo mánuðina
skaut ég því eiginlega ekkert á
markið því ég vildi sjá hvað gerð-
ist þegar ég gaf boltann. Sókninni
lýkur með skoti og því olli forvitni
mín því að ég spilaði boltanum frá
mér að mestu leyti í fyrstu bara til
að sjá hvað yrði úr því.“
Hann sagði að það væri einnig
góð leið til að kynnast nýjum sam-
herjum og fyrir þá að kynnast sér.
„Þeir þurftu líka að finna fyrir því
að ég væri ekki örvæntingarfull-
ur enda þarf ég ekki að troða mér
fram líkt og ég væri 22 ára gam-
all. Það gefur þeim líka ef til vill
öryggistilfinningu í sínum leik.“
Þessi tilraunastarfsemi, eins
og Ólafur kemst sjálfur að orði,
kostaði ekki nema tvo tapleiki í
haust. „Við töpuðum fyrir Kiel og
Hamburg og vorum við kannski
óheppnir að mæta þessum tveimur
sterku liðum svo snemma á tíma-
bilinu. Liðið þurfti bara tíma til að
smella saman. En þetta er allt að
koma og slípast saman hjá okkur.“
Ólafur segir að þrátt fyrir allt
hafi fátt komið sér á óvart síðan
hann gekk til liðs við Löwen. „Ég
veit að það er til mikils ætlast af
mér. Bæði á ég að bæta ákveðna
hluti í kringum mig ásamt því að
ég þarf að sinna mínu hlutverki.
Enda er ekki hægt að bæta neitt
í kringum sig ef maður er ekki að
sinna sínu – þegar maður nýtur
ekki virðingar þá minnkar vægi
orðanna. Þannig er bara lífið.“
En hann viðurkennir að breyt-
ingin sé ekki auðveld enda var
hlutverk hans hjá Ciudad Real
löngu orðið fastmótað. „Ég þurfti
ekkert að hafa fyrir þessu þar
og ræddi nánast aldrei við mína
félaga um handbolta. Þjálfararnir
sáu bara um þá hlið. Í mesta lagi
þurftum við að slípa nokkra hluti
til en annars gekk liðið bara eins
og vél. Það sást best þegar Ciudad
Real vann Hamburg í Meistara-
deildinni fyrir stuttu. Það keyrði
áfram á skipulagi sem er búið að
þróast í fjögur ár. Það var í raun
fallegt að fylgjast með því.“
Ólafur er með tvo íslenska sam-
herja í Rhein-Neckar Löwen – þá
Guðjón Val Sigurðsson og Snorra
Stein Guðjónsson. Hann segir það
kost að spila með Íslendingum.
„Ég er búinn að spila með þeim
svo lengi og var það til dæmis frá-
bært fyrir mig að fá Snorra inn
á miðjuna. Það einfaldaði hlutina
mikið fyrir mig. Við höfum einnig
verið að vinna lengi saman með
landsliðinu og það skilar sér líka í
samvinnu okkar hjá Löwen.“
Rhein-Neckar Löwen er í þriðja
sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með
tólf stig af sextán mögulegum.
Kiel og Hamburg eru einu taplausu
liðin í deildunum og í tveimur efstu
sætum deildarinnar.
Liðið er einnig í góðum málum
í Meistaradeild Evrópu, er í efsta
sæti síns riðils með fimm stig eftir
þrjá leiki.
eirikur@frettabladid.is
Veit að til mikils er ætlast af mér
Ólafur Stefánsson er ánægður með að vera kominn í þýsku úrvalsdeildina á ný en hann leikur nú með
Rhein-Neckar Löwen. Hann segir í samtali við Fréttablaðið að hann hafi þurft á nýrri áskorun að halda.
KUNNUGLEG STELLING Ólafur segir að hann hafi frekar viljað gefa á samherja sína en
skjóta fyrstu tvo mánuði sína hjá Rhein-Neckar Löwen. NORDIC PHOTOS/BONGARTS
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mun á morgun leika æfinga-
leik gegn svokölluðu pressuliði sem íþróttafréttamenn sáu um
að velja. Liðið er skipað leikmönnum sem spila hér á landi en
það fellur í hlut þeirra Arons Kristjánssonar og Kristjáns Halldórs-
sonar að stýra því af hliðarlínunni.
