Nýtt kirkjublað - 01.08.1914, Page 16

Nýtt kirkjublað - 01.08.1914, Page 16
164 NÝTT KEREJUBLAí) þörf dýraverndunaríélaga. Sérstaklega blöskraði fundarmönnum lýsingin á hinni miskunarlausu fuglaveiði með „bandingjum“ við Drangey á Skagafirði og létu í ljósi eindregna ósk í þá átt, að sú veiðiaðferð legðist sem allra fyrst niður. 2. llvaÖ leggjum vér í framtíðarsjóð æskulýðs vors? Um þetta efni flutti síra Þorsteinn Briem erindi það, erhann hafði áður flutt á héraðsfundi Eyjafjarðarprófastsdæmis. Venjulega væri talið, að hið hið besta, sem börnum væri veitt í arf, væri mentun og bókleg þekking. Þetta væri að visu mikilvægt, en annað væri þó enn meira áríðandi, en það væri að beina viljalifi og tilfinningalífi barnanna og unglinganna í rétta átt og hafa sem mest og best áhrif í þessa átt. Og besta ráðið til þessa væri að innræta börnunum sannan og lifandi kristindóm og koma þeim í bænasamband við hinn algóða föður. Kenslu- aðferðin og kenslubækur í kristindómi þyrfti að vera sem bestar og hentugastar, fermingarundirbúningur meiri en nú er alment. Æskilegast væri, að sem víðast kæmist á barnaguðsþjónustur, eða að minsta kosti kristilegt viðtal við börn og unglinga eftir messu á sunnudögum. Benti ræðumaður á fyrirkomulag á barnaguðs- þjónustum og ýmsar aðferðir presta í viðtali við börn. Nefndi hann og nokkrar útlendar bækur, sem mjög hentugar væri til stuðnings í þessu efni svo og biblíumyndir. En aðalbókin við alla kristindómsfræðslu barna og unglinga er þó og verður biblían sjálf. Talaði ræðumaður og um kristil. ungmennafélagsskap og fermingarafmæli. Grundvöllurinn undir gæfu og farsæld framtiðarkynslóðarinn- ar er trúin, — hrein og sönn kristin trú. — Það er stofnféð, sem bestan ávöxtinn ber og gripið verður til í framtíðinni. Ekkert betra getum vór lagt í framtiðarsjóð æskulýðs vors. Miklar umræður urðu um þetta mál og voru ræðumenn að mestu samþykkir skoðunum málshefjanda. Yfirleitt snerust um- ræðurnar mest að kristiudómsfræðslu barua og fræðslulögunum. Að enduðum umræðum bar málshefjandi fram svo hljóðandi tillögu: Fundurinn skorar á Alþingi, að breyta frœðslulögunum frá 1907 á þá leið, að prestur eigi sæti i fræðslu- og skólanefndum í prestakalli hans. Og ef að atkvæði verða jöfn, þá ráði atkvæði þess hlutans, sem presturinn fylgir. Fundurinn samþykti þessa tillögu í einu hljóði og ákvað að senda biskupi landsins tillöguna til bestu aðgerða. [Niðurl.] Ritstjóri: ÞÓRHALLUR BJARNARSON. F élagsprentsmiðj an.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.