Fréttablaðið - 09.11.2009, Side 13

Fréttablaðið - 09.11.2009, Side 13
MÁNUDAGUR 9. nóvember 2009 13 JAFNRÉTTISMÁL Félag um foreldra- jafnrétti skorar á ríkisstjórn Íslands að taka á jafnrétti for- eldra til að umgangast börn sín. Í tilkynningu frá félaginu kemur meðal annars fram að móðir verði í 95 prósentum til- vika með lögheimili og öll helstu réttindi barna við skilnað for- eldra. Í raun sé jafnrétti kynj- anna í málaflokki forsjár- og umgengnismála ekki viðurkennt á Íslandi. Félagið gagnrýnir einnig emb- ætti umboðsmanns barna og segir það ekkert hafa gert til að leið- rétta mannréttindabrot á börnum í forsjár- og umgengnismálum. Félag um foreldrajafnrétti: Vilja jafnan rétt til umgengni ALÞJÓÐAMÁL „Ég man hverja einustu mínútu kvöldið sem múrinn féll. Ég þurfti eins og aðrir að klípa mig í hand- legginn til að trúa að þetta væri að gerast. Ég myndi hins vegar ekki vilja skipta á neinum happdrættisvinn- ingi og því að hafa verið við- staddur,“ segir Ágúst Þór Árnason, doktor í réttar- heimspeki og kennari við Háskólann á Akureyri. Ágúst Þór flytur erindi á vegum Samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál (SVS) og Varðbergs í Norræna húsinu í dag. Erindið ber yfirskriftina „Múrbrot horfinnar hugmynda- fræði – 20 ár frá falli Berlínarmúrsins“. „Ég reyni í erindi mínu að tengja heims- viðburð við eigin upplifun en segja má að fall múrsins sé einhver merkilegasti stjórnmála- viðburður seinni tíma. Bæði var þetta upp- haf endaloka austur-evrópsks kommúnisma og byrjun þeirrar hnattvæðingar sem hefur verið á mikilli siglingu síðustu árin. Hins vegar var erfitt að útskýra múrinn fyrir fólki sem ekki þekkti til fyrir 20 árum og í dag er það enn erfiðara. Þessi atburðarás – að menn skyldu byggja múr utan um milljónaborg í miðri Evrópu – er auðvitað svo ótrúleg.“ Fundurinn hefst klukkan 12. Björn Bjarna- son, formaður SVS, flytur einnig erindi á fundinum. Fundarstjóri verður Stefán Einar Stefánsson, formaður Varðbergs. Áhugafólk um öryggis-, varnar og alþjóðamál er hvatt til að sækja fundinn. - jma Samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál og Varðberg efna til fundar um Berlínarmúrinn: Erum aldrei búin undir viðburði sem þessa HORFINN HEIMUR Erindi um Berlínarmúrinn og hugmyndafræði Austur-Evrópu verður flutt í Norræna húsinu í dag. ÁGÚST ÞÓR ÁRNASON LÖGREGLUMÁL Tvítugur ökumaður endaði ökuferð utan vegar við Norðausturveg í Öxarfirði á ell- efta tímanum á laugardagskvöld. Ökumaðurinn hafði virt að vettugi stöðvunarmerki lögreglunnar á Húsavík sem var við hefðbundið eftirlit. Þess í stað jók ökumaður hraðann og ók bíl sínum á allt að 170 kílómetra hraða á flóttanum. Hann reyndist talsvert ölvaður og var sviptur ökuréttindum á staðnum. Þá var bíll í Námaskarði austan Mývatns síðdegis á laugar- dag. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. Slysið er rakið til hálku á veginum. - jma Á 170 kílómetra hraða: Ölvaður endaði utan vegar ÞINGVELLIR Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af tveimur rjúpna- skyttum sem voru á veiðum innan Þjóðgarðsins á Þingvöllum. Skot- vopn þeirra og fengur, átta rjúpur, voru gerð upptæk. Veiðar eru stranglega bannað- ar innan þjóðgarðsins en menn- irnir sögðust ekki hafa gert sér grein fyrir að þeir væru staddir innan garðsins. Lögreglan taldi að skytturnar ættu að gera sér það ljóst þar sem bíl þeirra var lagt við Botnssúlur sem tilheyrir þjóðgarð- inum. Mennirnir fá sekt og geta hugsanlega misst skotleyfin. - jma Vopn og fengur gerð upptæk: Skutu rjúpur í þjóðgarðinum ÞRÓUNARAÐSTOÐ Karl Sigurbjörns- son, biskup Íslands, lýsti yfir áhyggjum með niðurskurð í þróun- araðstoð frá Íslendingum á Kirkju- þingi á laugar- dag. Framlögin hafa verið skor- in niður um fjórðung. „Okkur er mikilvægt að muna að þróun- araðstoð er sam- starfsverkefni. Ekki ölmusa sem hinn ríki hendir í þann fátæka, heldur sam- starf,“ sagði biskup í ræðu sinni. Hann sagði Ísland enn vellauðuga þjóð sem gæti hjálpað fátækari ríkjum sem byggju við mikla og langvarandi fátækt. Þjóðin hefði undanfarið reynt að reka af sér slyðruorð hvað þátttöku í þróunar- hjálp varðar. - jma Framlög til þróunaraðstoðar: Biskup lýsir yfir áhyggjum RJÚPNAVEIÐITÍMABILIÐ HAFIÐ Lögregl- an á Selfossi hefur haft afskipti af tólf rjúpnaskyttum frá því að veiðitímabilið hófst um síðustu helgi. KARL SIGURBJÖRNSSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.