Nýtt kirkjublað - 01.08.1914, Blaðsíða 2
170
NÝTT KIRNJUBLAÐ
dóminn eins og hún birtist oss í guðspjallaheimiidum vorum.
Þessvegna er aíaráríðandi að rannsaka kenningu Jesú
sjálfs, til þess að fá fastan grundvöll að byggja guðshugmynd
vora á.
Það var þetta, sem eg ætlaði mér að leitast við að gjöra
i þessu erindi mínu.
Þegar ræða er um guðshugmynd Jesú verður til saman-
burðar að byrja með því að fá örstutt yfirlit yfir, hvað það
var, sem mest einkendi guðshugmynd gyðingdómsins um
það leyti, sem kristindómurinn kom fram.
Við nánari athugun finnum vér, að það var aðállegast
þrent, sem einkendi guðshugmynd þeirra tíma meðal Gyðinga.
1. Guð var aðallegast skoðaður sem konungurinn
og dómarinn. Réttlœtið var frumeiginleiki hans (sbr. B.
Makkab. 2, 2 nn.). Og með því er ekki átt við trúfesti hans
og náð, eins og í Devtero-Jesaja og Davíðssálmum, heldur við
endurgjaldandi réttlæti, sem Iaunar og hegnir. Guð geldur
sérhverjum eftir verkum hans. Afstaða hans til mannanna
er að því ieyti réttarfarslegs eðlis. í lögmáli sínu hafði Guð
opinberað mönnunum vilja sinn. Og samkvæmt þessu lög-
máli breytir hann í öllu við mennina. Við uppfyllingu lög-
málsins var náð hans bundin. Fyrir lögmálsverk áttu menn
að réttlætast fyrir guði.
2. Guði er þó líka stundum likt við föður. En föð-
urheitið var aðallegast notað um guð lil þess að tákna
sérstöðu hans til Gyðingaþjóðarinnar.
Guð var skoðaður sem faðir Israelsþjóðarinnar. „Is-
raelslýður er minn fruingetinn sonur“, stendur í 2. Mós. 4,
22 (sbr. Jer. 31, 9). í Hós. 11, 1 stendur líka: „Þegarísra-
el var ungur fékk eg (o: Jahve) ást á honum og frá Egipta-
landi kallaði eg son minn“. Þar er frelsun þjóðarinnar úr
ánauðinni á Egiptalandi líkt við afskifti föður af barni sínu.
Synd þjóðarinnar er einnig lýst sem óhlýðni barna við föður
sinn (Jes. 1, 2). Jahve er líkt við jarðneskan föður sem ým-
ist annast eða agar ísrael sem barn sitt (5. Mós. 1, 31; 8, 5).
Föðurafskifti Jahve við ísrael birtast sérstaklega í því, að gjöra
þjóðina að verkfæri opinberunar sinnar og búa liana undir
að Messías kæmi þar fram.