Fréttablaðið - 09.11.2009, Síða 15
MÁNUDAGUR 9. nóvember 2009 15
UMRÆÐAN
Kristján Sturluson og Atli Viðar
Thorstensen
Í apríl 2008 gaf Flóttamanna-stofnun Sameinuðu þjóðanna
út skýrslu þar sem lýst var mikl-
um áhyggjum af stöðu hælismála í
Grikklandi. Í skýrslunni var þeim
tilmælum beint til þátttökuríkja í
Dublin-samstarfinu að endursenda
ekki hælisleitendur til Grikklands
þar til sýnt hefði verið fram á að
landið stæðist alþjóðlegar og evr-
ópskar kröfur varðandi málsmeð-
ferð hælisumsókna og aðgengi að
henni, aðbúnað hælisleitenda og
áfrýjunarmöguleika.
Ríki sem taka þátt í Dublin-sam-
starfinu hafa þrátt fyrir þessi til-
mæli Flóttamannastofnunar og
fjölmargra annarra aðila almennt
haldið áfram að senda hælisleit-
endur til Grikklands á grundvelli
samstarfsins
Dómsmálaráðuneytið vann
skýrslu um aðstæður hælisleit-
enda í Grikklandi sem kom út í
júní 2009. Þar sagði að út frá gögn-
um, einkum skýrslu Flóttamanna-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
og Mannréttindafulltrúa Evrópu-
ráðsins, væri ljóst að alvarlegir
annmarkar væru á meðferð hælis-
umsókna í Grikklandi og á aðstæð-
um hælisleitenda þar í landi. Hins
vegar var í skýrslunni bent á að
ljóst væri að ýmsar breytingar
til batnaðar hefðu orðið frá því
að skýrsla Flóttamannastofnunar
kom út í apríl 2008. Einnig var
vísað til framkvæmdar á hinum
Norðurlöndunum og nýlegs dóms
Mannréttindadómstóls Evrópu.
Þó var í skýrslunni tekið fram að
nauðsynlegt væri að skoða hvert
tilvik fyrir sig og ef sú skoðun
leiddi í ljós að varhugavert þætti
að endursenda hælisleitenda til
Grikklands væri lagt til að Ísland
tæki umsókn viðkomandi til efnis-
meðferðar og bæri þar með ábyrgð
á hælisumsókninni.
Í kjölfar skýrslunnar ítrekaði
Rauði kross Íslands tilmæli sín til
íslenskra stjórnvalda um að farið
yrði að tilmælum Flóttamanna-
stofnunar.
Íslensk stjórnvöld hófu aftur að
senda hælisleitendur til Grikk-
lands um miðjan október þegar
þrír hælisleitendur voru fluttir
þangað á grundvelli Dublin-sam-
starfsins.
Það er almennt viðurkennt að
Dublin-reglugerðin hafi ekki náð
þeim tilgangi sínum að dreifa
álagi eða jafna sameiginlega
ábyrgð aðildarríkja hennar á
hælisumsóknum. Afleiðingarnar
eru að ríki sem mynda ytri landa-
mæri ESB, samanber Grikkland,
taka á móti miklum fjölda hælis-
leitenda en hafa ekki haft burði til
að tryggja réttláta málsmeðferð
og viðunandi aðbúnað þeirra.
Afstaða Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna hefur ekki
breyst. Stofnunin leggst enn gegn
endursendingum til Grikklands og
það sama hafa fjölmörg mannrétt-
inda- og mannúðarsamtök gert.
Álit þessara aðila er samhljóða og
er því haldið fram að málsmeð-
ferð hælisumsókna og aðbúnaður
hælisleitenda standist enn ekki
alþjóðlegar og evrópskar kröfur.
Í ágúst 2009 birtu Rauði kross-
inn og Caritas í Austurríki niður-
stöður vettvangsferðar til Grikk-
lands. Þar kom fram að verulegir
annmarkar væru enn á málsmeð-
ferð og aðbúnaði hælisleitenda í
Grikklandi. Málsmeðferðin þykir
bæði mjög löng og hefur einkennst
af óvönduðum ákvörðunum. Þrátt
fyrir að til Grikklands leiti fjöldi
flóttamanna frá stríðshrjáðum
löndum er hlutfall þeirra sem
fá viðurkenningu á stöðu sinni á
fyrsta málsmeðferðarstigi mjög
lágt, aðeins um 0,05% á árinu
2008. Á áfrýjunarstigi höfðu
jákvæðar breytingar átt sér stað
og hlutfall jákvæðra úrskurða
hækkað úr 2% árið 2007 í 11% árið
2008. Í júlí var þetta áfrýjunarstig
hins vegar lagt niður sem vakti
hörð viðbrögð Flóttamannastofn-
unar og mannréttindasamtaka.
