Nýtt kirkjublað - 15.02.1908, Page 5

Nýtt kirkjublað - 15.02.1908, Page 5
NÝTT KIRKJTTBLAÐ. 29 fyrir fólkið í hinu forna óskifta Reykjavikur-prestakalli. Nú full 10000 í sjálfum bænum og um 500 í útsókninni. Eftir aukaverkunum árið sem leið hefði verið engu minni þörf á því að fríkirkjupresturinn hefði haft aðstoð. Þau gefa og bending um fólksfjöldann í söfnuðunum. Séra Jóhann hefir árið sem Ieið skírt ein 150 börn, en séra Ólafur 210, séra Jóhann hefir gefið saman 48 hjón, en séra Olafur 77. Aftur hefir séra Jóhann jarðsungið 130 manns, en séra Ólafur ekki nema 95. En ótaldar eru húskveðjurnar sem frikirkju- presturinn flytur fyrir þjóðkirkjumenn. Þær eru margar. Þess ber og að gæta að hér i bæ deyja margir, aðkomnir til lækninga, utan beggja safnaða, og munu þeir flestir jarð- sungnir frá dómkirkjunni. Eftir tölu fæddra og giftra ætti fríkirkjusöfnuðurinn að vera mun stærri, en í þeim söfnuði er aðallega yngra fólkið, sem til bæjarins streymir árlega hvaðan- æfa og giftist hér og getur börn. Næst mun það vera sönnu, að áhöld séu um fólksfjöld- ann i báðum söfnuðunum, hvort sem litið er til Reykvíkinga eða útsóknarmanna. Seltirningar eru fremur tryggir við þjóð- kirkjuna en uppbæir farið flestir í hina, enda i henni léttari gjöld fyrir sveitabændur . Það dylst eigi að fríkirkjan sækir á og hún fær' viðkomuna. Og það er síður en svo að það nýmæli fríkirkjunnar, að láta alla borga aukaverkin áður en unnin eru, hafi fælt menn þaðan. Sú regla hefir einmitt orðið hinn bezti skilvísis-skóli fyrir fríkirkjusöfnuð Reykjavíkur. Þriðji söfnuður er hér í bænum með lögmætan prest, katólski söfnuðurinn í Landakoti. Fjórði söfnuðurinn mun vera í aðsigi, hjá David Östlund adventistatrúboða, búist við að hann innan skamms fái konunglega staðfesting sem for- stöðumaður adventista-safnaðar. Þessi brot eru þó svo fámenn að eigi koma þau hér til greina. Brauða-samsteypan. Þegar litið er á tölu safnaðarlima í þjóðkirkjunni hér nú orðið, virðist það — miðað við aðrar samsteypur — engin fjarstæða að leggja Lágafellssókn (og Viðeyjar) við Reykja- víkurprestakall, þegar tveir eiga að vera prestarnir, en ein- rnitt sú samsteypan kann nú í bili að tefja fyrir því, að vér

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.