Nýtt kirkjublað - 30.01.1908, Síða 14
10
NÝTT KIRKJUBLAÐ
Fyrstu ár séra Z. í ViSvík var skemdarverkiS mikla og illa
unnið á Hólakirkju, er hún var svift skrauti sínu, myndum, stúk-
um, kórpoiti o. s. frv. Því réðu aðrir, og séra Z. sá um
seinan, hve mjög kirkjunni hafði verið spilt. Hann hefði
og vart heldur getað afstýrt því. Á kirkjulofti sá eg enn
sumarið 1904 vandað og vel haldið spjald með latínugrafskrift
Þórðar biskups Þorlákssonar yfir niágkonu hans, Ingibjörgu
Benediktsdóttur biskupsfrú á Hólum, sem andaðist 1673. Og
eitthvað var þar enn eftir af pentuðum fjölum frá lokuðu
sœtunum.
Réttdæmur maður og glöggskygn, sem um nokkur ár var
granni séra Z. og sfarfaði með honum í mörgum félagsmál-
um, fyrverandi skólastjóri á Hólum Hermann Jónasson, hefir
kveðið mjög fast að því við mig, hve frábærlega tillögngóður
og farsæll séra Z. hafi verið í öllum málum, og hve vel hon-
um vanst alt, þótt bægt færi.
Varla hefir verið ástsælli prestur af söfnuði sínum, og betur
metinn maður af héraðsbúum — en séra Zophonías.
Það var „fylsta sannfæring" kennara hans, að hann
mundi „verða prestastéttinni til sóma“. Meira lofsorð hefir
enginn fengið frá prestaskólanum, og það reyndist satt.
Séra Z. var f'. á Brekku í Svarfaðardal 11. júní 1845, stúdent 1873,
guðfr.kand. 1876, vígðist til Goðdala s. á., fékk Viðvík 1886, varð pró-
fastur 1889. Hunn kvœntist 1876 Jóhönnu Soffíu, dóttur háyfirdómara
Jóns Pélurssonar, Hún lifir mann sinn og 3 synir, Pétur, ritstjóri og
banknritari f Rvík, Páll, við búfræðisnám erlcndis og Guðmundur,
við mentaskólanám.
Séra Zophonías anduðist 3. þ. m.
lýárskveðja
frá sira Mattliíasi.
Skáldið góða skrifar ritstjóra svo á nýársdag:
„Gleðilegt ár. Klukkan er 8 og eg kominn á fætur.
Veðrið inndælt, og hinn skarði máni vofir yfir Vitazgjafa
Glúms, og svo settist eg við mitt erfiða uppáhald: „Endea-