Nýtt kirkjublað - 30.01.1908, Blaðsíða 11

Nýtt kirkjublað - 30.01.1908, Blaðsíða 11
NÝTT KIRKJUBLAÐ. 7 tas“ [óskeikulleik] ritningarinnar .... Raunar sé ég aS þú ert ekki alveg frjáls i því. En þab er tími til að láta ljós sitt lýsa í því efni, því að ég fullvissa þig um, að fólkið er mjög margt á landsbygðinni fult af efa í því efni. Þér að segja er svo margt í G. Tm. svo lygilegt, að það getur ekki verið guðs orð, heldur mun það bara vera skáldskapur eftir menn á óupplýstum tíma. í því efni er ég á sama máli og síra Páll sál. Sigurðsson, ef ég man rétt rœðu hans þar að lútandi, bK 11—19 incl. Annars fylli ég flokk þeirra, hvort sem þeir eru fáir eða margir — það varðar mig í þessu efni ekkert um —, sem halda upp á ræður hans yfir höfuð að tala. Mér þykja þær Iýsa því, að höf. þeirra hefir verið skarpgáfaður, skáld og mælskumaður, og mjög hugsandi maður um sín fræði og sitt starf, og heitur trúmaður á sinn hátt, trúmaður einlægur á guð og vöxt og viðgang hans ríkis, sannleilians, kærleikans, réttlætisins og frelsisins himneska ríki. Síra Páll hefir einnig þann mikla — en því ver eigi almenna — kost, að hann segir afdráttarlaust af hrein- skilni skoðun sína í trúarefnum og á kirkjunni og siðum hennar. Hann segir kost og löst hreinna og beinna en jafnvel má húast við af þjóðkirkjupresti . . . Það mun mér óhætt að fullyrða, að ræður hans, eða réttara sagt: trúarskoðanirnar í þeim, falli mönnum alment betur í geð en ræður biskupanna P. og H., að þeim alveg ólöstuðum. (Vorið 1896). Barnslega trúin. Eg ritaði þér snemma í vor alllangt bréf og hugsaði hálfvegis, að það mundi verða til þess, að þú segðir eitthvað um það, er í því stóð, bréflega aftur til mín. Eftir ástæðum var sumt þar svo lagað, að ég vildi ekki hafa sagt það nema þeim einum, sem ég treysti..............Mig langar til að heyra eitthvað um lífsins mál frá þeim . . . Það er svo leitt að vera svo langt frá andans mönnum, og nð standa ráðalaus yfir svo mörgum leyndardómum og ráðgátum lífs- ins, og-snúast í daglegum umsvifum. Vel veit ég, að eng- inn maður leysir hinar mörgu þungu ráðgátur, en betur sjá augu en auga, og mig langar svó mikið eftir meira ljósi. Það er alls enginn efi á því, að sælir eru þeir sem trúa þótt þeir ekki sjái, og ég finn það ráðið bezt, þegar mér

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.