Í nýlegri skýrslu norskra og
grískra mannréttindasamtaka
er því haldið fram að ástandið í
Grikklandi hafi versnað. Sérstak-
lega er nefnt að það að afnema
sérstaka áfrýjunarnefnd, þar
sem meðal annars fulltrúi Flótta-
mannastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna átti sæti, hafi líklega þær
afleiðingar að margir hælisleitend-
ur muni ekki fá réttláta efnislega
meðferð hælisumsóknar sinnar.
Það áfrýjunarstig sem kemur í
staðinn getur aðeins staðfest eða
ógilt ákvarðanir sem teknar eru á
fyrsta stigi þar sem nánast allir
hælisleitendur fá neitun. Kæru-
meðferðin geti að auki tekið mörg
ár og verið mjög kostnaðarsöm.
Þá hafa mannréttindasamtök
fullyrt að nýlegar breytingar þýði
að staðan í Grikklandi sé orðin slík
að evrópsk ríki geti ekki staðið við
eigin mannréttindaskuldbinding-
ar ef þau sendi hælisleitendur til
Grikklands. Ótryggt sé að Grikk-
land áframsendi ekki hælisleit-
endur til landa þar sem lífi þeirra
og velferð sé hætta búin. Sé það
raunin brjóti þátttökuríki Dublin-
samstarfsins gegn grundvallar-
reglunni um bann við endursend-
ingu til ríkis þar sem útlendingi er
alvarleg hætta búin. Þessa reglu
má finna í flóttamannasamningi
Sameinuðu þjóðanna, Mannrétt-
indasáttmála Evrópu og flestum
landslögum, þar á meðal íslensku
útlendingalögunum.
Rauði kross Íslands hefur
ítrekað beint þeim tilmælum til
íslenskra stjórnvalda að senda
ekki hælisleitendur til Grikklands
á grundvelli Dublin-samstarfs-
ins þar til sýnt hafi verið fram á
að bæði aðbúnaður og málsmeð-
ferð hælisleitenda standist í raun
alþjóðlegar kröfur. Rauði krossinn
telur, sem meðal annars er byggt á
gögnum sem hér hafa verið nefnd,
ljóst að slíkir gallar séu á gríska
hæliskerfinu að íslensk stjórn-
völd eigi að svo stöddu að nýta sér
undanþáguheimild í Dublin-reglu-
gerðinni og taka hælis umsókn til
efnismeðferðar hérlendis í stað
þess að endursenda til Grikk-
lands.
Kristján Sturluson er fram-
kvæmdastjóri Rauða kross
Íslands og Atli Viðar Thorstensen
er verkefnisstjóri Rauða kross
Íslands.
Hælisleitendur og endursendingar til Grikklands
Það er almennt viðurkennt að
Dublin-reglugerðin hafi ekki
náð þeim tilgangi sínum að
dreifa álagi eða jafna sam-
eiginlega ábyrgð aðildarríkja
hennar á hælisumsóknum.
KRISTJÁN
STURLUSON
ATLI VIÐAR
THORSTENSEN
Vesturvör 30c | 200 Kópavogur | S: 575 1500 | www.kvikkfix.is
FYRIR BÍLINN OG ÞIG
Viltu hafa það notalegt á meðan bíllinn er smurður, skipt um dekk, settur í nýr rafgeymir, perur,
rúðuþurrkur eða bremsuklossar? Hefurðu verið að fresta því að láta þjónusta bílinn af því að það er
svo dýrt að þér finnst þú varla geta það?
Langar þig að láta koma fram við þig eins og manneskju? Er bíllinn sem átti að auðvelda þér lífið orðinn
að hlekkjum endalausra „ósanngjarnra“ útgjalda?
Við bjóðum þér að koma við í KvikkFix og móta nýja framtíð með okkur þar sem sanngirni, gagnkvæm
virðing og lægra verð eru leiðarljósið.