Nýtt kirkjublað - 01.05.1908, Síða 7
NÝTT KIRKJUBLAÐ ^ 10^
Séra Jon fer allhörðum orðum um þessar synjanir, og
sérstaklega tekur hann upp þykkjuna fyrir sína eigin kirkju:
„Oss láterskum Yestur-ísleDdingum má í rauninni vor vegna
standa á sama, hvort kirkjuleg embættisverk, sem vor á meðal
hafa verið íramkvæmd, eru viðurkend aí kirkjumálastjórn íslands
eða ekki. Hinsvegar er þó ekki liklegt, að annar eins ógildingar-
dómur úr þeirri átt á embættisverkum, sem hér hafa framkvæmd
verið, verði til þess að f'æra oss í anda nær bræðrunum hinum
megin við hafið ; miklu fremur seDnilegt, að djúpið sem þegar er
staðfest milli islenzka þjóðarbrotsins hór og meginhlutans í fornum
átthögum vorum, verði út af þessu, sem i rauninni getur talist til
smárauna, enn þá meira“.
Eins og áður hefir verið skýrt frá í N. Kbl. mælti bisk-
up með því að taka vígslu séra Runólfs gilda. Og til að af-
stýra því að úrskurður Npllemanns um prestsvígslu Halldórs
Briems væri hafður að fordæn i, benti biskup á, að þegar séra
Jón Bjarnason vígði H. B. um 1880 var eigi komið upp vest-
an hafs kirkjufélag með fastri skipan. En lögskýringarnar
gömlu frá Nellemann með tilvitnunum í ordínansíu og rítúal
frá 17. öld, og tilskipun söinu hásællar aldar þar inni í milli
(í9/n 1022), réðu að sinni úrslitum.
Öðru vísi víkur við um beiðni séra Hafsteins. Hún hef-
ir aldrei fyrir biskup komið, og eigi hefir beint reynt á það,
að henni hafi verið neitað, beiðninni er vísað frá, af því að
hún er svo uppborin, að fá vígsluna viðurkenda í hinu danska
ríki. Um löggilding í Danmörku hefir stjórnarráðið islenzka
auðvitað ekkert að segja, alveg eins og danska ráðaneytið
gæti enga slika löggilding veitt hér á landi.
Sæki séra Hafsteinn um prestakall hér, samkvæmt ótvi-
ræðum rétti sem kandídat frá prestaskólanum, og nái hann
kosningu safnaðar, þá reynir fyrst á gildi prestsvigslu hans.
Og eg trúi því ekki, ef til þess skyldi koma, að farið væri
að vigja séra Hafstein Pétursson upp aftur. Þá tæki eg und-
ir með séra J. B., að slíkt væri „hneyksli“, „þvert í móti meg-
inreglu lútersku kirkjunnar11.
Lúterskum Vestur-Islendingum á alls eigi að standa á
sama um það, hvort kirkjuleg embættisverk þeira eru viður-
kend hér eða ekki, og oss á heldur ekki að standa á sama,
livort slík verk framkvæmd hjá oss eru viðurkend vestra eða