Fréttablaðið - 09.11.2009, Síða 42
26 9. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
Enska úrvalsdeildin
Aston Villa - Bolton 5-1
1-0 Ashley Young (4.), 2-0 Gabriel Agbonlahor
(42.), 2-1 Johan Elmander (44.), 3-1 John Carew
(52.), 4-1 James Milner (71.), 5-1 Carlos Cuellar
(74.).
Grétar Rafn Steinsson kom inn á sem varamaður.
Blackburn - Portsmouth 3-1
0-1 Jamie O‘Hara (15.), 1-1 Jason Roberts (52.),
2-1 Ryan Nelsen (72.), 3-1 Jason Roberts (85.).
Hermann Hreiðarsson, Portsmouth, er meiddur.
Manchester City - Burnley 3-3
0-1 Graham Alexander (18.), 0-2 Steven Fletcher
(31.), 0-2 Steven Fletcher (31.), 1-2 Shaun Wright-
Phillips (42.), 2-2 Kolo Habib Toure (54.), 3-2
Craig Bellamy (57.), 3-3 Kevin McDonald (86.).
Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn á sem vara-
maður í liði Burnley.
Tottenham - Sunderland 2-0
1-0 R. Keane (11.), 2-0 Tom Huddlestone (67.)
Chelsea - Manchester United 1-0
1-0 John Terry (75.).
Hull - Stoke City 2-1
0-1 Matthew Etherington (28.), 1-1 Seyi Olofinj-
ana (61.), 2-1 Jan Vennegoor of Hesselink (90.).
West Ham - Everton 1-2
0-1 Louis Saha (26.), 0-2 Dan Gosling (63.), 1-2
Junior Stanislas (64.).
Wigan - Fulham 1-1
1-0 Emmerson Boyce (13.), 1-0 Emmerson Boyce
(13.), 1-1 Clint Dempsey (38.)
Wolves - Arsenal 1-4
0-1 Ronald Zubar, sjálfsmark (28.) 0-2 Jody
Craddock, sjálfsm. (34.), 0-3 Cesc Fabregas (45.),
0-4 Andrei Arshavin (65.), 1-4 Craddock (88.)
STAÐAN
Chelsea 12 10 0 2 29-8 30
Arsenal 11 8 1 2 36-14 25
Man. United 12 8 1 3 23-12 25
Tottenham 12 7 1 4 23-17 22
Aston Villa 12 6 3 3 20-12 21
Man. City 11 5 5 1 21-14 20
Liverpool 11 6 0 5 25-16 18
Sunderland 12 5 2 5 20-19 17
Stoke City 12 4 4 4 12-15 16
Burnley 12 5 1 6 15-25 16
Fulham 11 4 3 4 14-14 15
Everton 11 4 3 4 15-17 15
Wigan 12 4 2 6 13-22 14
Blackburn 11 4 1 6 14-25 13
Birmingham 11 3 2 6 8-12 11
Bolton 11 3 2 6 15-24 11
Hull City 12 3 2 7 10-25 11
West Ham 12 2 4 6 16-20 10
Wolves 12 2 4 6 12-22 10
Portsmouth 12 2 1 9 10-18 7
Subway-bikarkeppni karla
Stjarnan - Keflavík 76-91
Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 31, Jovan
Zdravevski 20, Magnús Helgason 11, Kjartan Atli
Kjartansson 5, Birgir Björn Pétursson 5, Birkir
Guðlaugsson 2, Ólafur Aron Ingvason 2.
Stig Keflavíkur: Gunnar Einarsson 27, Rashon
Clark 19, Sigurður Þorsteinsson 19, Hörður Axel
Vilhjálmsson 14, Þröstur Leó Jóhannsson 5, Jón
Nordal Hafsteinsson 5, Sverrir Þór Sverrisson 3,
Davíð Þór Jónsson 2.
Breiðablik - FSu 74-59
Haukar - ÍR 70-94
Fjölnir - Skallagrímur b 121-57
KR b - Valur 68-80
Mostri - Hamar 61-113
Haukar - ÍR 70-94
Reynir, Sandgerði - ÍBV 66-69
Keflavík b - Hrunamenn 66-74
Hekla - KFÍ 64-98
Valur b - Tindastóll 68-84
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Chelsea vann í gær 1-0
sigur á Manchester United í stór-
leik helgarinnar í ensku úrvals-
deildinni. Það var fyrirliðinn John
Terry sem skoraði markið með
skalla á 76. mínútu eftir fyrirgjöf
Frank Lampard úr aukaspyrnu.