„Þetta sýnir að íþróttafréttamenn vita greinilega miklu
meira um handbolta en maður hélt,“ sagði Aron og hló
þegar hann var spurður um sitt mat á vali íþróttafrétta-
manna. „Mér líst vel á þetta enda skemmtilegt verkefni.
Þessir strákar fá nú að spreyta sig gegn einu sterkasta
landsliði í heimi. Hér er búið að setja saman úrvalslið
úr íslensku deildinni og mikið af efnilegum strákum
í því. Þeir fá nú tækifæri til að láta ljós sitt skína og
sýna að þeir eigi ef til vill erindi í æfingahóp lands-
liðsins,“ bætti Aron við. „Þarna má án nokkurs vafa
finna marga framtíðarleikmenn landsliðsins.“
Hann segist nokkuð sáttur við hvernig pressuliðið
er skipað. „Sjálfsagt hefði það litið aðeins öðruvísi út
ef maður hefði sjálfur sett það saman en það má ef til
vill segja að þetta séu þeir leikmenn sem hafa staðið sig hvað best
í byrjun tímabilsins í haust.“
Hann sagði liðið þó myndu ekki koma saman á æfingu í dag
heldur kæmu leikmenn beint í leikinn. Þrátt fyrir það ætlar Aron
að veita landsliðinu almennilega mótspyrnu.
„Við munum að sjálfsögðu að reyna að gera þetta að
almennilegum leik. Leikmenn koma vitaskuld hver úr sinni
átt en það er okkar þjálfaranna að finna nokkur sameigin-
leg atriði sem liðið getur nýtt sér.“
Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni á morgun
klukkan 19.30 og er aðgangseyrir þúsund krónur. Frítt
er fyrir fimmtán ára og yngri. Forsvarsmenn HSÍ sögðu
á blaðamannafundi í gær að þeir vonuðust eftir góðri
mætingu á leikinn enda líklega síðasti leikur lands-
liðsins hér heima á þessu ári.
Aron tók undir það. „Það gerist ekki oft að lands-
liðsstrákarnir eru flestir samankomnir á landinu. Það
er því vonandi að fólk fjölmenni og styðji vel við
bakið á pressuliðinu,“ sagði hann og brosti.
ARON KRISTJÁNSSON: STÝRIR PRESSULIÐINU ÁSAMT KRISTJÁNI HALLDÓRSSYNI GEGN LANDSLIÐINU
Íþróttafréttamenn hafa meira vit en ég hélt
> Sextán leikmenn í pressuliðinu
Pressulið íþróttafréttamanna sem mætir landsliðinu í
æfingaleik á morgun er skipað eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir eru Birkir Ívar Guðmundsson (Haukum)
og Pálmar Pétursson (FH). Aðrir leikmenn: Arnór
Þór Gunnarsson (Val), Björgvin Hólmgeirsson
(Haukum), Ernir Hrafn Arnarsson (Val), Fannar
Friðgeirsson (Val), Freyr Brynjarsson (Haukum),
Guðlaugur Arnarsson (Akureyri), Haraldur
Þorvarðarson (Fram), Oddur Grétarsson
(Akureyri), Orri Freyr Gíslason (Val), Ólafur
Gústafsson (FH), Ragnar Hjaltested
(HK), Ragnar Þór Jóhannsson (Selfoss),
Sigurgeir Árni Ægisson (FH), Valdimar
Fannar Þórsson (HK).
HANDBOLTI Ísland leikur fimm
æfingaleiki í janúar næstkom-
andi fyrir Evrópumeistaramótið
í Austurríki. Fyrst mætir lands-
liðið Þjóðverjum ytra í tveimur
leikjum og svo Portúgal heima
13. janúar. Þá tekur liðið þátt í
sterku æfingamóti í Frakklandi
en enn er óljóst hvaða önnur lið
taka þátt í mótinu. - esá
Undirbúningur fyrir EM 2010:
Mæta Frökkum
og Þjóðverjum
N1-deild kvenna
Fylkir-Stjarnan 21-33
FH-Víkingur 36-19
Enski deildarbikarinn
Barnsley-Manchester United 0-2
0-1 Danny Welbeck (6.), 0-2 Michael Owen (59.).
