Fréttablaðið - 09.11.2009, Page 8
8 9. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
Velferðarvaktin stendur fyrir morgunverðarfundi
á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn
11. nóvember 2009 kl. 8.30–10.00
Skuldavandi heimilanna
- Opnun fundar
Stella K. Víðisdóttir, fulltrúi í stýrihópi velferðarvaktar félags- og
tryggingamálaráðuneytisins
- Aðgerðir stjórnvalda við skuldavanda heimilanna
– kynning á úrræðum
Kristrún Heimisdóttir, lögfræðilegur ráðgjafi í félags- og
tryggingamálaráðuneytinu
- Greiðslujöfnun verðtryggðra og gengistryggðra lána
Sigurður Kristjánsson, forstöðumaður lánadeildar hjá Nýja
Kaupþingi banka
- Samræmdar verklagsreglur Íbúðalánasjóðs, fjármálafyrirtækja
og lífeyrissjóða um sértæka skuldaaðlögun
Gunnhildur Gunnarsdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs Íbúðalánasjóðs
- Sýn Hagsmunasamtaka heimilanna
Friðrik Ó. Friðriksson, formaður stjórnar Hagsmunasamtaka
heimilanna
- Samantekt fundarstjóra og fyrirspurnir
Fundarstjóri: Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður
Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.
SJÁVARÚTVEGSMÁL Útflutnings-
fyrirtækið Triton stendur fyrir
söluátaki á grásleppu í Kína.
Liður í því er þátttaka fyrirtæk-
isins í stærstu sjávarútvegs-
sýningu Asíu sem haldin er í
Qingdao í Kína.
Í fyrrasumar flutti fyrirtæk-
ið út sjötíu tonn af frosinni grá-
sleppu en aðeins hrogn fisksins
eru nýtt hérlendis. Þrjú þúsund
tonnum af grásleppu er hent á
ári hverju hérlendis þrátt fyrir
að um gott hráefni sé að ræða.
Að sjávarútvegssýningunni
lokinni kynnir fyrirtækið afurð-
ir á þremur völdum hótelum
í Shanghaí. Þar verður boðið
upp á ýmsa rétti úr íslenskri
grásleppu og fleiri íslenskum
sjávar afurðum, til dæmis niður-
soðinni þorsklifur. - shá
Útflutningur til Asíu:
Grásleppa boðin
til kaups í Kína
HROGNATAKA Íslendingar nýta hrognin
en henda þrjú þúsund tonnum af fiski.
1 Nylon-stúlkur ætla að flytja
til útlanda. Hvert?
2 Merkra tímamóta er minnst í
Þýskalandi í dag. Hverra?
3 Hvað heitir nýútkomin ævi-
saga séra Hjálmars Jónssonar?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
BANDARÍKIN, AP Heilbrigðisfrum-
varpið sem neðri deild Bandaríkja-
þings samþykkti seint á laugar-
dag er eitt flóknasta frumvarp
sem nokkru sinni hefur komið til
afgreiðslu þingsins.
Frumvarpið var samþykkt
með 220 atkvæðum gegn 215.
Einungis einn repúblikani studdi
frumvarpið, en 39 demókratar
voru á móti. Öldungadeildin á enn
eftir að afgreiða frumvarpið, og
þarf sextíu atkvæði af hundrað til
þess að stöðva málþóf um frum-
varpið.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti sagðist sannfærður um að
öldungadeildin muni samþykkja
frumvarpið þegar það komi til
kasta hennar.
„Ég hlakka til að undirrita lögin
fyrir árslok,“ sagði hann.
Verði frumvarpið að lögum fá
36 milljónir Bandaríkjamanna
heilbrigðistryggingar í viðbót við
þá, sem fyrir eru tryggðir. Þar
með á að vera tryggt að 96 pró-
sent Bandaríkjamanna njóti heil-
brigðistrygginga. Aðrir eiga auk
þess kost á aðstoð frá ríkinu til að
kaupa sér tryggingar á lágu verði.
Talið er að nærri fimmtíu millj-
ónir Bandaríkjamanna séu nú án
heilbrigðistrygginga.
Ákvæði frumvarpsins taka þó
ekki öll gildi fyrr en árið 2013.
Demókratar náðu auk þess engan
veginn fram öllum þeim breyting-
um, sem þeir höfðu vonast til.
Meðal annars þurftu þeir að fall-
ast á breytingartillögu, sem bann-
ar öll ríkisútgjöld vegna fóstur-
eyðinga, að öðrum kosti hefði
frumvarpið ekki náð meirihluta.
Frumvarp öldungadeildarinnar
verður ekki samhljóða frumvarpi
fulltrúadeildarinnar, þannig að
eftir afgreiðslu öldungadeildar
þarf nefnd skipuð fulltrúum
beggja deilda að samræma frum-
vörpin og leggja samræmdu útgáf-
una síðan fyrir báðar deildirnar til
endanlegrar samþykktar.
Þar með yrði einu helsta bar-
áttumáli demókrata undanfarna
áratugi náð að mestu, þótt ekki
hafi allt náðst fram sem að var
stefnt. Breytingarnar á heilbrigðis-
tryggingakerfi Bandaríkjanna nú
yrðu þær mestu sem gerðar hafa
verið síðan 1964.