Manchester United hafði ekki
unnið Chelsea á Stamford Bridge í
sjö ár og sú bið lengist nú enn. Enn
fremur er forysta Chelsea á toppi
deildarinnar nú fimm stig en
Arsenal skaust um helgina upp í
annað sæti deildarinnar með 4-1
sigri á Wolves á laugardaginn.
Arsenal á þar að auki leik
til góða á bæði Chelsea
og United.
Leiksins í gær var
beðið með mikilli
eftirvæntingu. Eins
og svo oft áður í
slíkum stórleikj-
um stóð leikur-
inn ekki undir
þeim vænting-
um en fá færi
litu dagsins
ljós.
United þótti
þó heldur sterkari
aðilinn í leiknum, sér
í lagi í fyrri hálfleik.
Wayne Rooney komst
tvívegis nálægt því að skora
og Darren Fletcher átti mjög
fínan leik á miðjunni. Unit-
ed getur þó huggað sig við
að liðið lék ágætlega þó
svo að þeir Rio Ferd-
inand, Nemanja Vidic
og Dimitar Berbatov
hafi allir verið frá vegna
meiðsla.
Jonny Evans og Wes
Brown stóðu því vaktina í hjarta
varnarinnar gegn hinum stór-
hættulegu Didier Drogba og Nicol-
as Anelka, sóknarmönnum Chel-
sea.
En eina mark leiksins kom upp úr
föstu leikatriði og var Alex Fergu-
son, stjóri United, alls ekki sáttur
að það mark fékk að standa gilt.
„Darren Fletcher vann boltann
löglega. Hann kom aldrei við
Ashley Cole,“ sagði Fergu-
son um aukaspyrnuna sem
var dæmd á Fletcher og skóp
mark Chelsea. „Didier Drog-
ba togaði svo Wes Brown
niður í teignum áður
en markið kom. Stað-
setning dómarans var
líka fáránleg. Einn
leikmaður Chelsea
byrgði honum sýn
en hann færði sig
samt ekki,“ bætti
Ferguson við.
„ Þ et t a va r
slæm dómgæsla.
En það er ekkert
hægt að gera í því.
Við getum sjálfum okkur
um kennt. Við fengum
frábær færi til að klára
leikinn en kláruðum þau
ekki.“
Carlo Ancelotti, stjóri
Chelsea, vildi skoða markið
aftur áður en hann tjáði sig
um það en fannst þó rétt að
dæma aukaspyrnu. Hann var
vitanlega hæstánægður með
sigurinn en sagði nauðsynlegt
fyrir leikmenn að halda einbeit-
ingu sinni.
„Ég vona að leikmennirnir snúi
til baka eftir landsleikjafríið í góðu
ástandi og að við munum þá halda
áfram okkar striki,“ sagði Ance-
lotti. „Við höfum aðeins spilað tólf
leiki og við vitum vel að tímabilið
er langt. Við þurfum að vera með
hugarfarið áfram í lagi.“
Ferguson viðurkenndi að tapið í
gær hefði verið þýðingarmeira en
þegar United tapaði fyrir Liver-
pool í síðasta mánuði.
„Staðreyndin er sú að Chelsea er
nú fimm stigum á undan okkur,“
sagði Ferguson. „Tapið fyrir Liver-
pool hafði ekki áhrif á stöðu okkar
í deildinni í þeim skilningi að með
sigri í dag hefðum við farið á topp
deildarinnar.“
Tottenham og Aston Villa nýttu
sér að Manchester City gerði
jafntefli við Burnley um helgina.
Tottenham vann 2-0 sigur á Sunder-
land og kom sér upp í fjórða sæti
deildarinnar og Aston Villa fór í
fimmta sætið eftir 5-1 stórsigur á
Bolton. City er nú í sjötta sæti og
Liverpool því sjöunda.
West Ham, Wolves og Ports mouth
töpuðu öll sínum leikjum um helg-
ina og eru í þremur neðstu sætun-
um. Hull kom sér hins vegar úr
fallsæti með 2-1 sigri á Stoke.
Umferðinni lýkur í kvöld með
viðureign Liverpool og Birming-
ham. eirikur@frettabladid.is
KLÁRUÐU UNITED Frank Lampard lagði upp sigurmark John Terry í leiknum í gær.