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn fyrir Barnsley.
Portsmouth-Stoke 4-0
1-0 Frederic Piquionne (17.), 2-0 Danny Webber
(55.), 3-0 Piquionne (59.). 4-0 Kanu (81.).
Hermann Hreiðarsson var ekki í leikmannahópi
Portsmouth vegna meiðsla.
Sunderland-Aston Villa 0-0*
*Framlenging stóð yfir þegar blaðið fór í prentun.
Blackburn-Peterbrough 5-2
1-0 Morten Gamst Pedersen (4.), 1-1 Chris
Whelpdale (17.), 2-1 Steven Reid (45.), 2-2
George Boyd (50.), 3-2 Michel Salgado (57.), 4-2
Benni McCarthy (72.), 5-2 Nikola Kalinic (74.).
Tottenham-Everton 2-0
1-0 Tom Huddlestone (31.), 2-0 Robbie Keane
(57.)
Sænska úrvalsdeildin
Gautaborg-Halmstad 2-2
Jónas Guðni Sævarsson lék allan leikinn með
Halmstad og skoraði seinna mark liðsins og
Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með
Gautaborg.
ÚRSLIT
Húsgagnahöllinni, Bíldshöfða, sími 585 7239. Lindir, Skógarlind 2, sími 585 7262
1.790 FÓTBOLTI Eftir svekkjandi tap
gegn Frakklandi í undankeppni
HM 2011 um síðustu helgi er ljóst
að kvennalandslið Íslands er með
bakið upp við vegg og má ekki við
því að misstíga sig það sem eftir
er í undankeppninni. Landsliðs-
þjálfarinn Sigurður Ragnar Eyj-
ólfsson gerir sér fyllilega grein
fyrir því og vonast til þess að sjá
jákvæð viðbrögð frá stelpunum
í kvöld.
„Við vorum ef til vill með
aðeins vængbrotið lið gegn Frökk-
um en fyrir utan það þá spiluð-
um við ekki nægilega vel. Frakk-
arnir áttu reyndar mjög
góðan dag og það var
svona ýmislegt sem
spilaði inn í. Tapið
þýðir hins vegar að
við verðum að vinna
alla hina leikina í
undankeppninni
til þess
að
geta sett upp úrslitaleik gegn
Frökkum á Laugardalsvelli næsta
sumar og það er það sem við
ætlum að gera. Við ætlum því að
byrja þetta á sigri gegn Norður-
Írum,“ segir Sigurður Ragnar.
„Við rennum svolítið blint í
sjóinn fyrir þennan leik því við
höfum aldrei mætt þeim áður
og höfum bara séð einn leik með
þeim á myndbandi þannig að það
er dálítið erfitt að dæma út frá
því. Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem ég hef í höndunum eigum
við að vera með betra lið en við
verðum þá líka að sýna það inni
á vellinum,“ segir Sigurður
Ragnar að lokum.
Margrét Lára Viðarsdóttir
og Sara Björk Gunnars-
dóttir voru tæpar fyrir
leikinn þegar Fréttablaðið
heyrði í Sigurði Ragnari í
gærkvöldi en hann útilok-
aði ekki að þær yrðu með í
kvöld. - óþ
Ísland mætir Norður-Írlandi í undankeppni HM:
Verðum að vinna
SIGURÐUR RAGNAR Er
vongóður fyrir leikinn
gegn Norður-Írlandi í
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Manchester United vann
0-2 sigur gegn Barnsley í fjórðu
umferð enska deildarbikarsins á
Oakwell-leikvanginum í gær.
Landsliðsmaðurinn Emil Hall-
freðsson var í byrjunarliði Barns-
ley og lék á miðjunni en knatt-
spyrnustjórinn Sir Alex Ferguson
gerði ellefu breytingar á
byrjunar liði United frá tapleikn-
um gegn Liverpool um helgina.
Danny Welbeck og Michael
Owen skoruðu mörk gestanna en
Gary Neville fékk að líta rauða
spjaldið þegar um hálftími lifði
leiks. - óþ
Enski deildarbikarinn í gær:
United lagði
Emil og félaga
BARÁTTA Emil Hallfreðsson reynir að
stoppa Gabriel Obertan. NORDIC PHOTOS/AFP