Nýtt kirkjublað - 15.04.1908, Blaðsíða 7
NÝTT KIKKJUBLAÐ
79
nokkurt samsteypuprestakall, þegar svona stendur á. Með
því er tafið fyrir fullnaðarsameining eða henni að minsta
kosti skotið á frest um enn óákveðnari tíma en ella, og sömu
vandkvæði geta tekið sig upp aftur er annaðhvort presta-
kallið losnar.
Nokkuð öðru rnáli er að gegna um Reyk]avíkurprestinn
nýja. Þar er ekki fækkun heldur fjölgun presta, sem koma
þarf til framkvæmdar, og þessi fjölgun stafar auðvitað af
nauðsyn safnaðarins, sem orðinn er svo stór, að ofætlun er
fyrir einn prest að þjóna honum. Þetta tilfelli var einstætt í
öllu prestakallamálinu á siðasta þingi. Hafi nú þessi nauð-
syn til aukinnar prestsþjónustu í Reykjavikurprestakalli verið
réttmæt eins og bæði milliþinganefndin, stjórnin og alþingi
taldi hana að vera, þá dregur sameining Mosfells ekkert úr
henni. Þetta prestsembætti var og stofnað án nokkurs tillits
til þeirrar sameiningar, er samþykt var í flaustri á síðustu
augnablikum þingtímans. Að láta þessa ráðstöfun dragast eða
að demba Mosfellsprestinum í þetta nýja embætti að söfnuði
Reykjavíkur fornspurðum virðist hvorttveggja jafn ótiltækilegt
og koma í bága við tilætlun þingsins.
Eg get því ekki séð nein þau vandkvæði hér, er ekki sé
hægt að ráða fram úr án bága við gildandi lög. Hitt er
annað mál, hve vinsælar allar þessar samsteypur verða, um
það hefi eg litla von, svo framarlega, sem þjóðin vill nokkra
prestsþjónustu hafa.
Á hinu skyldi mig ekki furða, þótt sumar samsteypurnar
yrði til þess, að söfnuðirnir bæðu þjóðkirkjuna vel að lifa;
þeir gætu sjálfir eins vel séð sér fyrir prestsþjónustu.
Sigurður Stefánsson.
|vcrið og kristindómskcnslan.
Eg man það fyrst um kverið, að sjálfum mér, og flestum
samtíða jafnöldrum mínum, þótti það hin leiðasta bók. Mér
gekk líka stirt og seint að læra það, utanbókar náttúrlega, og
kallaðist latur. Man eg það vel, að varla var unt að skipa