Hér fagna þeir félagarnir markinu. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Terry tryggði Chelsea væna forystu
John Terry, fyrirliði Chelsea, tryggði sínum mönnum 1-0 sigur á Manchester United í toppslag helgarinnar í
ensku úrvalsdeildinni. Chelsea er nú með fimm stiga forystu á United og Arsenal, sem á þó leik til góða.
SIR ALEX
Afar ósáttur við störf dómarans í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Ljóst er að bikarmeist-
arar Stjörnunnar verja ekki titil
sinn en þeir lutu í lægra haldi fyrir
Keflavík í Garðabænum í gær,
76-97. Gestirnir voru með tökin
á leiknum frá upphafi til enda og
höfðu forystuna allan tímann.
„Við vorum klárir frá fyrstu
mínútu og áttum í raun aldrei
slæman kafla. Við áttum harma
að hefna gegn þessu liði síðan
í deildarleiknum en þar spiluð-
um við arfaslakan leik. Þetta var
sigur liðsheildarinnar, Kaninn hjá
okkur fór meiddur af velli snemma
en það kom ekki að sök,“ sagði
Gunnar Einarsson, sem skoraði 27
stig fyrir Keflavík í leiknum.
Fannar Freyr Helgason er enn
á meiðslalistanum hjá Stjörnunni
og þar munar um minna. Von-
ast er þó til að hann verði klár í
slaginn í næsta leik. Mikil ábyrgð
hvílir á herðum Justins Shouse en
framlagið frá öðrum leikmönnum
Garðabæjarliðsins hefði mátt vera
meira í gær.
„Þeir voru skrefinu á undan
okkur allan leikinn,“ sagði Teitur
Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar.
„Við vorum eins og kettlingar í
okkar aðgerðum. Það var eins og
menn hefðu litla trú á þessu verk-
efni. En við dveljum ekki lengur
við þessa keppni, við verðum að
halda okkar striki. Við lentum
á móti miklu betra liði að þessu
sinni.“ - egm
Stjarnan vann 21 stigs sigur á bikarmeisturum Stjörnunnar í Garðabænum í gær:
Búið spil hjá bikarmeisturunum
RASHON CLARKE
Skoraði nítján stig og tók níu fráköst
gegn Stjörnunni í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Fram fór upp í þriðja
sæti N1-deildar kvenna með góðum
sigri á Haukum á Ásvöllum í gær,
27-24. Leikurinn var nokkuð jafn í
fyrri hálfleik en Fram var þó með
tveggja marka forystu að honum
loknum, 15-13.
Fram virtist ætla að tryggja sér
öruggan sigur í seinni hálfleik en
Haukar náðu að minnka muninn
í eitt mark þegar skammt var til
leiksloka. Framarar höfðu þó betur
á lokasprettinum.
„Ég var orðin smá stressuð í
lokin,“ sagði Stella Sigurðardóttir,
Fram, sem skoraði tíu mörk í leikn-
um. „En við héldum haus og kláruð-
um leikinn. Mér fannst þetta sann-
gjarn sigur þó svo að við misstum
aðeins dampinn í lok leiksins. Við
vorum með þetta allan tímann.“
Valur og Stjarnan eru á toppi
deildarinnar með tíu stig en Fram
er nú með átta stig. Haukar eru
með sex og hafa nú dregist nokk-
uð aftur úr.
„Þetta var afar mikilvægur
sigur enda allir innbyrðisleikir
þessara liða gríðarlega jafnir og
spennandi. Þar geta allir unnið
alla. Við virðumst þó vera með
tak á Haukunum enda unnum við
þær 2-0 í úrslitakeppninni í fyrra
og svo aftur í Reykjavíkurmótinu
í haust. Ég er allavega ekki hrædd
við Haukana,“ sagði Sara og
brosti.
Markverðir liðanna voru bestu
menn vallarins í gær. Heiða Ing-
ólfsdóttir varði alls átján skot í
marki Haukanna og hélt sínum
mönnum inni í leiknum lengi vel.
Íris Björk Símonardóttir varði
fimmtán skot fyrir Fram.
Ramune Pekarskyte og Hanna
G. Stefánsdóttir voru langat-
kvæðamestar í sóknarleik Hauka,
sem einkenndist annars af mis-
heppnuðum sendingum og töpuð-
um boltum.
- esá
Fram vann þriggja marka sigur á Haukum í gær:
Mikilvægt hjá Fram
TÍU MÖRK Stella Sigurðardóttir fór fyrir
sóknarleik Fram í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN