Nýtt kirkjublað - 30.01.1908, Side 6
2
NÝTT KffiKJUBLAÐ,
og kirhjublað hefir um að rœða. Samkeppnin stórUm
meiri nú. En hvað um pað. Ekki mundi það koma að
sök, ef fólkinu á annað borð þœtti það ómaksins vert
að lesa það sem í blaðinu stendur.
Einmitt þetta, hve dauflegt er nú yfir kirkjulega líf-
inu, svo ekki sé meira sagt, er sterkasta livötin að gefast
ekki upp.
Sú stefna kirkjumála og trúarlífs, sem lialdið hefir
verið fram í N. Kbl., má með engu móti falla niður og
deyja út. Hitt nauðsyn, að tala enn skýrar og skorin-
orðar um meinin, — afdráttarlaust.
Hjá oss Isléndingum — guði sé lof fyrir það — er
almennur trúaráhugi þvi að eins hugsanlegur, — að
hann byggist á og lifi í sannfrjálslyndum kristindómi.
Þjóðlíf vort bíður þess aldrei bœtur, ef trúarlífinu í
landinu er spilt, hvort heldur það er með svefni sinnu-
leysisins eða þröngsýnis-ofstœki fáfrceðinnar.
Langt mál þýðir eigi að sinni Arið er framundan.
Guð láti starf vort allra, sem að blaðinu vinna, — unnið i
nafni hans, er alla leiðir til himnaföðursins — verða krisli-
legu trúar- og þjóðlífi til vakningar, vaxtar og blessuna/r.
refkaflar
frá sira Zophoníasi heitnum Halldórssyni til
ritstjóra Kirkjublaðsins árin 1893—1897.
Meíra ljós.
Eins og staða mín hefir krafið af mér og kjör min hvatt
mig til, hefi ég mikið hugsað um trúarbrögðin og beðið guð
um meira Ijós, og hefi ég komist á aðra skoðun um ýmis-
legt en mér hefir verið fyrri kent. Mér hefir verið annað
ómögulegt. Það er mjög erfitt og seinlegt að fá breytt þeirri
sannfæringu, sem maður hefir fengið sem barn, og það hygg
ég, að maður bíði þess aldrei fullar bætur, þegar maður í
æsku hefir fengið inn í sig skakkar skoðanir. Það er sem
illgresi í akri. En guði sé lof, að ég held og mun halda