Nýtt kirkjublað - 01.07.1911, Page 14

Nýtt kirkjublað - 01.07.1911, Page 14
158 NÝTT KÍRKjUBLA© Embættispróf við prestaskólann tóku í júnímánuði: Magnús Jónsson .... I. ágætis-eink., 99 stig. Jakob Ó. Lárusson . . I. eink. 90 — Sigurður Jóhannesson .II. — 71 — Verkefni í skriflega prófinu voru: Skýring Nýja-testamentisins: 1. Kor. 8, 1—11. Trúfrœði: Að gera grein fyrir hinni svoneíndu kenósiskenningu, og sýna fram á í hverju henni sé einkum ábóta- vant. Siðfrœði: Gerð skal grein fyrir hinni kristilegu skoðun á lífinu, og síðan stuttlega lýst þeim öðrum stundlegum gæðum, sem sérstaklega eru skilyrði fyrir þrifum þess. Kirkjusaga: Kalvín og siðbótin í frakknesku Sviss. Prédikunartextar: Matt. 7,24--27; Mark. 10,42—45; Jóh. 7,14—17. Jón prófastur Sveinsson varð 25 ára prestur í vor, vígðist til Garða á Akranesi 1886, og hefir aldrei þaðan sótt. Söfnuður hans mintist þess mjög ástúðlega og íagurlega. Eft- ir embætti á Hvítasunnudag í Akraneskirkju var prófasti flutt skrautritað ávarp, er undir höfðu ritað um 400 safnaðarmeðlimir og var honum þar sem best þakkað hið ágæta starf í söfnuði og sveit. Söngflokkurinn söng þar og kvæði til hans. Ort hafði E>or- steinn oddviti Jónsson á Grund á Akranesi. Síra Eriðrik J. Bergmann verður hér á landi fram eftir sumrinu, fer i þ. m. norður til fornu átthaganna. Prá Norðurlandi er förinni heitið til Noregs. Býst hann fyrst við að koma heim til Winnipeg i októbermánuði. Pyrirlesturinn, sem síra Priðrik hélt í dómkirkjunni, kemur væntanlega út hér heima í sumar. Mannaskifti. Þeir eru farnir vestur um haf guðiræðiskandidatarnir nýju, Jakob og Magnús. Eru þar ráðnir til prédikunar-þjónnstu surnar- langt hjá islenskum söfnuðum. Per Jakob til safnaða í hinni blómlegu Islendingabygð í Saskatchewan, en Magnús verður hjá Tjaldbúðarsöfnuðinum i Winnipeg í fjarveru síra Priðriks í sumar. Báðir munu svo hinir efnilegu kandidatar verða næsta vetur erlendis, sér til lærdóms og frama, i Noregi og JÞýskalandi, og hverfa svo heim næsta sumar. Altaristöflur íslenskar. Þarfiaust verður að sækja þær til útlanda úr þessu. 1 síðastl.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.