Nýtt kirkjublað - 01.08.1914, Qupperneq 14

Nýtt kirkjublað - 01.08.1914, Qupperneq 14
m heimsrásina með kraftaverkum, en sé annars fyrir utan heiminn? Eða kenning álgyðistrúarinnar um guð sem ópersónu- lega stærð? Séum vór sannfærðir um, að Jesús hafi flutt oss boð- skapinn um föðurlegt kærleikseðli guðdómsins, um takmarka- lausan kærleika hans til allra manna, og ef vér í alvöru trú- um á guð sem slíkan, þá liggur líka í hlutarins eðli, að vér hljótum að hafna hverri þeirri kenningu, sem byggir á öðr- um og ólíkum guðstrúargrundvelli. Jafnvel þótt einhver höfundur N. T. hugsi sem Gyðing- ur og haldi einhverju fram, sem vér erum sannfærðir um að ekki getur samrímst kenningu Jesú, þá ættum vér ekki að vera í neinum vafa um, hverjum beri að fylgja. Og hið sama á auðvitað við um hverja þá nýrri kenn- ingu, sem ósamrímanleg er guðshugmynd Jesú. En um fram alt ber oss að stefna að því, að gjöra fagnaðarboðskap Jesú lifandi og ávaxtasaman í lífi voru og annara, munandi eftir þessari áminningu Jesú : „ Verið þér því fullkomnir, eins ogyðar himneski faðir er fullkominn11. NÝTT KIRNJGBLAÍ) fundargjörð. Árið 1914 var fundur í félagi pre3ta í hiuu forna Hólastifti settur á Akureyri mánudaginn 29. júní. Byrjaði fundurinn með guðsþjónustugjörð í Akureyrarkirkju og prédikaði sira Björn Jóns- son á Miklabæ, út af Matt. 11. 25- 30. Þar á eftir komu prest- arnir saman í fundarsal bæjarstjórnarinnar og þar var fundurinn haldinn. Þessir voru mættir á fundinum: Úr Suður-Þingeyjarprófastsdæmi: Síra Ásmundur Gíslason, prófastur. — Árni Jóhannesson. — Björn Björnsson. — Helgi Pétur Hjálmarsson. Úr Eyjafjarðarprófastsdæmi og af Akureyri. Síra Geir Sæmundsson, vígslubiskup og prófastur. — Þorsteinn Briem. — Theodór Jónsson.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.