Nýtt kirkjublað - 01.07.1911, Page 3
NÝTT KÍJRKJUBLAÐ
147
þeim af oss í minnisvarðanefndinni hér, sem kunnugir eru
staðháttum í Reykjavík.
Með bróðurlegum kveðjum og blessunaróskum.
Jón Bjarnason, Guðm. Arnason, Skafti Brynjólfsson,
forseti. ritari. féhiröir.
Arni Eggertsson. B. J. Brandson. B. L. Baldwinson.
Jón J. Vopni. Ól. S. Thorgeirsson.
Olafur Stephensen. Slefán Thórson. Stefán Björnsson.
Sveinn Brynjólfsson. Thos. H. Johnson.
Alls voru 15 í nefndinui vestra. Vantar hér tvo í töluna, er
báðir voru í íslandsferð, þeir Friðjón kaupm. Friðriksson og síra
Friðrik J. Bergmann.
j§ynodus=prédikun
síra Gisla Skúlasonar.
Og eg heyrði raust mikla frá hásœtinu er sagði:
Sjá, tjaldbúð guðs er meðal mannanna, og hann
mun búa hjá þeim, og þeir munu vera fólk hans, og
guð sjálfur mun vera hjá þeim, guðþeirra. Opb. 21.3.
. . . Þegar eg lít yfir land vort og þjóð, þá dylst mér það
ekki, að hér hefir kristin kirkja unnið mikið verk um liðnar
aldir og veitt mörgum kynslóðum kraft og þrek til þess að
afbera þær mörgu þrautir, sem hér hafa dunið yfir. Frá
kirkju þessa lands hafa gengið straumar mentunar og mann-
kærleika út meðal þjóðarirmar, kristin trú hefir verið það afl,
sem háð hefir baráttu við þá sundrung og eigingirni, sem frá
því fyrsta hefir verið hér verulegt þjóðarmein, og krossinn
Krists hefir verið það merki, sem kynslóð eftir kynslóð hefir
skipað sér undir, og hlotið fyrir bæði huggun og þrek. Og
þótt því ekki verði neitað, að saga þessa lands sé að mörgu
leyti sorgarsaga, þá myndi þó í því efni fyrst gefast á að líta,
ef kristin trú og kristin kirkja hefði ekki látið sín við getið.
En svo viss sem eg er um þetta, svo ljóst er mér líka hitt,