Nýtt kirkjublað - 01.07.1911, Síða 15

Nýtt kirkjublað - 01.07.1911, Síða 15
NÍTT Krft&ttJfiLA© 169 minuði kom í Grindavikurkirkju aUaristaflan sem Einar Jónsson í Garðhúsum gaf, en Asgrimur máiaði. Á þeirri mynd kyrrir Kristur vind og sjó, eru björg í baksýn og verður brimfaldurinn að geislakrónu. JPórarinn er nú að mála stóra altaristöflu í JÞing- eyrarkirkju í Dýrafirði. Gefur „Miljónafélagið". Þar lætur Krist- ur börnin koma til sín. Altaristaflan í Grindavikurkirkju kostaði 300 kr. Dýrasta bókin. Eyrsta prentaða biblían er kend við Gutenberg, og er sagt að 180 eintök hafi verið prentuð af henni. Það gerðist um miðja 15. öld. Fáein eintök eru enn til af þessari elstu útgáfu. A lat- inumáli væntanlega; þýska útgáfan dálitið yngri. Eitt eintak af Gutenbergs-biblíu gekk nýlega kaupum og sölum, og hrepti auðmaður í Kalíforníu og gaf fyrir 50 þús. dollara. Ensk skáldlaun. Árið sem kemur á Dickens skáldsöguhöfundurinn ágæti 100 ára afmæli. Þrjár dætur hans eru á lífi og aflmörg barnabörn, og er alt það fólk fátækt. Vann Dickens sér allmikið inn fyrir skáldsögur sínar, þó að betur yrði stórskáldunum borgað síðar, og eigi hafði hann síður mikið upp úr upplestrarferðum sínum bæði heima og í Ameriku. En illa hélst honum á fé og dó hann snauður. Nú hafa enskir blaðamenn og rithöfuudar og tignar-burgeisar sett á gang samskot handa þessum afkomendum Dickens með þeim hætti, að afmælisárið verður til sölu í hinum enska heimi Dickens- ruerki, miðakorn til álímingar, og ætlast til að eigendur Dickens- bóka kaupi og festi á. Merkið á að kosta pening enskan, en þvi mun treysta mega, að stórfé hafist upp úr þessu handa niðjum skáldsins. Dickens-bindin skifta tugum miljóna. Til samanburðar má geta þess, að hér á landi helst eignar- réttur að sömdu máli 50 ár eftir dauða höfundar, en á Englandi ekki nema 7 ár. Hvað verður um Nóbelsverðlaunin ? Ameriskt blað er nýskeð að vandræðast yfir þvi, hvað Banda- fylkin verða útundan við úthlutun Nóbelsverðlaunanna. Eólkið er þar í landi orðið yfir 100 miljónir, en smáríkin sum i Evrópu hafa borið meira frá borði. Af einura 60 verðiaunum hafa tvö ein ver- ið gefin vestur um haf, bæði til manna í Bandaíylkjunum, gengu önnur þeirra til ftoosevelt fyrir friðarmálin sem hann bar milli Rússa og Japana. Ritsnillingum eru og verðlaun veitt, eu anuars

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.