Fréttablaðið - 09.11.2009, Qupperneq 35
MÁNUDAGUR 9. nóvember 2009 19
Bókmenntir ★★
Ég og þú
Skáldsaga eftir Jónínu Leós-
dóttur
Vaka Helgafell 2009, 205 bls.
Ástfangnar í
menntó
Jónína Leósdóttir
hefur sent frá sér
þriðju og síðustu
bókina í röð um
þær stöllur Önnu
og Kötu, þær
fyrri eru Kossar
og ólífur og Svart
og hvítt. Eins og
tíðkast í prinsessu-
sögum af þessu tagi ná þær sér
báðar í kærasta, önnur litaðan og
hin stelpu, bæði útlendinga. Sagan
lýsir þannig tvenns konar tilfinn-
ingalegu uppgjöri, sjálfstæðisyfir-
lýsingu, reyndar í umhverfi sem er
frekar líbó. Þetta eru því sættandi
bókmenntir, valhópur útgefanda
og höfundar eru unglingsstúlkur
enda veitir þeim hópi ekki af
huggunarbókmenntum eins og
hann er leikinn af vitundariðnaði
skemmtistjóra og fata- og meik-
framleiðenda. Jónína skrifar sléttan
og átakalítinn stíl sem sækir mest
í sápur, hversdagslegt fjas um allt
og ekkert, umhverfis lýsingar eru
rýrar, helst staldrað við klæðaburð
ungu stúlknanna. Hann er svolítið
náttúrulaus, jafnvel í kynlífslýsing-
um, hið líkamlega sem ætti að vera
ósandi um fólk á þessum aldri er
teprulega fjarri. Girndin er klædd í
sellófan í þessum heimi, enda væri
slíkt of ögrandi í hinum settlega
heimi bókmennta á borð við þess-
ar. En Jónína gerir allt fallega innan
þessara marka á þeim fleti sem
hún vill sýna og lesendur hennar
vilja líklega sjá ef marka má iðnað-
arbókmenntir fyrir sama aldurshóp
sem er ugglaust nokkru yngri en
söguhetjurnar. Frelsisboðunin sem
er erindið er því takmörkuð og ekki
ögrandi. Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Settleg afþreying fyrir
unglinga, stúlkur ... og pilta.
Bókmenntir ★★
Himinninn yfir Þingvöllum
Smásögur eftir Steinar Braga
Mál og menning 2009, 299 bls.
Svartur himinn
Víst er Steinar Bragi staddur á stað sem íslensk skáld sækja ekki, utan við landakortið, býr á eyju utan við
landhelgi Rithöfundasambandsins? Það þarf lítið að þrefa um rithæfni hans í spunalöngum sögum, hér
eru þær þrjár, þar sem einstaklingur, einn eða fleiri, ánetjast í hversdagslegu umhverfi einhverju illu afli
sem er handan skilvitlegs lífs: nóttina smjúga smádjöflar, eins og segir í kvæðinu. Hér setjast þeir upp
á óreynda og vitgranna bjána sem grunlausir ánetjast illskunni. Höfundur þenur skáldstrengi í ómstríðu
sköpunarverkinu, það þýtur úr honum hugkvæmnin svo lesanda sundlar ef hann á annað borð nennir
að lesa, sem ég veit ekki hvort maður nennti nema fyrir kaup. Alveg satt. Stundum verður texti Steinars
eins og afar nákvæmur manúall við tæki sem á að meiða einhvern úr fægðu stáli sem má spenna upp í
skilvitunum og skáldið ölvast af óhugnaði og heldur áfram og áfram. Og vitandi að Steinar á þá ónotað-
an hluta af nótnaborðinu má spyrja hví hann hamast svona mikið á sömu nótunum. Þetta þriggja sagna
safn er á köflum furðulegt og víða áberandi þreytandi og leiðinlegt.
Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Er Steinar út úr kortinu eða snýst hann í hringi á sama stað?
Bókmenntir ★★
Bókasafn Ömmu Huldar
Skáldsaga með myndum eftir Þórarin Leifsson
Mál og menning 2009, 216 bls.
Tröll hafi þig
Þórarinn Leifsson átti snarpa innkomu á markað fyrir tveimur árum með mannætusögu sinni af föður
og fjölskyldu hans. Þar var hugmyndaríkum huga hleypt á lendur fjölskyldunnar, talandi var mælskur
og fullur af fjöri. Er nú framhaldið í framtíðarhrylli sem er skekkt ýkt mynd af óhugnaði bankasamfé-
lagsins þar sem vondi kallinn er samsettur af Davíð Oddssyni og Ólafi Ragnari og er gaman að sjá þá
frændur brædda í eitt mót. Heimurinn er lengra kominn en okkar í þróun sinni og auðvaldsþjónkun,
en á jaðrinum lafa þeir sem komast ekki í betri sæti á kringlunni sem er á hraðferð um geiminn.
Þórarni hefur verið líkt við Roald Dahl, óttalaus inklúderar hann ógn og viðbjóð í sögusniðið. Börn
eru sólgin í hrylling sem hleypir fjöri í blóðið. Í þeim skilningi er Þórarinn enn barn. Hann er ekki eins
kaldlyndur og Roald, gaman hans er góðlegra. Frásögn hans er fjörmikil enn, dálitið óreiðukennd
og fer hratt fram. Mínum lesanda þótti bókin „weird“ eins og hann sagði. Sjálfum þótti mér hún full
kaotísk, en skemmtileg er hún víða og óhamin í andanum. Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Nýr áfangi fyrir ungan höfund sem er líklegur til að halda áfram óhræddur um mikil-
væg lönd furðu og kunnugleika.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Mánudagur 9. nóvember 2009
➜ Listahátíð
Unglist, listahátíð ungs fólks, stendur
til 14. nóvember. Ókeypis er á alla
viðburði. Nánari upplýsingar á www.
hitthusid.is.
20.00 Kvartettinn Esja flytur píanó-
kvartett Brahms no. 3 í c moll.
➜ Upplestur
Bæjarlistamaður Seltjarnarness, Ragn-
heiður Steindórsdóttir leikkona, les upp
á Bókasafni Seltjarnarness í Eiðistorgi.
17.00 Upplestur fyrir yngri
börn.
17.45 Upplestur fyrir unglinga.
18.00 Upplestur fyrir full-
orðna.
➜ Hannyrðir
UNIFEM stendur fyrir föndurkvöldi í
Miðstöð Sameinuðu þjóðanna við
Laugaveg 42, 2. hæð. Lay Low og
Trúbatrixur gefa tóninn og kennd verð-
ur fiðrildagerð úr þæfri ull. Allir velkom-
ir. Nánari upplýsingar á www.unifem.is.