Repúblikanar voru þó margir
hverjir engan veginn kátir með
niðurstöðuna: „Heilbrigðiskerfið
verður yfirtekið af ríkinu hrað-
ar en hönd á festir, mér býður við
þessu,“ sagði Candice Miller og
bætti því við að demókratar væru
staðráðnir í að samþykkja frum-
varp sem yki atvinnuleysi og fjár-
lagahalla og leiddi til hærri skatta.
gudsteinn@frettabladid.is
Fórnuðu fóstureyðingum til
að ná fram nýju frumvarpi
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti á laugardag langþráðar umbætur í heilbrigðismálum. Obama
Bandaríkjaforseti kveðst hlakka til að skrifa undir lögin. Öldungadeildin á þó eftir að afgreiða frumvarpið.
SÆTUR SIGUR Leiðtogar demókrata í fulltrúadeildinni héldu blaðamannafund eftir að
frumvarpið var í höfn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Ein aðaltekjulind björg-
unarsveitanna, flugeldasalan,
brást í fyrra samkvæmt Kristni
Ólafssyni, framkvæmdastjóra
Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar. Kristinn segir að í ár
sé búið að laga vöruúrvalið að
ástandi, fara vel ofan í rekstur inn
og skera allan óþarfa í burtu.
„Útkoman í fyrra var ekki
beysin þar sem við urðum að
borga mjög hátt verð fyrir
vöruna vegna stöðu krónunnar
þannig að við gerðum ekk-
ert meira en að borga reikn-
ingana og búið. Það var enginn
hagnaður þannig að þetta er ekki
búið að vera létt,“ segir Kristinn.
„Við erum búin að fara vel ofan
í reksturinn, taka allan óþarfa
í burtu og leggja áherslu á nýja
þætti í vöru úrvalinu, þessa milli-
stóru hluti sem við reiknum með
að almenningur muni frekar
kaupa en flytjum ekki inn risa-
terturnar sem hafa verið mikið
keyptar síðustu árin.“
Síðustu áramót varð mikill
afgangur af stærri flugeldunum
eins og tertunum en þess í stað
urðu sölustaðir uppiskroppa með
millistórar vörur. „Við erum því
ekki aðeins að flytja inn meira
af millistóru flugeldunum heldur
bættum við líka effektana á
þeim, með meiri litadýrð. Þannig
fá nú allir nýjan Gunnar og nýja
Bergþóru en við erum með fjór-
tán nýjar tegundir af millistóru
rakettunum. Eins eru þessir
millistóru fjölskyldupakkar veg-
legri en áður hefur verið. Við
vonumst til að þetta takist í ár
með dyggri hjálp almennings.“
- jma
Breytingar hjá Landsbjörg vegna lélegrar afkomu af flugeldasölu í fyrra:
Risatertunum skipt út fyrir
litríkari rakettur í millistærð
MIKIÐ ÚRVAL AF MILLISTÓRUM RAKETTUM Í ÁR Risaterturnar sem notið hafa mikilla
vinsælda síðustu árin seldust lítið sem ekkert í fyrra. Vöruúrvalið er því afar breytt í
ár. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FRAKKLAND, AP Skilnaðarhátíð var
haldin í París í gær í fyrsta sinn,
en reiknað er með að hún verði
árviss viðburður.
Þetta er eins konar vörusýn-
ing, eða þjónustusýning, þar sem
sextíu fyrirtæki og einstakling-
ar kynna þjónustu sína fyrir fólk
sem stendur í skilnaði.
Nærri annað hvert hjónaband
í Frakklandi endar með skilnaði.
Á síðasta ári voru 130 þúsund
skilnaðir skráðir í bækur hins
opinbera, sem er töluvert meira
en fyrir þremur áratugum þegar
fimmtíu þúsund hjón skildu
að skiptum í Frakklandi á ári
hverju. - gb
Hjónaskilnuðum fjölgar:
Skilnaðarhátíð
haldin í París
REYKJAVÍKURBORG Mannréttinda-
ráð Reykjavíkurborgar vill ekki
að borgarráð semji við Alþjóða-
hús á næsta ári um þjónustu við
innflytjendur. Þetta kom fram í
fréttum Ríkisútvarpsins. Borgar-
ráð á eftir að taka afstöðu til til-
lögunnar.
Ráðið byggir mat sitt á úttekt á
innflytjendaþjónustu. Meðal þess
sem í henni kemur fram er að
Alþjóðahús þykir ekki hafa sinnt
sex til sextán ára innflytjendum.
Þá hafi fyrirhuguð verkefni og
námskeið á vegum Alþjóðahúss
verið felld niður.
Margrét Steinarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri og lögfræðingur
Alþjóðahúss, heyrði fyrst af
ályktun Mannréttindaráðs í frétt-
um helgarinnar. „Ég get ekki lagt
mat á tillögur Mannréttindaráðs
fyrr en ég hef séð þau gögn sem
búa að baki. En hver sem niður-
staðan verður er mikilvægast
að innflytjendum verði tryggð
áfram sú þjónusta sem Alþjóða-
húsið hefur sinnt; lögfræðiráð-
gjöf, almenn ráðgjöf og upplýs-
ingagjöf.“
Innan Alþjóðahúss eru starfandi
þrjú aðskilin fyrirtæki; túlkaþjón-
usta, íslenskukennsla og Alþjóða-
húsið ehf. Einungis Alþjóðahúsið
ehf. er háð þjónustusamningi við
Reykjavíkurborg. - hhs
Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar gerir úttekt á þjónustu við innflytjendur:
Vilja ekki samning við Alþjóðahús
ALÞJÓÐAHÚSIÐ Mannréttindaráð
Reykjavíkurborgar vill ekki að borgarráð
semji við Alþjóðahús á næsta ári um
þjónustu við íbúa borgarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
VEISTU SVARIÐ?