Ljósberinn - 01.01.1936, Blaðsíða 7
LJÖSBERINN
5
Kvöldbænin okkar.
Ef þú átt vin, þá talar þú við hann,
já, svo oft sem þú hefir tækifæri til. Ef
t>ú hættir að tala við þennan vin þinn
. og- skiftir þér ekkert af honum, þá
slitna smátt og smátt vináttuböndin.
Sumir segja: við þurfum ekki að vera
aö biðja Guð, hann veit ■ um alt, sem
okkur bætir eða skaðar, um alt, sem
við þurfum. En þetta er ekki rétt. Pabbi
og mamma vita alt af, hvers barnið
þeirra þarfnast; en þó biður þú alt af
pa,bba og mömmu um þetta eða hitt og
þau gleðjast af barnslega traustinu,
sem þeim er sýnt, bænin er vináttu-
samband þitt við pabba og mömmu. Svo
er og með bænina til Guðs. Hún er hið
persónulega vináttusamband á milli
Guðs föðurs á himnum og barnsins hans
hér á jörðinni. Jesús kendi okkur að
biðja. Þið kunnið vonandi öll þetta fal-
lega vers, sem byrjar svona:
»Bænin má aldrei bresta þig,
búin er freisting ýmisleg.«
Og öll vitið þið víst hver hefir ort það
°S í hvaða bók þið getið fundið það?
Kvöldvers lesið þið víst alt af, áður
en þið sofnið. Biðjið mömmu eða pabba
eða eldri systkini ykkar að lesa með
.ykkur kvöldversin, þið, sem enn eruð
Un8‘, og- þið, sem eldri eruð, lesið versin
ykkar, áður en þið sofnið. Ilaldið þeim
vana alt lífið út, því minnist ætíð þess,
sem Hallgrímur Pétursson segír:
»Verður það oft er varir minnst,
að voveifleg hætta búin finst.
Ein nótt er ei til enda trygg,
að þvi á kvöldin, sál mín, hygg.
Hvað helzt sem kann að koma’ upp á,
kjós Jesúm þér að vera hjá,
skelfing engin þig skaðar þ<á.
Fjórar þrautir.
Segðu satt!
Sannleiksmegin vertu.
Segðu satt!
Sannleiksbam þá ertu.
Segðu satt!
Og sá er reynist sannur,
mun sigurlaunum ná,
og Kristur m,un hann krýna
og kórónuna fá.
Gerðu gott!
Gefðu þeim, sem, biður.
Gerðu gott!
Guð það hlutverk styður.
Gerðu gott!
Með Guði skaltu ganga
og gæta’ að verkum þeim,
er lýðnum verða að liði
og lýsa þennan heim.
Hjarta-hreinn,
hjartað Guði færðu.
Hjarta-hreinn,
himin-timgu lærðu.
Hjarta-hrevmi.
Og beygðu bljúgu-r hjarta
og bið í nafni hans,
scm hreinn í hjarta lifði
og hreinsar sálu manns.
Eigingjam,
aldrei máttu verða,
eigingjam,
aldrei viljann herða.
Eigingjam.
En alla eigingirni
skal ídi loka skjótt
og biðja Guð að gefa
þér gæzku og viijaþrótt.
M. R.